{"product_id":"record-power-camvac-cgv336-4-defender-150-l-sponsogkerfi-vetrartilbod","title":"Record Power CamVac CGV336-4 og Defender 150 l spónsogkerfi | Vetrartilboð","description":"\u003cp\u003eÍ þessum pakka færðu \u003cstrong\u003eRecord Power CamVac CGV336-4 spónsugu og Defender 150 l forskilju\u003c\/strong\u003e, sem saman mynda öflugt og rúmgott spónsogkerfi fyrir trésmíðaverkstæði.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eSamanlagt viðmiðunarverð\u003c\/strong\u003e allra vara og fylgihluta í pakkanum er \u003cstrong\u003e157.700 kr.\u003c\/strong\u003e, séu hver hluti keyptur sérstaklega. \u003cstrong\u003eSérstakt vetrarpakkaverð\u003c\/strong\u003e er \u003cstrong\u003e147.400 kr.\u003c\/strong\u003e Miðað við \u003cstrong\u003esamanlagt viðmiðunarverð\u003c\/strong\u003e sparar þú \u003cstrong\u003e10.300 kr.\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eDefender-forskiljan\u003c\/strong\u003e safnar megninu af ryki og spæni áður en það berst í spónsuguna. Þannig eykst söfnunarrýmið, minna álag verður á síurnar og auðveldara er að tæma kerfið.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003ePakkinn inniheldur\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cul\u003e\n\u003cli\u003eRecord Power CamVac CGV336-4 spónsugu, 55 l\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eRecord Power Defender vegghengda forskilju, 150 l\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e2 m langan 100 mm sogbarka\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eDX100X Easy-Fit barkatengi\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eBayonet-tengi fyrir spónsuguna\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eTvö bayonet-tengi fyrir Defender-forskiljuna\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eVörulýsing\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eRecord Power CamVac CGV336-4\u003c\/strong\u003e er öflug 55 lítra spónsuga með tveimur 1.000 W mótorum og samanlagt allt að 108 l\/s loftflæði. Hún hentar vel fyrir trésmíðaverkstæði þar sem þörf er á miklu sogafli, fínni síun og rúmgóðu söfnunaríláti.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSpónsugan notar sérstakt hringstreymisinntak sem beinir ryki og spæni eftir hliðum söfnunarílátsins. Þannig helst úrgangurinn betur frá síum og mótorum, álag á síukerfið minnkar og rykið fellur niður í botn ílátsins.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞriggja þrepa síukerfið notar þvottanlegar tausíur ásamt pappírssíu og síar fínt ryk niður í 0,3 míkron. Þetta gerir spónsuguna hentuga fyrir almenna trésmíði og verkefni þar sem mikið fínt ryk myndast.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÚtblásturskerfi mótoranna er hannað til að draga úr hávaða. Með 63 mm útblástursbörkum, sem seldir eru sérstaklega, má beina mótorhljóði og útblásturslofti frá vinnusvæðinu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eDefender 150 l forskiljan\u003c\/strong\u003e er sett á milli trésmíðavélarinnar og CamVac-spónsugunnar. Hringstreymi skilur meginhluta ryks og spænis frá loftinu áður en það berst áfram í spónsuguna.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eForskiljan notar 150 lítra gegnsæjan söfnunarpoka sem auðvelt er að fylgjast með og tæma. Vegghengd uppsetning sparar gólfpláss og gerir kleift að staðsetja forskiljuna þar sem gott aðgengi er að henni.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eMeð því að sameina CGV336-4 og Defender 150 l fæst öflugt spónsogkerfi með miklu söfnunarrými, hreinni síum og færri stoppum vegna tæmingar og viðhalds.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eHelstu eiginleikar\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cul\u003e\n\u003cli\u003eTveir 1.000 W mótorar\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eAllt að 2.000 W samanlagt mótorafl\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eLoftflæði allt að 108 l\/s\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e55 lítra söfnunarílát í spónsugu\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e150 lítra söfnunarpoki í Defender-forskilju\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eÞriggja þrepa síun niður í 0,3 míkron\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eÞvottanlegar tausíur og pappírssía\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eHringstreymisinntak sem heldur ryki frá síum\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eForskilur ryk og spæni áður en loftið fer í spónsuguna\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eMinna álag á síur og lengri endingartími\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eFærri stopp vegna tæmingar\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eVegghengd og plásssparandi Defender-forskilja\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e100 mm bayonet-hraðtengingar\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eHljóðdempandi mótorútblástur\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eSveigjanleg uppsetning fyrir trésmíðaverkstæði\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eTæknilýsing\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cul\u003e\n\u003cli\u003eMótorafl: \u003cstrong\u003e2 × 1.000 W\u003c\/strong\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eSamanlagt mótorafl: \u003cstrong\u003e2.000 W\u003c\/strong\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eLoftflæði: \u003cstrong\u003e108 l\/s\u003c\/strong\u003e, eða um \u003cstrong\u003e389 m³\/klst.