Hoppa í vörulýsingu
1 af 5

Jarðaber peysa | Rósalína

Jarðaber peysa | Rósalína

Verð 39.800 ISK
Verð Útsöluverð 39.800 ISK
Útsala Seld – þessi flík hefur eignast nýjan eiganda
Sendingarkostnaður reiknast við greiðslu.

Stutt og krúttleg peysa hekluð úr stórum ömmu-dúllum. Jarðaber er falleg við pils eða buxur, hún er mjög nett og fullkomin fyrir alla sem líkar við stuttar peysur. Jarðaber er sannkallað krútt og því tilvalin fyrir krútt.

Stærð: Jarðaber er í stærðinni XS-S, síddin frá öxl er 42 sm. og ermalengd frá armkrika er 44 sm. Víddin á peysunni er 40 sm. Sem sagt mjög nett og falleg peysa.

Efni: Í Jarðaberi er margskonar garn eins og svo oft áður í peysum Rósalínu en allt saman gæða garn og er flíkin mjúk og notaleg.

Þvottur:
Mikilvægt er að meðhöndla hverja vöru frá Rósalínu með mildi þar sem efnisval er fjölbreytt í hverri flík. Mælt er með vægum handþvotti og einnig að flíkin sé látin liggja og þorna en um leið formuð til svo að hún haldi sem best sínu upprunalegu útliti.

Slow fashion - handverk sem tekur tíma
Flíkurnar frá Rósalínu eru handunnar og aðeins til í einu eintaki.
Vegna þess að hver flík er unnin í höndunum geta komið fram smávægilegir breytileikar sem er
eðlilegur hluti af handverkinu og gerir hverja flík einstaka.

Ertu ekki viss? Það er allt í lagi að taka sér tíma. Hver flík er handgerð og fæst aðeins í einu eintaki.

Skoða nánar