Rétt val á bor og snúningshraða – fræðsla og leiðbeiningar | SG Handverk
Rétt val á bor og snúningshraða
Gerð og stærð bors ásamt réttum snúningshraða hafa mikil áhrif á nákvæmni, yfirborð og öryggi við borun. Velja þarf bor eftir efninu og verkefninu og gæta þess að hann sé beittur, hreinn og óskemmdur.
Til eru fjölmargar gerðir bora fyrir tré, málm, stein og önnur efni. Hér er ekki fjallað um allar bortegundir heldur algenga bora sem nýtast í standborvélum við tré- og málmsmíði, ásamt helstu merkingum sem gott er að þekkja.
Algengar bortegundir fyrir trésmíði
Rétt lögun borsins skiptir ekki síður máli en stærð hans. Sumir borar eru hannaðir fyrir hrein og nákvæm göt, aðrir fyrir hraða borun, djúp göt eða stórt þvermál.
Trébor með miðjuoddi
Trébor með miðjuoddi hentar vel fyrir hrein og nákvæm göt í timbur og plötuefni. Miðjuoddurinn auðveldar staðsetningu og dregur úr því að borinn færist til þegar borun hefst.
Skurðarbrúnir við jaðar borsins skera viðartrefjarnar áður en efnið er fjarlægt úr miðju gatsins. Það getur skilað hreinni brún en hefðbundinn spíralbor, sérstaklega þegar borað er þvert á viðartrefjarnar.
Snigilbor
Snigilbor er ætlaður fyrir djúp göt í tré og flytur spæni vel upp úr gatinu. Fremst á mörgum snigilborum er skrúfulaga oddur sem dregur borinn inn í efnið.
Þessi sjálfmötun getur verið gagnleg en kallar á góða stjórn. Nota þarf hæfilegan snúningshraða og festa vinnustykkið tryggilega, sérstaklega þegar borinn er stór eða efnið þykkt.
Spaðabor
Spaðabor er einföld og hagkvæm gerð bors fyrir stærri göt í tré. Hann vinnur hratt og nýtist vel þegar frágangur gatsins þarf ekki að vera jafn vandaður og þegar sponsbor er notaður.
Spaðabor getur rifið viðartrefjarnar þegar hann kemur út úr efninu. Undirlagsstykki undir vinnustykkinu getur dregið úr slíkri rifnun og skilað hreinni útgöngubrún.
Sponsbor – Forstnerbor
Sponsbor, einnig þekktur sem Forstnerbor, hentar fyrir hrein og nákvæm göt í tré. Hann getur borað göt með flötum botni og er því mikið notaður við húsgagnasmíði og aðra nákvæmisvinnu.
Sponsbor getur einnig borað göt sem skarast eða liggja nálægt brún vinnustykkis, þar sem skurðarbrún hans stýrir bornum betur en miðjuoddur einn og sér.
Stórir sponsborar fjarlægja mikið efni og þurfa því yfirleitt lægri snúningshraða en grannir tréborar.
Lamabor
Lamabor er sérhæfð gerð bors fyrir göt undir lamir, meðal annars innfelldar skápalamir. Algeng stærð er 35 mm, en ávallt þarf að velja stærð og bordýpt eftir þeirri löm sem nota á.
Lamabor er náskyldur sponsbor og er hannaður til að gera hreint og nákvæmt gat með flötum botni. Dýptarstilling standborvélar getur verið sérstaklega gagnleg þegar gera þarf mörg eins göt fyrir lamir. Oft er hægt að nota sponsbor í staðinnn fyrir lamabor.
Holusög eða dósabor
Holusög, oft einnig kölluð dósabor, er notuð til að gera stór göt í tré, plötuefni, málm og fleiri efni. Hún fjarlægir aðeins efnið við jaðar gatsins í stað þess að vinna burt allt þvermálið.
