Hlýjalína trefill | Rósalína
Hlýjalína trefill | Rósalína
Í köldu vetrarlagi er mikilvægt og dásamlegt að geta sveipað sig notalegum trefli eða sjali. Hlýjalína er stór og efnismikill trefill/sjal sem vermir og hlýjar. Hann er í fallegum litum sem eru bæði áberandi en falla einnig vel að hverju því sem notað er við. Hlýjalína er tilvalinn að vefja utan um sig þegar frost bítur kinn. Hann er heklaður með fallegu bylgju mynstri.
Stærð:
Hlýjalína er 190 sm. á lengd og 55 sm. á breydd.
Efni:
Rósalína notar fjölbreytt efnisval í vörur sínar og þannig er það með trefilinn góða en þar má m.a. finna í honum akryl, ull og bómul sem skapar mismunandi grófleika og áferð sem gefur honum sérstakan og einstakan karakter.
Þvottur:
Mikilvægt er að meðhöndla hverja vöru frá Rósalínu með mildi þar sem efnisval er fjölbreytt í hverri flík. Mælt er með vægum handþvotti og einnig að flíkin sé látin liggja og þorna en um leið formuð til svo að hún haldi sem best sínu upprunalegu útliti.
Slow fashion - handverk sem tekur tíma
Flíkurnar frá Rósalínu eru handunnar og aðeins til í einu eintaki.
Vegna þess að hver flík er unnin í höndunum geta komið fram smávægilegir breytileikar sem er eðlilegur hluti af handverkinu og gerir hverja flík einstaka.
Gat ekki sótt upplýsingar um afhendingu í verslun
Ertu ekki viss? Það er allt í lagi að taka sér tíma. Hver flík er handgerð og fæst aðeins í einu eintaki.
Skoða nánar
