Lilja peysa | Rósalína
Lilja peysa | Rósalína
Lilja er hekluð opin peysa sem tekin er saman í mittinu með hekluðu bandi. Hún er falleg og mjög kvenleg þegar hún er tekin saman en engu síður þegar hún er höfð opin og laus. Þessi litapalletta sem prýðir þessa peysu er hreinlega dásamleg en í þessari flík er að mestu mislitt garn sem gefur þessa fallegu liti en þó er einnig um fjölbreyttara garn að ræða, eins og í flestum flíkum Rósalínu. Peysan fer vel við hvað sem er og svo sannarlega hægt að klæða sig upp í spari en einnig hversdags t.d við gallabuxurnar. Þetta er dásamleg peysa sem fangar athyglina og svo er hún þægileg og notaleg en einnig hlý, en það á við flestar hekluðu flíkur Rósalínu að þær eru hlýjar þrátt fyrir að munstur heklsins sé ekki samfellt, það vita þeir sem prufa!
Stærð: Peysan er í stærðinni S-M/L. Sídd frá öxl er 76 sm. og ermalengd frá armkrika er 33 sm. Vídd Lilju yfir mjaðmir er 59 sm. Hægt er að fjarlægja heklaða bandið ef vill og nota belti í staðin eða bara að hafa hana opna.
Efni: Lilja er hekluð úr blöndu af gæðagarni sem allt saman er lungamjúkt og þægilegt en í henni er m.a að finna ull, akryl og alpakka.
Þvottur:
Mikilvægt er að meðhöndla hverja vöru frá Rósalínu með mildi þar sem efnisval er fjölbreytt í hverri flík. Mælt er með vægum handþvotti og einnig að flíkin sé látin liggja og þorna en um leið formuð til svo að hún haldi sem best sínu upprunalegu útliti.
Slow fashion - handverk sem tekur tíma
Flíkurnar frá Rósalínu eru handunnar og aðeins til í einu eintaki.
Vegna þess að hver flík er unnin í höndunum geta komið fram smávægilegir breytileikar sem er eðlilegur hluti af handverkinu og gerir hverja flík einstaka.
Gat ekki sótt upplýsingar um afhendingu í verslun
Ertu ekki viss? Það er allt í lagi að taka sér tíma. Hver flík er handgerð og fæst aðeins í einu eintaki.
Skoða nánar