Í miðju holusagarinnar er yfirleitt stýribor sem heldur henni á réttum stað þegar borun hefst. Velja þarf tennur og gerð holusagar eftir því efni sem bora á í.
Stórt þvermál kallar á sérstaka aðgát
Eftir því sem þvermál holusagarinnar eykst verður snúningsvægið sem myndast við borun meira. Ef tennurnar grípa skyndilega í efnið eða þær festast í skurðinum getur handborvélin snúist harkalega í gagnstæða átt.
Slíkt bakslag getur snúið upp á úlnlið eða handlegg og valdið alvarlegum meiðslum. Hættan eykst þegar notuð er öflug borvél, stór holusög eða þegar vinnustaðan er óstöðug.
Þegar stór holusög er notuð með handborvél þarf að:
- Ganga úr skugga um að vélin sé ætluð fyrir þvermál holusagarinnar.
- Nota lágan gír og hæfilegan snúningshraða.
- Nota hliðarhandfang ef vélin er búin þannig búnaði.
- Halda vélinni tryggilega með báðum höndum.
- Standa stöðugt og gera ráð fyrir mögulegu bakslagi.
- Forðast að hafa hendur eða aðra líkamshluta þar sem vélin getur kastast til.
- Beita léttum þrýstingi þegar tennurnar byrja að skera.
- Stöðva vélina strax ef holusögin festist.
Sumar nýrri handborvélar eru með rafræna bakslagsvörn sem getur stöðvað mótorinn ef borinn festist og vélin byrjar að snúast skyndilega. Slíkur búnaður dregur úr hættu á meiðslum en kemur ekki í stað réttra vinnubragða.
Kostir standborvélar með stórum holusögum
Standborvél getur verið mun betri kostur þegar stór holusög er notuð í vinnustykki sem hægt er að koma fyrir á borði vélarinnar og festa þar. Vélarhausinn og spindillinn eru fastir og notandinn þarf því ekki að halda á vélinni gegn snúningsvæginu.
Standborvélin býður einnig upp á:
- Stöðugri og lóðréttari borun.
- Betri stjórn á mötun holusagarinnar.
- Nákvæmari staðsetningu gatsins.
- Auðveldari stillingu á lágum snúningshraða.
- Minni hættu á að borvélin snúist upp á hönd eða handlegg.
Standborvélin fjarlægir þó ekki hættuna. Snúningskrafturinn flyst yfir í vinnustykkið og ef það er ekki fest getur það snúist harkalega eða kastast til.
Vinnustykkið verður því alltaf að vera fest tryggilega við borðið með þvingum, vélarskrúfstykki eða öðrum hentugum festingum. Ekki má reyna að halda því eingöngu með höndunum.
Vandaðu borunina
Nota þarf lágan snúningshraða, sérstaklega þegar þvermál holusagarinnar er mikið. Byrjaðu með léttum og jöfnum þrýstingi þar til tennurnar hafa myndað stöðuga skurðrás.
Lyftu holusöginni reglulega til að losa spæni, kæla tennurnar og koma í veg fyrir að skurðrásin fyllist. Við borun í málm getur þurft viðeigandi skurðarolíu eða kælivökva.
Þegar borað er í gegnum tré getur undirlagsstykki dregið úr rifnun þegar stýriborinn og tennurnar koma út hinum megin. Önnur aðferð er að bora þar til stýriborinn kemur í gegn og ljúka síðan gatinu frá gagnstæðri hlið, ef vinnustykkið og verkefnið leyfa.
Ef holusögin festist skal stöðva vélina og bíða þar til allt hefur stöðvast áður en reynt er að losa hana. Ekki skal ræsa vélina aftur meðan holusögin situr föst í skurðinum.
