{"product_id":"palinu-ponsjo-rosalina","title":"Pálínu - ponsjó | Rósalína","description":"\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003eFalleg og létt-leikandi, ljós og birta, nýjasta tíska en með skýra skýrskotun í fortíðina. Hvaða litla stelpa átti ekki ponsjó hér á árum áður? Ég get svarað þessari spurningu játandi en ég átti heklað fjólublátt ponsjó með hvítum röndum sem móðir mín gerði fyrir mig og var ég svo sannarlega ánægð með mig þegar að ég klæddist þessari yndislegu flík. Lífið fer í hringi og nú er vinsælt að eiga slár og ponsjó af ýmsum tegundum og hér kemur dásamlegt heklað\u003cb\u003e Rósalínu\u003c\/b\u003e ponsjó, Pálínu-ponsjó, sem klæðist vel og passar við hvað sem er. Ponsjó er mjög þægilegur fatnaður, svo allt umvefjandi og notalegt, smart og vekur ávalt athygli. Pálínu-ponsjó hefur fallega litapallettu þar sem ljósi liturinn ræður för en fallegir lilla-bleikir litatónar í bland við mjúka brúna og drappaða setja fallegan svip á flíkina.\u003cspan style=\"mso-spacerun: yes;\"\u003e  \u003c\/span\u003ePálínu-ponsjó er flík sem hægt er að nota hvenær sem er, haust-vetur-vor og sumar þar sem auðvelt er að klæðast undir ponsjóið til dæmis í kaldara loftslagi og mjög smart er að nota ponsjóið sem peysu. Pálínu-ponsjó er einstakt eintak rétt eins og allar aðrar vörur\u003cspan style=\"mso-spacerun: yes;\"\u003e  \u003c\/span\u003e\u003cb\u003eRósalínu.\u003c\/b\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cb\u003eStærð\u003c\/b\u003e: Pálínu-ponsjó er í stærðinni \u003cb\u003eS-L\u003c\/b\u003e þar sem að allir ættu að geta notað það en lengsta síddin frá kraga er 92 sm.( fyrir utan kögur) og víddin er ca. 102 sm. Segja má að Pálínu-ponsjóið njóti sín sem best því stærra sem það er á eiganda sínum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cb\u003eEfni\u003c\/b\u003e: Garnið í Pálínu-ponsjói er, eins og svo oft áður, margskonar en að mestu akrylblandað ullargarn og ullargarn og mjúkt og notalegt “fluffy”garn m.a.\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cspan lang=\"IS\" style=\"mso-ansi-language: IS;\"\u003e\u003cstrong\u003eÞvottur:\u003c\/strong\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/span\u003e\u003cspan lang=\"IS\" style=\"mso-ansi-language: IS;\"\u003eMikilvægt er að meðhöndla hverja vöru frá \u003cstrong\u003eRósalínu \u003c\/strong\u003emeð mildi þar sem efnisval er fjölbreytt í hverri flík. Mælt er með vægum handþvotti og einnig að flíkin sé látin liggja og þorna en um leið formuð til svo að hún haldi sem best sínu upprunalegu útliti.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cb\u003e\u003cspan lang=\"IS\"\u003eSlow fashion - handverk sem tekur tíma\u003c\/span\u003e\u003c\/b\u003e\u003cspan lang=\"IS\"\u003e \u003cbr\u003eFlíkurnar frá \u003cb\u003eRósalínu\u003c\/b\u003e eru handunnar og aðeins til í einu eintaki.\u003cbr\u003eVegna þess að hver flík er unnin í höndunum geta komið fram smávægilegir breytileikar sem er \u003c\/span\u003e\u003cspan style=\"mso-ansi-language: EN-GB;\"\u003eeðlilegur hluti af handverkinu og gerir hverja flík einstaka.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Rósalína","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":67561051095288,"sku":"ROS-P044","price":52500.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0680\/9737\/6504\/files\/IMG_2412.jpg?v=1790952906","url":"https:\/\/sghandverk.is\/products\/palinu-ponsjo-rosalina","provider":"SG Handverk","version":"1.0","type":"link"}