Lopasokkar 2 | Rósalína
Lopasokkar 2 | Rósalína
Gæðalegir Lopasokkar 2 eru hér á ferð þar sem útfærsla af fallegu ömmu-dúllunni er notuð með þessari skemtilegu útkomu. Þetta eru fallegir sokkar og sameinar því fegurð og notagildi og ekki er verra að Lopasokkar 2 eru einstakir í ofanálag. Það er mikilvægt að geta hlýjað sér í fallegum sokkum þegar kuldinn sækir að, hvort sem farið er í stígvélin og út eða bara upp í sófa.
Stærð: Lopasokkar 2 eru í stærðinni S-L og er lengd sokks frá hæl fram á tá 25 sm. en sokkarnir gefa vel eftir og henta því flestum.
Efni: Garnið er lopi, hlýr og góður og gæðalegur.
Þvottur:
Mikilvægt er að meðhöndla hverja vöru frá Rósalínu með mildi þar sem efnisval er fjölbreytt í hverri flík. Mælt er með vægum handþvotti og einnig að flíkin sé látin liggja og þorna en um leið formuð til svo að hún haldi sem best sínu upprunalegu útliti.
Slow fashion - handverk sem tekur tíma
Flíkurnar frá Rósalínu eru handunnar og aðeins til í einu eintaki.
Vegna þess að hver flík er unnin í höndunum geta komið fram smávægilegir breytileikar sem er eðlilegur hluti af handverkinu og gerir hverja flík einstaka.
Gat ekki sótt upplýsingar um afhendingu í verslun
Ertu ekki viss? Það er allt í lagi að taka sér tíma. Hver flík er handgerð og fæst aðeins í einu eintaki.
Skoða nánar