Ef fjarlægja þarf efnisbút sem hefur fest inni í holusöginni skal fyrst stöðva vélina að fullu og taka hana úr sambandi við rafmagn. Ef um rafhlöðuvél er að ræða skal fjarlægja rafhlöðuna. Ekki skal reyna að losa efnið meðan vélin er tengd eða með fingrunum nálægt beittum tönnum holusagarinnar. Notaðu hentugt verkfæri og fylgdu leiðbeiningum framleiðanda.
Úrsnari
Úrsnari er notaður til að víkka efsta hluta gatsins svo skrúfuhaus geti setið sléttur við eða undir yfirborði efnisins.
Hann má nota eftir að gat hefur verið borað eða sem hluta af samsettu bor- og úrsnaraverkfæri. Slík samsett verkfæri geta borað fyrir skrúfunni og úrsnarað fyrir skrúfuhausnum í sömu aðgerð.
Of mikill hraði eða þrýstingur getur gert úrsnarað sæti ójafnt. Best er að vinna rólega og stöðva reglulega til að kanna dýptina.
Borun í málm
Standborvél hentar mjög vel til borunar í málm þar sem hún heldur bornum stöðugum og auðveldar stjórn á snúningshraða, þrýstingi og staðsetningu gatsins.
Algengir spíralborar fyrir málm eru fáanlegir í mörgum útfærslum. Efni borsins, lögun oddsins og framleiðslugæði hafa áhrif á hvaða málma hann ræður við og hversu lengi hann heldur biti.
Við borun í málm er mikilvægt að:
- Merkja staðsetningu gatsins nákvæmlega.
- Nota miðjukorn til að mynda litla dæld og draga úr því að borinn færist til.
- Festa vinnustykkið í vélarskrúfstykki eða með hentugum þvingum.
- Velja bor sem hentar málmtegundinni.
- Nota lægri snúningshraða eftir því sem borinn verður stærri eða efnið harðara.
- Beita stöðugum og hæfilegum þrýstingi.
- Nota viðeigandi skurðarolíu eða kælivökva þegar þess er þörf.
- Lyfta bornum reglulega úr djúpum götum til að losa spæni og draga úr hitamyndun.
- Fjarlægja málmspæni með bursta þegar vélin hefur stöðvast.
Málmstykki má aldrei halda eingöngu með höndunum við borun. Ef borinn grípur í efnið getur vinnustykkið snúist skyndilega og af miklu afli.
Þrepabor
Þrepabor er keilulaga bor með nokkrum þrepum sem hvert um sig gefur ákveðið gatþvermál. Hann er einkum notaður til að stækka göt eða bora mismunandi gatastærðir í þunnt málm- og plötuefni.
Þrepabor getur gert hreint gat án þess að skipta þurfi oft um bor. Mikilvægt er að fylgjast vel með dýptinni svo ekki sé borað niður á næsta þrep og gatið gert stærra en ætlað var.
Hann hentar síður fyrir mjög þykkt efni þar sem hvert þrep hefur takmarkaða vinnslulengd.
Steinbor
Steinborar eru ætlaðir fyrir múrverk, múrsteina, stein og steinsteypu. Þeir eru oft með harðmálms- eða karbítoddi og margir þeirra eru hannaðir til notkunar með höggi.
Venjuleg standborvél er almennt ekki höggborvél. Þess vegna eru steinborar og borun í steinsteypu ekki meginnotkunarsvið hennar. Fylgja skal leiðbeiningum framleiðanda bæði vélarinnar og borsins og nota verkfæri sem hentar efninu.
HSS, kóbalt og karbít – hvað merkja heitin?
HSS, kóbalt og karbít lýsa fyrst og fremst efni borsins eða skurðarhluta hans. Heitin segja ekki ein og sér til um lögun borsins, festingu hans eða nákvæmlega hvaða efni hann er ætlaður fyrir.
Lögun, oddur, skurðarhorn og leiðbeiningar framleiðanda skipta einnig máli.
