Bandsagarblöð – fróðleikur og leiðbeiningar | SG Handverk

Bandsög að saga við – leiðbeiningar um val á bandsagarblöðum

Rétt bandsagarblað fyrir verkefnið

Rétt bandsagarblað skiptir miklu máli fyrir nákvæmni, öryggi og vinnugæði. Blað sem hentar einu verkefni getur verið rangt fyrir annað.

Valið ræðst meðal annars af því hvort saga á beint eða í boga, þykkt efnisins og hversu fínn skurðurinn á að vera. Breidd blaðsins, fjöldi tanna og ástand þess hafa mikil áhrif á niðurstöðuna.

Grunnreglan

Breiðara blað heldur yfirleitt betur beinni stefnu en mjórra blað hentar betur fyrir boga og hringskurð. Fjöldi tanna þarf jafnframt að passa við þykkt efnisins og þau skurðgæði sem óskað er eftir.

Val á bandsagarblaði – yfirlit

1. Byrjaðu á verkefninu

Ákveddu fyrst hvort saga á beint, í boga, þunnt efni eða þykkt vinnustykki.

2. Beinir skurðir

Breiðara blað er stöðugra og heldur yfirleitt betur beinni stefnu í lengri skurðum.

3. Bogar og hringskurður

Mjórra blað getur fylgt minni radíus og hentar því betur fyrir sveigða skurði.

4. Fjöldi tanna

Lágt TPI sagar hraðar í þykku efni en hátt TPI gefur yfirleitt fínni skurð í þynnra efni.

5. Uppbygging blaðsins

Breidd, þykkt, tennur og bil milli tanna ráða miklu um hvernig blaðið vinnur.

6. Blaðið dregur til hliðar

Rangt, slitið eða skemmt blað getur valdið því að sögin fylgi ekki lengur merktri línu.

7. Gæði og ástand

Vandað og beitt blað endist betur og stuðlar að hreinni og nákvæmari skurði.

8. Öryggi og lokatékk

Rétt blað þarf að vera rétt sett upp, spennt og stillt áður en sögun hefst.

Bandsagarblöð – nánari leiðbeiningar

Smelltu á viðeigandi kafla til að lesa nánar.

1. Hvernig vel ég bandsagarblað?

Val á bandsagarblaði fer fyrst og fremst eftir því hvað þú ætlar að saga.

Huga þarf að:

  • hvort saga á beint eða í boga,
  • þykkt vinnustykkisins,
  • breidd bandsagarblaðsins,
  • fjölda tanna á tommu,
  • þykkt og sveigjanleika blaðsins,
  • og hversu fínn skurðurinn á að vera.

Breiðara blað hentar yfirleitt betur fyrir langa og beina skurði. Mjórra blað getur fylgt minni radíus og hentar því betur fyrir boga og hringskurð.

Færri og stærri tennur losa sag betur úr þykku efni. Fleiri og smærri tennur henta betur fyrir þynnra efni og geta skilað fínni skurði.

2. Hvaða blað hentar til að saga beint?

Fyrir beina skurði hentar oft breiðara bandsagarblað betur. Breiðara blað er stífara til hliðanna, heldur stefnu betur og er stöðugra þegar sagað er í gegnum efnið.

Þetta getur verið góður kostur þegar saga á:

  • langar og beinar línur,
  • bretti eða borð eftir lengdinni,
  • þykk vinnustykki,
  • eða þegar endurtekningarhæfni og bein stefna skipta miklu máli.

Breitt blað ræður hins vegar illa við þrönga boga. Velja þarf breiddina með hliðsjón af verkefninu og þeirri blaðbreidd sem bandsögin er hönnuð fyrir.

Rétt stillt aðhald getur hjálpað við beina sögun, en góð uppsetning getur ekki bætt upp rangt, skemmt eða slitið blað.

