Að byrja í tré - rennismíði | SG Handverk

Rennibekkur að snúa viðarskál – byrjendaverkefni í rennismíði

Af hverju heillar rennismíði svona marga?

Rennismíði er eitt af því sem margir horfa á en miklu færri þora að prófa. Vélin snýst hratt, verkfærin virðast beitt og flestir halda að þetta sé flókið.

En þegar maður prófar í fyrsta sinn gerist eitthvað annað. Viðurinn byrjar sem einfalt viðarstykki en á örfáum mínútum mótast hann í hlut sem þú bjóst sjálfur til. Þú sérð efnið breytast beint fyrir framan þig – ekki hægt og hægt eins og í mörgu öðru handverki, heldur strax.

Þess vegna festast margir í rennismíði. Hún getur verið róandi og einbeitingarkrefjandi og það er ótrúlega ánægjulegt að sjá hluti verða til með eigin höndum.

Gott að vita

Þú þarft ekki stórt verkstæði eða mikla reynslu til að taka fyrstu skrefin. Stöðugur rennibekkur, nokkur grunnverkfæri, hentugt viðarstykki og örugg vinnubrögð nægja til að byrja.

Fyrstu skrefin í rennismíði – yfirlit

1. Byrjaðu einfalt

Veldu lítið og viðráðanlegt fyrsta verkefni sem gefur þér tækifæri til að kynnast vélinni.

2. Veldu rennibekk

Fyrsti bekkurinn þarf fyrst og fremst að vera stöðugur, öruggur og einfaldur í notkun.

3. Grunnverkfærin

Nokkur vel valin og beitt rennijárn duga til að læra grunntæknina og vinna fyrstu verkefnin.

4. Fyrsta verkefnið

Kertastjaki, handfang eða lítil skál getur verið hentugt verkefni til að sjá árangur fljótt.

5. Rétt stærð

Veldu vél eftir verkefnum og vinnurými – stærsti rennibekkurinn er ekki sjálfkrafa sá rétti.

6. Stöðugleiki

Traust undirstaða og stöðug vél auðvelda þér að læra og stuðla að öruggari vinnu.

7. Örugg vinnubrögð

Festu vinnustykkið rétt, notaðu viðeigandi hlífðarbúnað og byrjaðu alltaf á hæfilegum hraða.

8. Lærðu með æfingu

Byrjaðu rólega, æfðu grunnhreyfingarnar og byggðu síðan smám saman ofan á reynsluna.

Að byrja í rennismíði – nánari leiðbeiningar

Smelltu á viðeigandi kafla til að lesa nánar.

1. Hvað þarf í raun til að byrja?

Flestir halda að rennismíði krefjist mikils gólfpláss og reynslu. Í raun þarf furðu lítið til að komast af stað.

Það sem þarf er fyrst og fremst:

  • rennibekkur,
  • nokkur grunnverkfæri,
  • hentugt viðarstykki,
  • viðeigandi hlífðarbúnaður,
  • og smá forvitni.

Það kemur mörgum á óvart hversu fljótt hægt er að gera fyrsta hlutinn. Oft tekur það innan við klukkustund frá því að viðarbútur fer í bekkinn þar til eitthvað nothæft kemur út.

Þú sérð árangurinn strax – og vilt gjarnan prófa aftur.

2. Hvaða rennibekkur hentar byrjanda?

Flestir sem eru að byrja eru ekki að leita að stærstu vélinni heldur stöðugri, öruggri og einfaldri vél sem auðvelt er að læra á.

Fyrsti rennibekkurinn á ekki að vera óþarflega flókinn. Hann á að gera þér kleift að læra grunntæknina án þess að þú þurfir stöðugt að berjast við stillingar eða óstöðugleika.

Við valið þarf meðal annars að skoða:

  • hvaða verkefni þú vilt byrja á,
  • lengd milli odda,
  • sveiflu yfir beði,
  • snúningshraðasvið,
  • þyngd og stöðugleika,
  • og hversu mikið vinnupláss er í boði.
3. Hvaða verkfæri þarf?

Ekki er nauðsynlegt að kaupa stórt safn rennijárna strax í upphafi. Nokkur vel valin grunnverkfæri geta dugað fyrir fjölbreytt fyrstu verkefni.

Hvaða járn henta best fer eftir því hvort þú ætlar að byrja á rennslu milli odda eða skálarennslu. Mikilvægast er að verkfærin séu ætluð fyrir verkefnið, eggjarnar beittar og handföngin þægileg og örugg í notkun.

Beitt rennijárn þurfa minni þrýsting, skera hreinna og auðveldara er að stjórna þeim. Regluleg brýning er því mikilvægur hluti af rennismíði.