HSS – háhraðastál
HSS er skammstöfun fyrir „High-Speed Steel“ eða háhraðastál. HSS-borar eru algengir við almenna borun í stál, ál, aðra málma og ýmis fleiri efni.
HSS-bor er góður almennur kostur þegar hann er notaður við réttan snúningshraða og með hæfilegum þrýstingi. HSS-merkingin ein segir þó ekki allt um gæði borsins eða hvaða efni hann ræður best við.
Á borum geta einnig sést merkingar eins og HSS-G. Stafurinn G vísar þá yfirleitt til þess að borinn hafi verið slípaður í nákvæmt form í stað þess að vera eingöngu valsaður eða mótaður með einfaldari framleiðsluaðferð.
HSS-Co – kóbaltblandað háhraðastál
Kóbaltborar eru HSS-borar þar sem kóbalti hefur verið bætt í stálblönduna. Þeir eru oft merktir HSS-Co.
Kóbaltblandan eykur hita- og slitþol borsins. Slíkir borar henta því vel fyrir ryðfrítt stál og aðra málma sem geta verið krefjandi í borun.
Kóbaltborar eru yfirleitt harðari en venjulegir HSS-borar en geta jafnframt verið viðkvæmari fyrir hliðarálagi og skekkju. Stöðug festing vinnustykkis og nákvæm mötun eru því mikilvæg.
Kóbaltbor nýtist best þegar réttur snúningshraði, stöðugur þrýstingur og viðeigandi skurðarolía eru notuð.
Karbít eða harðmálmur
Karbít er mjög hart og slitsterkt skurðarefni. Það er oft notað í odda eða skurðarbrúnir bora frekar en að allur borinn sé gerður úr karbíti.
Karbít kemur meðal annars fyrir í borum fyrir:
- Steinsteypu og múrverk.
- Flísar og steinefni.
- Harða málma.
- Plötuefni og timbur.
- Lamabor og önnur sérhæfð skurðarverkfæri.
Lögun og hönnun borsins ræður alltaf hvaða efni hann er ætlaður fyrir. Karbítmerkingin ein og sér nægir því ekki til að ákvarða notkunina.
Karbít er mjög hart en getur verið stökkt. Forðast þarf skekkju, högg eða hliðarálag sem getur skemmt skurðarbrúnina.
Hvað er SDS?
SDS er ekki gerð stáls eða skurðarefnis heldur sérstakt festikerfi á legg borsins. Raufar í leggnum læsast í þar til gerða SDS-borpatrónu og leyfa jafnframt þá hreyfingu sem höggbúnaður vélarinnar þarf.
Algengustu kerfin eru:
- SDS-plus fyrir minni og meðalstórar höggborvélar og borhamra.
- SDS-max fyrir stærri og öflugri borhamra.
SDS-kerfið er einkum notað við borun í steinsteypu og múrverk. Til eru þó einnig SDS-borar fyrir málm og tré.
SDS-merkingin segir fyrst og fremst hvernig borinn tengist vélinni en ekki hvaða efni hann er ætlaður fyrir.
SDS-bor passar almennt ekki beint í hefðbundna þriggja kjálka borpatrónu standborvélar. Velja þarf bor með legg sem passar í patr ónuna eða nota aðeins viðurkennda og viðeigandi millistykki samkvæmt leiðbeiningum framleiðanda.
Borun í rennibekk
Einnig er hægt að bora í vinnustykki í rennibekk. Þá er borinn yfirleitt festur í borpatrónu í mótstokknum en vinnustykkið snýst í rennibekknum.
Þessi aðferð er meðal annars notuð til að gera miðlæg göt eftir endilöngu vinnustykki. Nota má mismunandi bora eftir verkefninu, til dæmis miðjubor, spíralbor eða sponsbor.
Við djúp göt þarf að draga borinn reglulega út til að losa spæni og draga úr hitamyndun. Vinnustykkið verður að vera rétt og tryggilega fest og borpatrónan þarf að passa við keilu mótstokksins.
