Hoppa í vörulýsingu
1 af 6

Mandarína peysa | Rósalína

Mandarína peysa | Rósalína

Verð 48.900 ISK
Verð Útsöluverð 48.900 ISK
Útsala Seld – þessi flík hefur eignast nýjan eiganda
Sendingarkostnaður reiknast við greiðslu.

Falleg og sérstök peysa með mikinn karakter. Hún umvefur þann sem í hana fer með sínum notalega háa kraga og ekki skemmir fyrir þessi einstaklega fallegu litir sem í henni eru. Mandarína er heil, hekluð peysa með hekluðu bandi í mitti sem hægt er að draga saman en svo er líka hægt að sleppa því ef vill. Litatónarnir í þessari flík eru sérstakir og svo óskaplega fallegir, svo látlausir en þó alls ekki. Sannkölluð drauma peysa hlý og góð og allt um vefjandi.

Stærð: Mandarína er í stærðinni S, hún er mjög gæðaleg og síddin frá öxl 61 sm. og ermalengd frá armkrika er 46 sm. Nokkur vídd er í ermunum og síddin á þeim er  rétt tæplega “hefðbundin”.

Efni: Garnið í þessari peysu er margskonar gæða garn, úr öllum “flokkum” en að mestu úr góðu mjúku ullar garni.

Þvottur:
Mikilvægt er að meðhöndla hverja vöru frá Rósalínu með mildi þar sem efnisval er fjölbreytt í hverri flík. Mælt er með vægum handþvotti og einnig að flíkin sé látin liggja og þorna en um leið formuð til svo að hún haldi sem best sínu upprunalegu útliti.

Slow fashion - handverk sem tekur tíma
Flíkurnar frá Rósalínu eru handunnar og aðeins til í einu eintaki.
Vegna þess að hver flík er unnin í höndunum geta komið fram smávægilegir breytileikar sem er
eðlilegur hluti af handverkinu og gerir hverja flík einstaka.

Ertu ekki viss? Það er allt í lagi að taka sér tíma. Hver flík er handgerð og fæst aðeins í einu eintaki.

Skoða nánar