Um Rósalínu

Rósalína

Lífið er yndislegt og færir okkur óendanleg tækifæri til að njóta og gleðjast.

Í náttúrunni blasir við okkur ósnortin fegurð í formi og lit þar sem breytileiki birtu færir okkur margvíslega tilbreytingu svo að upplifunin verður ætíð einstök og einlæg. Segja má að í fegurð náttúrunnar spretti upp hugmyndir og ýti undir frjóa hugsun hvers manns. Fallegt og gefandi umhverfi er hverri mannveru nauðsynlegt, í raun jafnvel lífsnauðsynlegt til að vaxa og dafna á sem heilbrigðastan máta. Hver og einn hlúir að sínu nærumhverfi, ræktar garðinn sinn svo að lífsins blómið fái þá næringu og hvatningu sem þörf er á.

Öll erum við einstök með mismunandi lífsins gildi og langanir.

Hjá Rósalínu erum við meðvituð um fjölbreytileika lífsins í formi lita og fegurðar og notum alla liti regnbogans sem gleðja okkur og hvetja áfram í allri hönnun okkar og framsettningu. Segja má að þetta lífsviðhorf hafi alla tíð einkennt sjálfa mig og mætti án nokkurs vafa kalla mig sjálfmenntaðan „hönnuð vörulínunnar“, enda hefur það verið sannkölluð ástríða mín svo lengi sem  ég man eftir mér að hanna og skapa fallegar flíkur ásamt ýmsu öðru sem prýða mætti heimilið mitt þá og nú. Ég varð snemma hugfangin að litafegurð blómabeða æskuheimilisins þar sem grænu fingur móður minnar fengu að njóta sín. Náttúran og allt blómahafið hefur verið mér mikil hvatning þannig að sköpunarþráin á sér engin takmörk hvorki í hönnun né vali á litum.

Ég er geðhjúkrunarfræðingur og starfaði  á sjúkrahúsi Akureyrar til fjölda ára en söðlaði um sumarið 2023 er ég sagði starfi mínu lausu til að leggja alla áherslu á ástríðu mína sem er hönnun og hverskyns handverk. Ég lærði snemma að hekla og síðar í grunnskóla að prjóna og hef ég í raun verið haldin óstöðvandi ástríðu síðan. Segja má að ég hafi fengið áhugann með móðurmjólkinni þar sem móðir mín, var mikil hannyrðakona og eins og komið hefur fram, ræktaði hún garðinn sinn með fallegum litríkum blómum sem hafði mikil áhrif á mótun og þroska minn sem barns.

Eins og gengur og gerist hefur áhugi minn á handavinnu verið hingað til mitt aðal áhugamál og eru þær ófáar flíkurnar sem ég hef hannað og heklað eða prjónað og hafa vakið töluverða eftirtekt. Í gegnum tíðina hafa margir veitt hönnun minni og handverki mikla athygli og hef ég oft fengið hvattningu til að  „gera eitthvað meira með þetta“. Hef ég einnig margsinnis verið stoppuð á förnum vegi þar sem óþekktur vegfarandi hefur dáðst að heima hannaðri flíkinni minni. Þetta hefur auðvitað verið mér mikil hvattning og það veitti mér m.a. kjarkinn til að taka stökkið og fara lengra með „áhugamálið“! Rósalína er núna mín ástríða og á alla mína athygli. En á bak við alla góða og áhugaverða starfsemi er teymi sem stendur þétt saman og tekur sameiginlegar ákvarðanir fyrirtækinu til heilla og er það einnig með Rósalínu.

Nú fer fyrir sjónir ykkar fyrsta hönnunarlína Rósalínu og tókum við þá ákvörðun að hún yrði hekluð. Heklaðar peysur eru fallegar og nokkuð sérstakar þar sem í heiðri er haft svo kallað „ömmu dúllu teppi“. En Rósalína mun einnig, er fram líða stundir, bjóða upp á prjónaðar hönnunarflíkur og ýmislegt fleira. Framtíðin er spennandi og við hjá Rósalínu vonum að vörurnar okkar muni vekja eftirtekt og áhuga hjá sem flestum.

Að lifa er að njóta og að njóta er m.a. að leyfa fallegri og hlýlegri flík að umvefja sig og næra lífsins anda. Lífið er of stutt til þess að neita sér þeirri gleði og ánægju sem fylgir auknu sjálftrausti þegar borin er einstök flík í fallegum litum. Lifið og njótið!

Rósalína
Fegurð í litum
Hönnun og handverk