Loft peysa | Rósalína
Loft peysa | Rósalína
Loft er falleg peysa sem er hekluð og heil með háan og notalegann kraga. Hún hefur mikinn karakter vegna þess að hún er hekluð með munstri og mismunandi grófleika í garni. Peysan er mjög klæðileg og passar við hvað sem er og hefur tengingu við eitthvað óræðið eins og loft eða andrúmsloftið sem við svo nauðsynlega þurfum á að halda til að lifa þó að ekki verði tekið svo djúpt í árina varðandi peysuna Loft að þá mun það svo sannarlega bæta og næra að klæðast þessari flík rétt eins og gott andrúmsloft gerir allt betra. Dásamleg peysa sem vert er að skoða.
Stærð: Loft er í stærðinni S-L og er síddin frá öxl 50 sm. og ermalengd frá armkrika 44 sm. Vídd á þessari peysu er 55 sm.
Efni: Garnið í Loft er margskonar gæðagarn og er flíkin lunga mjúk og notaleg. Akryl og ullarblandað garn, alpakka og móher er að finna hér en einnig bómullargarn.
Þvottur:
Mikilvægt er að meðhöndla hverja vöru frá Rósalínu með mildi þar sem efnisval er fjölbreytt í hverri flík. Mælt er með vægum handþvotti og einnig að flíkin sé látin liggja og þorna en um leið formuð til svo að hún haldi sem best sínu upprunalegu útliti.
Slow fashion - handverk sem tekur tíma
Flíkurnar frá Rósalínu eru handunnar og aðeins til í einu eintaki.
Vegna þess að hver flík er unnin í höndunum geta komið fram smávægilegir breytileikar sem er eðlilegur hluti af handverkinu og gerir hverja flík einstaka.
Gat ekki sótt upplýsingar um afhendingu í verslun
Ertu ekki viss? Það er allt í lagi að taka sér tíma. Hver flík er handgerð og fæst aðeins í einu eintaki.
Skoða nánar