Borun í rennibekk er sérstakt viðfangsefni og fylgja skal leiðbeiningum framleiðanda rennibekksins og þess búnaðar sem notaður er.
Réttur snúningshraði
Almenna reglan er að því stærri sem borinn er, þeim mun lægri á snúningshraðinn að vera. Minni borar geta yfirleitt snúist hraðar en stórir sponsborar, spaðaborar og holusagir.
Snúningshraðinn ræðst meðal annars af:
- Gerð og þvermáli bors.
- Efninu sem borað er í.
- Hörku efnisins.
- Dýpt gatsins.
- Efni og gerð borsins.
- Afli og getu vélarinnar.
- Notkun skurðarolíu eða kælingar.
Ef hraðinn er of mikill getur borinn hitnað, misst bit, brennt viðinn eða skemmt yfirborð vinnustykkisins. Við málmborun getur of mikill hiti einnig dregið verulega úr endingu borsins.
Of lítill hraði ásamt of miklum þrýstingi getur valdið ójafnri borun og aukið álag á bor, mótor og drifbúnað vélarinnar.
Fylgja skal hraðatöflu vélarinnar og ráðleggingum framleiðanda borsins. Ef vafi leikur á er öruggara að byrja á lægri hraða og fylgjast með því hvernig borinn vinnur.
Vandaðu vinnubrögðin
Merktu miðju gatsins nákvæmlega áður en borun hefst. Við nákvæmisvinnu getur verið gagnlegt að nota stýrilínu, miðjukorn eða annað merkingarverkfæri eftir því hvaða efni er unnið.
Festu vinnustykkið tryggilega. Notaðu þvingur, vélarskrúfstykki, stoppara eða aðrar viðeigandi festingar. Sívalt vinnustykki þarf sérstakan stuðning, til dæmis V-laga undirlag, svo það geti ekki snúist eða færst til.
Notaðu undirlagsstykki þegar borað er í gegnum tré. Það styður við trefjarnar þegar borinn kemur út hinum megin og dregur úr hættu á að yfirborðið rifni.
Við djúp göt er gott að lyfta bornum reglulega til að losa spæni og hleypa hita frá skurðarbrúnunum.
Beittu jöfnum og hóflegum þrýstingi. Ekki þvinga bitlausan bor í gegnum efnið. Ef borun gengur illa skal stöðva vélina og kanna skerpu borsins, snúningshraða og festingu vinnustykkisins.
Örugg notkun standborvélar
Notaðu ávallt viðeigandi augnhlífar. Spænir úr tré og málmi geta kastast frá bornum, sérstaklega þegar borinn kemur út úr efninu eða grípur í vinnustykkið.
Ekki nota hanska, lausan fatnað, skartgripi eða annað sem getur flækst í bornum eða öðrum hlutum vélarinnar sem snúast. Sítt hár þarf að festa tryggilega.
Gættu þess að lykill borpatrónunnar hafi verið fjarlægður áður en vélin er ræst.
Stilltu borð, dýptarstoppara, hraða og hlífar áður en vélin er sett í gang. Stöðvaðu vélina og aftengdu hana frá rafmagni áður en skipt er um bor eða átt er við drifbúnað hennar.
Fjarlægðu aldrei spæni með fingrunum meðan vélin gengur. Bíddu þar til hún hefur stöðvast og notaðu bursta eða annað hentugt verkfæri.
Réttur bor, réttur snúningshraði, trygg festing og vönduð vinnubrögð skila hreinni götum, meiri nákvæmni og öruggari vinnu.
Rykvarnir og heilsa á verkstæðinu
Fínt viðarryk getur haft áhrif á bæði heilsu og vinnuumhverfi. Í CamVac fræðslumiðstöð Record Power má finna upplýsingar um ryksöfnun, síun og val á réttu kerfi fyrir verkstæðið. Efnið er á ensku.