3. Hvaða blað hentar fyrir boga og hringskurð?

Fyrir boga og hringskurð er yfirleitt betra að nota mjórra bandsagarblað. Mjórra blað er sveigjanlegra til hliðanna og á auðveldara með að fylgja beygjum.

Því minni sem radíusinn er, þeim mun mjórra þarf blaðið almennt að vera. Ef blaðið er of breitt verður það stíft og ræður illa við þröngan boga.

Ef reynt er að þvinga of breitt blað í of þröngan boga getur það:

  • farið út fyrir merkta skurðarlínu,
  • sett mikið álag á blaðið og tennurnar,
  • valdið ójöfnu sliti,
  • skekkt eða skemmt blaðið,
  • og gert síðari beina skurði ónákvæma.

Ekki snúa vinnustykkinu hraðar en blaðið nær að saga. Ef mikinn þrýsting þarf til að fylgja boganum er rétt að stöðva og athuga hvort blaðið sé of breitt eða bitlaust.

4. Fjöldi tanna – hvað þýðir TPI?

TPI stendur fyrir teeth per inch, eða fjölda tanna á hverri tommu bandsagarblaðsins.

Færri tennur – lágt TPI

  • Sagar yfirleitt hraðar.
  • Hentar betur fyrir þykkara efni.
  • Stærra bil milli tanna getur flutt meira sag úr skurðinum.
  • Skilur yfirleitt eftir grófara yfirborð.

Fleiri tennur – hátt TPI

  • Gefur yfirleitt fínni og sléttari skurð.
  • Hentar betur fyrir þynnra efni.
  • Sagar oft hægar.
  • Getur átt erfiðara með að losa sag úr mjög þykku efni.

Góð þumalputtaregla er að hafa að minnsta kosti þrjár tennur í snertingu við efnið á hverjum tíma. Ef of fáar tennur eru í efninu getur skurðurinn orðið grófur og höggkenndur. Ef of margar tennur eru í þykku efni getur sag safnast milli tannanna og aukið hita og mótstöðu.

5. Uppbygging bandsagarblaðs – hvað skiptir máli?

Bandsagarblað er einfalt í útliti en nokkur atriði hafa mikil áhrif á hvernig það hagar sér í sögun.

Tennur
Tennurnar skera efnið. Fjöldi þeirra, stærð, lögun og tannskipan hafa áhrif á skurðarhraða, yfirborð og hvernig blaðið losar sag úr skurðinum.

Bil milli tanna
Bilið tekur við sagi og spónum. Stærra bil hjálpar til við að flytja efni úr djúpum skurði þegar sagað er í þykkari við.

Breidd blaðsins
Breiddin hefur áhrif á stöðugleika og minnsta mögulega beygjuradíus. Breið blöð halda betur beinni línu en mjó blöð henta betur fyrir boga og hringskurð.

Þykkt blaðsins
Þykktin hefur áhrif á styrk og sveigjanleika blaðsins. Blaðið þarf að henta hjólastærð og gerð bandsagarinnar.

Tannskipan
Tennurnar eru yfirleitt lagðar lítillega til skiptis út til beggja hliða. Þannig verður skurðarrásin breiðari en sjálft blaðið og það getur farið greiðlega í gegnum efnið.

Notaðu aðeins blöð af þeirri lengd, breidd og þykkt sem framleiðandi bandsagarinnar mælir með.

6. Af hverju dregur bandsögin til hliðar?

Ef bandsögin fer að draga til hliðar eða vill ekki fylgja merktri línu er orsökin ekki alltaf stilling vélarinnar. Mjög oft þarf fyrst að skoða bandsagarblaðið.

Mögulegar orsakir eru meðal annars:

  • slitið eða bitlaust blað,
  • skemmdar eða ójafnt slitnar tennur,
  • rangt blað fyrir verkefnið,
  • of breitt blað í þröngum boga,
  • röng spenna á blaðinu,
  • rangar stillingar á blaðstýringum,
  • eða of mikil mötun og þrýstingur á vinnustykkið.