4. Veldu einfalt fyrsta verkefni

Fyrsta verkefnið ætti að vera lítið, einfalt og viðráðanlegt. Markmiðið er að kynnast vélinni, verkfærahvílunni og því hvernig rennijárnið sker viðinn.

Margir byrja á að renna:

  • kertastjaka,
  • verkfærahandföng,
  • tappa og aðra smáhluti,
  • litlar skálar,
  • eða einfaldar æfingar með mismunandi formum.

Veldu heillegt og hæfilega lítið viðarstykki. Byrjaðu með grunnum og stjórnuðum skurðum og einbeittu þér að því að ná góðri stjórn frekar en að ljúka flóknu verkefni.

5. Hvernig velur maður rétta stærð?

Þegar fólk fer að skoða rennibekki kemur yfirleitt sama spurningin: Hvaða stærð á ég að velja?

Margir halda að stærri bekkur sé alltaf betri. Í raun skiptir meira máli að vélin passi fyrirhuguðum verkefnum, vinnurýminu og þeim búnaði sem þú vilt nota.

Flestir byrja á minni skálum, kertastjökum, handföngum og öðrum smáum nytjahlutum. Þess vegna velja margir bekk sem er nægilega stöðugur til að vinna örugglega en ekki stærri en svo að hann passi í venjulegt bílskúrshorn eða vinnuaðstöðu heima.

Ef áhuginn beinist að stórum skálum eða löngum húsgagnafótum þarf hins vegar meira vinnusvið, meira afl og oft þyngri vél.

6. Stöðug vél auðveldar námið

Stöðugleiki skiptir miklu máli við rennismíði. Vel fest og traust vél titrar minna og auðveldara verður að stjórna verkfærunum.

Gakktu úr skugga um að rennibekkurinn standi stöðugur á traustum bekk eða undirstöðu. Athugaðu að festingar séu hertar og að nægt rými sé fyrir framan og í kringum vélina.

Óreglulegt eða ójafnvægt vinnustykki getur valdið titringi. Byrjaðu því alltaf á lágum snúningshraða og auktu hraðann aðeins þegar vinnustykkið hefur verið yfirfarið og fer að snúast jafnt.

7. Öryggi við fyrstu verkefnin

Lestu leiðbeiningar framleiðanda og kynntu þér stjórntæki rennibekksins áður en vélin er ræst.

  • Notaðu viðurkennd öryggisgleraugu eða andlitshlíf.
  • Festu vinnustykkið tryggilega og athugaðu festinguna áður en vélin er ræst.
  • Snúðu vinnustykkinu með höndunum áður en kveikt er á vélinni og staðfestu að það rekist hvergi í.
  • Stilltu verkfærahvíluna nálægt vinnustykkinu án þess að hún snerti það.
  • Fjarlægðu lykla og stilliverkfæri áður en vélin er gangsett.
  • Byrjaðu á lágum snúningshraða, sérstaklega með ójafnt vinnustykki.
  • Hafðu lausan fatnað, sítt hár og skartgripi frá snúningshlutum.
  • Stöðvaðu vélina áður en mælt er, stillt eða vinnustykkið skoðað.

Stattu örlítið til hliðar þegar vélin er ræst og byrjaðu ekki að vinna fyrr en ljóst er að vinnustykkið snýst stöðugt.

8. Lokatékk – ertu tilbúinn að byrja?

Áður en fyrsta verkefnið hefst skaltu athuga eftirfarandi:

  • Rennibekkurinn stendur stöðugur og allar festingar eru hertar.
  • Vinnustykkið er heillegt og tryggilega fest.
  • Vinnustykkið getur snúist óhindrað.
  • Verkfærahvílan er rétt staðsett og vel fest.
  • Rennijárnin eru beitt og henta verkefninu.
  • Réttur byrjunarhraði hefur verið valinn.
  • Augnhlífar eða andlitshlíf eru til staðar.
  • Þú veist hvar stöðva á vélina ef eitthvað óvænt gerist.

Byrjaðu rólega og leyfðu þér að læra. Með hverju verkefni eykst skilningurinn á viðnum, verkfærunum og vélinni.

Þegar grunnurinn er góður verður miklu auðveldara að þróa tæknina og takast síðar á við stærri og fjölbreyttari verkefni.

Tilbúinn að skoða rennibekki?

Skoðaðu úrval Record Power-rennibekkja og berðu saman stærð, vinnusvið og eiginleika vélanna.

Skoða rennibekki Aftur á fræðslusvæðið

Rykvarnir og heilsa á verkstæðinu

Fínt viðarryk getur haft áhrif á bæði heilsu og vinnuumhverfi. Í CamVac fræðslumiðstöð Record Power má finna upplýsingar um ryksöfnun, síun og val á réttu kerfi fyrir verkstæðið. Efnið er á ensku.

Skoða CamVac-fræðslu