Hreinna loft og öruggara verkstæði
Hér finnur þú íslenskar leiðbeiningar um ryksugur, spónsugur, loftsíun, barkar og tengingar. Markmiðið er að hjálpa þér að velja rétta lausn, draga úr ryki og skapa hreinna og öruggara vinnuumhverfi.
Fræðsla um rykvarnir
-
Viðhald og síur í CamVac
Sjá nánar hérReglulegt viðhald síanna hjálpar til við að viðhalda góðu loftflæði og draga úr óþarfa álagi á mótorana.
Íslenskar leiðbeiningar um pappafiltera, taufiltera og tromlusíur í CamVac, ásamt ráðleggingum um viðhald og hreinsun. -
Ryksuga, spónsuga eða loftsía?
Sjá nánar hérRyksugur, spónsugur og loftsíur sinna ólíkum hlutverkum. Hér færðu skýra yfirsýn og hjálp við að velja lausn sem hentar vélunum, rýminu og verkefnunum þínum.
-
Barkar, tengingar og loftflæði
Sjá nánar hérRétt þvermál, stuttir barkar og góðar tengingar skipta miklu máli. Hér lærir þú að draga úr loftmótstöðu og fá betri nýtingu úr ryksugunni eða spónsugunni.
Rykvarnir og heilsa á verkstæðinu
Fínt viðarryk getur haft áhrif á bæði heilsu og vinnuumhverfi. Í CamVac-fræðslumiðstöð Record Power má finna upplýsingar um ryksöfnun, síun og val á réttu kerfi fyrir verkstæðið. Efnið er á ensku.
Aðstoð við uppsetningu ryksogskerfis
Við aðstoðum þig við að gera tillögu að lagnaleið út frá vélum, staðsetningu þeirra og aðstæðum á verkstæðinu.
Algengar spurningar um sogkerfi og lofthreinsun
Af hverju er sogkerfi mikilvægt?
Við sögun, slípun og aðra vinnslu á við myndast fínt ryk sem fer út í loftið og getur borist djúpt niður í lungun.
Langvarandi útsetning fyrir viðarryki getur haft áhrif á heilsuna. Því er mikilvægt að fanga rykið sem næst upptökum þess.
Gott sogkerfi hjálpar einnig til við að halda verkstæðinu hreinna og vinnuumhverfinu öruggara.
Hver er munurinn á sogkerfi og lofthreinsara?
Sogkerfi tengist beint við vélina og fangar ryk og spón við upptök á meðan unnið er.
Lofthreinsari hreinsar loftið í verkstæðinu og fangar fínt ryk sem sogkerfið nær ekki og svífur áfram í loftinu.
Besti árangurinn fæst yfirleitt með því að nota hvort tveggja: sogkerfi við vélina og lofthreinsara fyrir rýmið.
Hvað gerist ef ég er ekki með sogkerfi?
Ryk safnast upp í loftinu og á yfirborðum og getur haft neikvæð áhrif á öndun, loftgæði og almennt vinnuumhverfi.
Rykið getur einnig borist inn í vélar og haft áhrif á endingu þeirra, virkni og nákvæmni.
Fínt viðarryk getur auk þess verið eldfimt þegar það safnast upp í miklu magni. Góð ryksöfnun og regluleg þrif draga því bæði úr heilsufarsáhættu og eldhættu.
Hvaða sogkerfi hentar mér?
Rétt sogkerfi ræðst meðal annars af vélunum sem þú notar, magni og gerð ryksins, stærð verkstæðisins og því hvort kerfið á að tengjast einni vél eða fleiri.
CamVac-sogkerfi frá Record Power henta vel á litlum og meðalstórum verkstæðum. Þau eru nett, öflug og fáanleg með mismunandi fjölda mótora og ílátastærðum.
Við aðstoðum þig gjarnan við að velja rétta vél, barka, tengingar og fylgihluti fyrir þína aðstöðu.
👉 Skoða sogkerfi
Lofthreinsari – þarf ég það líka?
Já, sérstaklega ef unnið er mikið við slípun eða aðra vinnslu sem myndar fínt ryk.
Lofthreinsari fangar rykagnir sem sogkerfið nær ekki við upptök og svífa áfram í loftinu. Hann kemur þó ekki í stað sogkerfis við vélina heldur er mikilvæg viðbót við góða ryksöfnun.
Saman bæta sogkerfi og lofthreinsari loftgæði og skapa hreinna og öruggara vinnuumhverfi.
👉 Skoða lofthreinsara