Karolína - slá | Rósalína
Karolína - slá | Rósalína
Karolína-slá er dásamlega falleg flík sem á uppruna sinn að rekja til hugljómunar af annarri slá sem varð þekkt fyrir sína fegurð þar sem hún var borin af frægum einstaklingi við fallegan atburð á einum af okkar fallegustu stöðum á landinu, Þingvöllum! Og nú er það forseti íslands sem er eigandi að þeirri slá. Rósalínu-sláin Karolína er engu síðri bara annar stíll og önnur hönnun í dásamlegri litapallettu og hekluð úr gæðalegu, mjúku garni og er svo sannarlega hægt að segja að þessi flík umvefji þann sem í hana fer. Hún er eins og hlýtt fallegt teppi enda væri auðvelt að nota slánna á þann háttinn. Karolína-slá er tilvalin í ferðalagið, útileguna eða bara heima við þegar kul sækir að eða þörf er fyrir dásamlega notalegheit hvenær sem er. Karolína-sláin er algjörlega einstök í einu eintaki eins og aðrar vörur Rósalínu og því um að gera að skoða hana vel því að notkunar möguleikarnir eru óendanlegir á þessari áhugaverðu flík.
Stærð: Karolína-slá hefur síddina frá öxl 100 sm. og víddin á flíkinni er 110 sm. En það má með sanni segja að þessi flík passi öllum stærðum eða S-L.
Efni: Þessi dásamlega flík er hekluð úr margskonar “fluffy” og mjúku garni en einnig úr ullar-og ullarblönduðu akryl garni. Karolína-slá er eðal mjúk viðkomu, hlý og notaleg.
Þvottur:
Mikilvægt er að meðhöndla hverja vöru frá Rósalínu með mildi þar sem efnisval er fjölbreytt í hverri flík. Mælt er með vægum handþvotti og einnig að flíkin sé látin liggja og þorna en um leið formuð til svo að hún haldi sem best sínu upprunalegu útliti.
Slow fashion - handverk sem tekur tíma
Flíkurnar frá Rósalínu eru handunnar og aðeins til í einu eintaki.
Vegna þess að hver flík er unnin í höndunum geta komið fram smávægilegir breytileikar sem er eðlilegur hluti af handverkinu og gerir hverja flík einstaka.
Gat ekki sótt upplýsingar um afhendingu í verslun
Ertu ekki viss? Það er allt í lagi að taka sér tíma. Hver flík er handgerð og fæst aðeins í einu eintaki.
Skoða nánar