\u003c\/strong\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eRúmtak CamVac-söfnunaríláts: \u003cstrong\u003e55 lítrar\u003c\/strong\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eRúmtak Defender-söfnunarpoka: \u003cstrong\u003e150 lítrar\u003c\/strong\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eSíun: niður í \u003cstrong\u003e0,3 míkron\u003c\/strong\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eFjöldi síuþrepa: \u003cstrong\u003e3\u003c\/strong\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eÞvermál tenginga: \u003cstrong\u003e100 mm\u003c\/strong\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eStærð CGV336-4: \u003cstrong\u003e35,5 × 35,5 × 68 cm\u003c\/strong\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eÞyngd CGV336-4: \u003cstrong\u003e13 kg\u003c\/strong\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eUppsetning Defender: \u003cstrong\u003evegghengd\u003c\/strong\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eRafmagnstenging: \u003cstrong\u003eevrópskur tengill\u003c\/strong\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003ePakkningamál og sendingarþyngd\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003ePakkinn er afhentur í tveimur kössum:\u003c\/p\u003e\n\u003cul\u003e\n\u003cli\u003eCGV336-4: \u003cstrong\u003e41,5 × 41,5 × 84 cm\u003c\/strong\u003e, 16,3 kg\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eDefender 150 l: \u003cstrong\u003e41 × 41 × 105 cm\u003c\/strong\u003e, 9,56 kg\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eSamanlögð sendingarþyngd: \u003cstrong\u003e25,86 kg\u003c\/strong\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e\n\u003cp\u003eAthugið að eftir uppsetningu getur þurft viðbótar 100 mm sogbarka milli Defender-forskiljunnar og trésmíðavélarinnar. Lengd og útfærsla fer eftir staðsetningu búnaðarins og uppsetningu verkstæðisins.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eGólfstandur fyrir Defender-forskiljuna og útblástursbarkar til frekari hljóðlækkunar eru fáanleg sérstaklega.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eTilboðið gildir í takmarkaðan tíma og með fyrirvara um framboð. Pakkinn er pöntunarvara og áætlaður afhendingartími er staðfestur við pöntun.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e👉 \u003cem\u003eAf hverju Record Power?\u003c\/em\u003e \u003ca href=\"https:\/\/sghandverk.is\/pages\/af-hverju-record-power\"\u003e\u003cem\u003eLestu söguna okkar hér\u003c\/em\u003e\u003c\/a\u003e\u003cbr\u003e👉 \u003cem\u003eFrekari upplýsingar og tæknigögn má finna á\u003c\/em\u003e \u003ca href=\"https:\/\/www.recordpower.eu\/\"\u003e\u003cem\u003eheimasíðu Record Power Europe\u003c\/em\u003e\u003c\/a\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eRecord Power á Íslandi – pöntunarferli\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eSG Handverk\u003c\/strong\u003e er viðurkenndur \u003cstrong\u003esölu- og þjónustuaðili Record Power á Íslandi\u003c\/strong\u003e. Með sameiginlegum innflutningi tryggjum við hagstæðara verð og öruggan flutning.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eAthugið:\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eVerð á vefnum miðast við nýjasta verð frá Record Power, áætlaðan flutningskostnað og \u003cstrong\u003eUSD\/ISK-miðgengi Seðlabanka Íslands við síðustu verðuppfærslu\u003c\/strong\u003e.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003ePöntun er staðfest með \u003cstrong\u003e20% staðfestingargreiðslu samkvæmt proforma reikningi\u003c\/strong\u003e. Við greiðslu hennar \u003cstrong\u003efestist USD\/ISK-gengi pöntunar\u003c\/strong\u003e, sem gildir síðan fyrir lokareikning.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eStaðfestingargreiðsla gengur upp í heildarverð pöntunar og eftirstöðvar greiðast samkvæmt reikningi áður en vara er afhent.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e📦 \u003cstrong\u003eSjá nánari upplýsingar um pöntunar- og greiðslufyrirkomulag í fellilistanum „Pantanir og greiðslufyrirkomulag“ hér fyrir neðan.\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Record Power","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":50471617888504,"sku":"336-Def 150","price":147400.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0680\/9737\/6504\/files\/Defender_150L_Interceptor_and_CGV336-4.jpg?v=1788947929","url":"https:\/\/sghandverk.is\/products\/record-power-camvac-cgv336-4-defender-150-l-sponsogkerfi-vetrartilbod","provider":"SG Handverk","version":"1.0","type":"link"}