Dásamleg peysa.
Grænablóm peysa | Rósalína
Grænablóm peysa | Rósalína
Þessi ljúfa, fallega og vorlega heklaða peysa er heil og með heillandi áberandi ermar sem eru í lengri kantinum en þær voru hugsaðar til þess að hægt væri að bretta upp á þær. Þetta gefur Grænublóm fallega sérstöðu þar sem einnig er nokkur vídd í ermunum. Litaval peysunnar er undir áhrifum frá vorinu, fallegum viðkvæmum gróðrinum sem vaknar eftir vetrardvöl, allskonar fallegir mjúkir pastell-tónar. Dásamleg peysa en hún er líka svo yndislega mjúk og gæðaleg og fer vel við hvað sem er. Til dæmis væri hún mjög falleg við bláan lit gallaefnisins sem minnir svo mikið á sumarið og leikandi léttari fatnað sem því fylgir.
Stærð: Grænablóm er í stærðinni S-M og er síddin frá öxl 50 sm. og ermalengd frá armkrika 54 sm. og er víddin á peysunni 54 sm. Þetta er nett og falleg peysa.
Efni: Grænablóm er að mestu hekluð úr nokkrum tegundum af mjúku móher garni ásamt fleiri tegundum úr akryl og ullarblöndu. Í heildina er peysan yndislega falleg og gæðaleg þar sem litirnir eru mjúkir vegna áferðar móher garnsins sem í henni er.
Þvottur:
Mikilvægt er að meðhöndla hverja vöru frá Rósalínu með mildi þar sem efnisval er fjölbreytt í hverri flík. Mælt er með vægum handþvotti og einnig að flíkin sé látin liggja og þorna en um leið formuð til svo að hún haldi sem best sínu upprunalegu útliti.
Slow fashion - handverk sem tekur tíma
Flíkurnar frá Rósalínu eru handunnar og aðeins til í einu eintaki.
Vegna þess að hver flík er unnin í höndunum geta komið fram smávægilegir breytileikar sem er eðlilegur hluti af handverkinu og gerir hverja flík einstaka.
Gat ekki sótt upplýsingar um afhendingu í verslun
Ertu ekki viss? Það er allt í lagi að taka sér tíma. Hver flík er handgerð og fæst aðeins í einu eintaki.
Skoða nánar
