Sogkerfi og lofthreinsun – fróðleikur og leiðbeiningar | SG Handverk

↺ Endurstilla síðu

Við trésmíði myndast fínt ryk sem sést oft ekki með berum augum – en getur haft veruleg áhrif á heilsu, vinnuumhverfi og tæki.

Gott sogkerfi og lofthreinsun er ekki lúxus heldur nauðsyn fyrir alla sem vinna með við – hvort sem það er í hobby verkstæði eða stærri aðstöðu.

Smelltu á kaflana hér fyrir neðan til að opna leiðbeiningar.

Sogkerfi og lofthreinsun

Af hverju er sogkerfi mikilvægt?

Við sögun, slípun og vinnslu á við myndast fínt ryk sem fer í loftið og getur borist djúpt niður í lungun.

Langvarandi útsetning getur haft áhrif á heilsu og því er mikilvægt að fjarlægja rykið strax við upptök.

Sogkerfi hjálpar einnig til við að halda verkstæðinu hreinu og öruggu.

Hver er munurinn á sogkerfi og lofthreinsara?

Sogkerfi (dust extractor) tengist beint við vél og dregur ryk og spón í burtu við vinnu.

Lofthreinsari (air filter) hreinsar loftið í rýminu og fangar fínt ryk sem svífur eftir í loftinu.

Besti árangurinn fæst með því að nota bæði.

Hvað gerist ef ég er ekki með sogkerfi?

Ryk safnast upp í lofti og á yfirborðum, sem getur haft áhrif á öndun og vinnuumhverfi.

Það getur einnig farið inn í vélar og haft áhrif á ending og nákvæmni þeirra.

Í sumum tilfellum getur fínt ryk jafnvel verið eldfimt í miklu magni.

Hvaða sogkerfi hentar mér?

Fyrir hobby verkstæði eru CamVac sogkerfi frá Record Power mjög vinsæl vegna þess að þau eru kraftmikil, nett og auðveld í notkun.

Val fer eftir því hvaða vélar þú notar og hversu mikið ryk myndast.

👉 Skoða sogkerfi sem henta þér

Lofthreinsari – þarf ég það líka?

Já, sérstaklega ef þú vinnur mikið með slípun eða fínt ryk.

Lofthreinsari nær ryki sem sogkerfið missir og bætir loftgæði í verkstæðinu verulega.

👉 Skoða lofthreinsara

Við munum bæta reglulega við fræðslu um sogkerfi, uppsetningar og val á búnaði eftir því sem fleiri spurningar koma upp.