Pöntunarferli Record Power véla | SG Handverk
Hvernig virka safnpantanir Record Power?
SG Handverk býður upp á sameiginlegar pantanir á Record Power-vélum og fylgihlutum til Íslands. Með því að sameina pantanir getum við nýtt flutningana betur, haldið kostnaði niðri og boðið hagstæðara verð.
Þú getur óskað eftir vöru án þess að greiða strax. Við óskum ekki eftir 20% staðfestingargreiðslu fyrr en stutt er í að sameiginlega pöntunin fari til Record Power.
Stefnt er að komu vörunnar til Íslands um 30 dögum eftir að safnpöntunin er send til Record Power.
Svona fer pöntunarferlið fram
Þú hefur samband og óskar eftir Record Power-vél eða fylgihlutum.
Þú færð afrit af proforma-reikningi með upplýsingum um vöruna og áætlað verð.
Um 1–3 dögum áður en safnpöntunin fer til Record Power óskum við eftir endanlegri staðfestingu.
Þú greiðir 20% staðfestingargreiðslu. USD/ISK-viðmiðunargengi pöntunarinnar festist á greiðsludegi.
Þú færð lokareikning og bankakröfu fyrir eftirstöðvunum, með eindaga í byrjun áætlaðrar afhendingarviku.
Við staðfestum afhendingu þegar varan er komin til landsins og hefur verið afgreidd.
Nánari upplýsingar um pöntunarferlið
Smelltu á viðeigandi kafla til að lesa nánar.
Pöntunarfrestur og sameiginlegar sendingar
Safnpantanir til Record Power fara að jafnaði af stað einu sinni í mánuði. Næsti pöntunarfrestur er auglýstur á Record Power-síðu SG Handverks.
Til að halda flutningskostnaði niðri og tryggja hagkvæmni sendinga getur SG Handverk framlengt auglýstan pöntunarfrest um allt að 15 daga ef ekki hafa borist nægilega margar pantanir.
Ef fresturinn er framlengdur uppfærum við dagsetningar á heimasíðunni og upplýsum þá viðskiptavini sem þegar hafa lagt inn pöntun.
Verð og proforma-reikningur
Verð á vefnum eru áætluð og miðast við nýjustu verðupplýsingar frá Record Power, áætlaðan flutningskostnað og USD/ISK-miðgengi Seðlabanka Íslands við síðustu verðuppfærslu.
Viðskiptavinur fær afrit af proforma-reikningi með upplýsingum um vöruna og verð áður en óskað er eftir endanlegri staðfestingu.
Endanlegur proforma-reikningur er útbúinn þegar viðskiptavinur hefur staðfest pöntun sína.
Staðfesting og 20% greiðsla
Um 1–3 dögum áður en sameiginleg pöntun er send til Record Power sendum við viðskiptavini afrit af proforma-reikningi og óskum eftir endanlegri staðfestingu.
Að staðfestingu lokinni er gengið frá endanlegum proforma-reikningi og stofnuð bankakrafa fyrir 20% staðfestingargreiðslu.
Eindagi bankakröfunnar er einum degi áður en sameiginleg pöntun er send til Record Power. Einnig er hægt að greiða með bankamillifærslu samkvæmt upplýsingum á reikningi.
Pöntunin telst greiðslustaðfest þegar staðfestingargreiðslan hefur borist. Greiðslan dregst að fullu frá kaupverði.
Gengisfesting – hvernig virkar hún?
Við greiðslu 20% staðfestingargreiðslu festist USD/ISK-viðmiðunargengi pöntunarinnar samkvæmt miðgengi Seðlabanka Íslands á greiðsludegi.
Þetta viðmiðunargengi gildir fyrir allt kaupverðið og helst óbreytt fram að lokagreiðslu, óháð gengisbreytingum á tímabilinu.
Eftirstöðvar kaupverðs reiknast því samkvæmt sama viðmiðunargengi og staðfestingargreiðslan.
Afhendingartími og innflutningur
Stefnt er að því að vörurnar komi til Íslands um 30 dögum eftir að sameiginleg pöntun hefur verið send til Record Power.
Afhendingartími er áætlaður og getur breyst eftir vöruframboði, afgreiðslu hjá framleiðanda og flutningum.
SG Handverk sér um sameiginlegan innflutning og tollafgreiðslu.
Siglingaráætlun, lokagreiðsla og afhending
Þegar nákvæmari siglingaáætlun liggur fyrir upplýsum við viðskiptavini um áætlaða komu sendingarinnar til Íslands og mögulegan afhendingartíma.
Áður en varan kemur til landsins er að jafnaði gefinn út endanlegur sölureikningur. Á honum hefur 20% staðfestingargreiðslan verið dregin frá heildarkaupverði.
Jafnframt er stofnuð bankakrafa fyrir eftirstöðvunum, með eindaga í byrjun þeirrar viku sem áætlað er að varan verði afhent.
Einnig er hægt að greiða með bankamillifærslu samkvæmt upplýsingum á reikningi.
Eftirstöðvar kaupverðs skulu hafa borist áður en varan er afhent.
Þegar sendingin hefur verið losuð og tollafgreidd staðfestum við afhendingardag og fyrirkomulag við viðskiptavininn. Siglinga- og afhendingaráætlanir geta breyst.
Breytingar og afbókanir
Viðskiptavinir geta breytt eða afturkallað pöntun án kostnaðar þar til sameiginlega pöntunin hefur verið send til Record Power.
Hafi 20% staðfestingargreiðsla þegar verið greidd þegar pöntun er afturkölluð innan þess frests er hún endurgreidd að fullu.
Eftir að pöntun hefur verið send til Record Power gilda viðeigandi sölu- og afbókunarskilmálar SG Handverks, ásamt lögbundnum réttindum neytenda.
Ábyrgð, varahlutir og þjónusta
SG Handverk er umboðsaðili Record Power á Íslandi og aðstoðar viðskiptavini með vörur, varahluti, þjónustu og samskipti við framleiðanda.
Record Power býður 5 ára framleiðsluábyrgð á þeim vörum sem falla undir slíka ábyrgð, samkvæmt gildandi skilmálum framleiðanda.
Lögbundin réttindi neytenda samkvæmt íslenskum lögum haldast óskert.
Spurningar um Record Power?
Við aðstoðum þig gjarnan við að velja rétta vél, fylgihluti eða lausn fyrir verkstæðið þitt.
Hafðu samband: info@sghandverk.is
Rykvarnir og heilsa á verkstæðinu
Fínt viðarryk getur haft áhrif á bæði heilsu og vinnuumhverfi. Í CamVac fræðslumiðstöð Record Power má finna upplýsingar um ryksöfnun, síun og val á réttu kerfi fyrir verkstæðið. Efnið er á ensku.