Raunverulegt dæmi:

Ef notað er 16 mm breitt blað í of þröngan hringskurð getur komið ójafnt álag á tennurnar. Þær geta þá slitnað meira öðrum megin og blaðið farið að draga til hliðar.

Eftir slíka notkun getur orðið mjög erfitt að saga beint með blaðinu. Þá þýðir lítið að endurstilla bandsögina aftur og aftur ef sjálft blaðið er orðið skemmt eða ójafnt slitið.

Byrjaðu því á að skoða blaðið, ganga úr skugga um að það henti verkefninu og athuga hvort það sagar enn jafnt. Að því loknu er hægt að yfirfara spennu, legu blaðsins á hjólunum og stillingar blaðstýringa samkvæmt leiðbeiningum framleiðanda.

7. Gæði, slit og hvenær þarf að skipta um blað?

Gæði bandsagarblaðs hafa áhrif á skurð, nákvæmni og endingu. Vandað blað með jöfnum tönnum og réttri tannskipan getur stuðlað að:

  • beinni og stöðugri skurði,
  • hreinna yfirborði,
  • jafnari vinnslu,
  • og lengri endingartíma.

Merki um að kominn geti verið tími til að skipta um bandsagarblað eru meðal annars:

  • þörf á meiri þrýstingi en áður,
  • blaðið dregur sífellt til hliðar,
  • skurðurinn verður grófur eða ójafn,
  • viðkvæmar brúnir rifna meira,
  • tönnum vantar eða þær eru skemmdar,
  • sprungur eða skemmdir sjást á blaðinu,
  • eða nákvæmni minnkar þrátt fyrir réttar stillingar.

Slitið eða skemmt blað gerir vinnuna erfiðari og getur aukið hættu við notkun. Það borgar sig því að hafa rétt blað fyrir verkefnið og skipta um það tímanlega.

8. Öryggi og lokatékk áður en sagað er

Aftengdu bandsögina frá rafmagni áður en skipt er um blað eða stillt er á blaðstýringum, hjólum eða öðrum búnaði.

Áður en sögun hefst skaltu athuga eftirfarandi:

  • Blaðið er af réttri lengd, breidd og þykkt fyrir bandsögina.
  • Blaðið hentar fyrirhuguðum skurði og þykkt efnisins.
  • Tennurnar snúa í rétta átt.
  • Blaðið situr rétt á hjólunum.
  • Spenna blaðsins er samkvæmt leiðbeiningum framleiðanda.
  • Blaðstýringar og baklegur eru rétt stillt.
  • Hlífar eru á sínum stað.
  • Efri blaðstýringin er stillt eins nálægt vinnustykkinu og verkefnið leyfir.
  • Vinnustykkið liggur stöðugt á borðinu.
  • Engar sprungur, skemmdar tennur eða aðrar sýnilegar skemmdir eru á blaðinu.

Notaðu viðeigandi augn- og heyrnarhlífar. Haltu höndum frá skurðarlínunni og notaðu ýtiprik eða annan viðeigandi hjálparbúnað þegar þess er þörf.

Ef blaðið gefur frá sér óvenjulegt hljóð, titrar, dregur mikið til hliðar eða virðist skemmt skal stöðva vélina og finna orsökina áður en vinnu er haldið áfram.

Fleiri leiðbeiningar og fræðsla

Við munum bæta reglulega við meiri fræðslu um bandsagarblöð, stillingar bandsaga og val á réttu blaði fyrir mismunandi verkefni.

Aftur á fræðslusvæðið

Rykvarnir og heilsa á verkstæðinu

Fínt viðarryk getur haft áhrif á bæði heilsu og vinnuumhverfi. Í CamVac fræðslumiðstöð Record Power má finna upplýsingar um ryksöfnun, síun og val á réttu kerfi fyrir verkstæðið. Efnið er á ensku.

Skoða CamVac-fræðslu