Hoppa í vörulýsingu
1 af 6

Fjóla peysa | Rósalína

Fjóla peysa | Rósalína

Verð 55.300 ISK
Verð Útsöluverð 55.300 ISK
Útsala Seld – þessi flík hefur eignast nýjan eiganda
Sendingarkostnaður reiknast við greiðslu.

Þessi peysa er hið mesta augnayndi og mjög kvenleg. Hún er opin og með belti og hún er hekluð í nokkrum stórum ömmu-dúllum. Litirnir eru mjög fallegir, bjartir og nærandi, sannkölluð draumaflík. Fjóla er falleg við hvað sem er buxur kjóla eða pils þar sem hægt er að sleppa því að nota beltið ef vill. Þetta er virkilega falleg peysa sem myndi svo sannarlega gleðja.

Stærð: Fjóla er í stærðinni S. Hún er frekar nett og passandi og er síddin frá öxl 68 sm. Ermalengd frá armkrika er 39 sm. og vídd yfir mjaðmir 60 sm.

Efni: Fjóla er að mestu leiti úr gæða ullar garni og alpakka og er því hlý og gæðaleg til viðbótar við fallegt útlit.

Þvottur:
Mikilvægt er að meðhöndla hverja vöru frá Rósalínu með mildi þar sem efnisval er fjölbreytt í hverri flík. Mælt er með vægum handþvotti og einnig að flíkin sé látin liggja og þorna en um leið formuð til svo að hún haldi sem best sínu upprunalegu útliti.

Slow fashion - handverk sem tekur tíma
Flíkurnar frá Rósalínu eru handunnar og aðeins til í einu eintaki.
Vegna þess að hver flík er unnin í höndunum geta komið fram smávægilegir breytileikar sem er
eðlilegur hluti af handverkinu og gerir hverja flík einstaka.

Ertu ekki viss? Það er allt í lagi að taka sér tíma. Hver flík er handgerð og fæst aðeins í einu eintaki.

Skoða nánar