Veldu réttan rennibekk | Record Power | SG Handverk
Record Power býður upp á fjölbreytt úrval rennibekkja fyrir bæði byrjendur og reynda rennismiði. Hér fyrir neðan má sjá helstu rennibekki og fyrir hvaða verkefni þeir henta best.
Record Power DML250 -
Mjög góð byrjenda vél
DML250 er einfaldur og áreiðanlegur rennibekkur sem hentar vel fyrir fyrstu skrefin í rennismíði. Hann er vinsæll fyrir penna, minni skálar og spindle verkefni.
Hentar vel fyrir:
- Penna
- Minni skálar
- Byrjendur í rennismíði
Record Power Pathfinder -
Fyrir fjölbreytt verkefni og heimaverkstæði
Pathfinder er öflugur millistærðar rennibekkur með rafeindastýrðum hraða og viðhaldsminni brushless mótor. Hann hentar sérstaklega vel fyrir fjölbreytt verkefni og heimaverkstæði og býður upp á mikla getu og stöðugleika á hagstæðu verði..
Hentar vel fyrir:
- Skálar
- Skaft og spindle verkefni
- Alhliða rennismíði
Record Power Herald -
Fyrir reyndari rennismiði og stærri verkefni
Herald er stærri og kraftmeiri rennibekkur sem hentar fyrir reynda rennismiði og
stærri verkefni.
Hentar vel fyrir:
- Stærri skálar
- Lengri verkefni
- Mikla notkun


