Hoppa í vörulýsingu
1 af 3

Marglitta peysa | Rósalína

Marglitta peysa | Rósalína

Verð 44.800 ISK
Verð Útsöluverð 44.800 ISK
Útsala Seld – þessi flík hefur eignast nýjan eiganda
Sendingarkostnaður reiknast við greiðslu.

Þessi fallega heklaða peysa fékk nafnið Marglitta vegna þeirra fjölbreytilegra lita sem í henni eru. Marglitta hefur gott hefðbundið snið og passar því vel og hefur fjölbreytt notagildi. Marglitta er hlý og notaleg og nýtist því vel hvort sem er ein og sér að sumarlagi eða undir yfirhöfn að vetrarlagi. Hún sómir sér vel við buxur, pils eða kjól hvort sem er hversdags eða á tillidögum.

Stærð: 
Peysan er í stærðinni S - M
Marglitta er 55 sm. frá öxl og niður og er breyddin á bolnum 68 sm.
Erma lengdin er 41 sm. frá armkrika.

Efni:
Marglitta er hekluð úr gæðagarni sem gælir við hörundið þar sem það hefur mikla mýkt í sér en jafnfram er um að ræða fjölbreyttar garntegundir sem eru akryl, ull og bómull. Vörulína  Rósalínu er óður til lita og einnig til þess að kalla fram ákveðinn karakter og stíl í notkun mismunandi garntegunda.

Þvottur:
Mikilvægt er að meðhöndla hverja vöru frá Rósalínu með mildi þar sem efnisval er fjölbreytt í hverri flík. Mælt er með vægum handþvotti og einnig að flíkin sé látin liggja og þorna en um leið formuð til svo að hún haldi sem best sínu upprunalegu útliti.

Slow fashion - handverk sem tekur tíma
Flíkurnar frá Rósalínu eru handunnar og aðeins til í einu eintaki.
Vegna þess að hver flík er unnin í höndunum geta komið fram smávægilegir breytileikar sem er
eðlilegur hluti af handverkinu og gerir hverja flík einstaka.

Ertu ekki viss? Það er allt í lagi að taka sér tíma. Hver flík er handgerð og fæst aðeins í einu eintaki.

Skoða nánar