{"product_id":"rosalina-solin","title":"Sólin | Rósalína","description":"\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003eSólargeislarnir og guli liturinn eru tvenna sem nærir hverja sál, með sinni upplífgandi nærveru hverju sinni. Þessi Sólarinnar flík er einföld, hekluð peysa sem hægt er að klæðast í vetrarsól og ekki síst í sumarsólinni og eins þegar þurfa þykir. Sólin samanstendur af hekluðum ömmu-dúllum, svo einfalt er það en einfaldleikinn gefur oft mesta karakterinn eins og þessi peysa sannar svo vel. Hún er ljómandi falleg, svo glaðleg og eftirtektar verð í alla staði. Sólin passar við hvað sem er, kjóla, pils eða buxur en einnig er hún falleg við hvítt, svart eða bláan lit gallaefnisins en það er um að gera að þora að blanda saman flíkunum sínum og finna réttu samsettninguna svo að hægt sé að fanga réttu stemmninguna.\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cb\u003eStærð\u003c\/b\u003e: Sólin er í stærðinni \u003cb\u003eS-M\u003c\/b\u003e. Síddin frá öxl er 56 sm. ermalengd frá armkrika er 28 sm. og víddin á bol peysunnar er 55 sm. Sólin er annars frekar nett peysa með hálfum víðum ermum og er mjúk og þægilega létt og leikandi.\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cb\u003eEfni\u003c\/b\u003e: Sólin, eins og flestar flíkur Rósalínu, er búin til úr ýmsum garntegundum sem gefur flíkinni sinn sérstaka blæ og áferð. Í peysunni er að finna bómul, móher, léttar ullarblöndur og alpakka. Guli tónninn er allsráðandi í þessari fallegu peysu og hann skilar svo sannarlega sínu. Falleg peysa fyrir sumarið en virkar líka vel á öðrum árstíðum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cspan lang=\"IS\" style=\"mso-ansi-language: IS;\"\u003e\u003cstrong\u003eÞvottur:\u003c\/strong\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/span\u003e\u003cspan lang=\"IS\" style=\"mso-ansi-language: IS;\"\u003eMikilvægt er að meðhöndla hverja vöru frá \u003cstrong\u003eRósalínu \u003c\/strong\u003emeð mildi þar sem efnisval er fjölbreytt í hverri flík. Mælt er með vægum handþvotti og einnig að flíkin sé látin liggja og þorna en um leið formuð til svo að hún haldi sem best sínu upprunalegu útliti.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cb\u003e\u003cspan lang=\"IS\"\u003eSlow fashion - handverk sem tekur tíma\u003c\/span\u003e\u003c\/b\u003e\u003cspan lang=\"IS\"\u003e \u003cbr\u003eFlíkurnar frá \u003cb\u003eRósalínu\u003c\/b\u003e eru handunnar og aðeins til í einu eintaki.\u003cbr\u003eVegna þess að hver flík er unnin í höndunum geta komið fram smávægilegir breytileikar sem er \u003c\/span\u003e\u003cspan style=\"mso-ansi-language: EN-GB;\"\u003eeðlilegur hluti af handverkinu og gerir hverja flík einstaka.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Rósalína","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":49977940115704,"sku":"ROS-P041","price":44900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0680\/9737\/6504\/files\/Solin-4.jpg?v=1783949655","url":"https:\/\/sghandverk.is\/products\/rosalina-solin","provider":"SG Handverk","version":"1.0","type":"link"}