Hoppa í vörulýsingu
1 af 7

Pálínu - ponsjó | Rósalína

Pálínu - ponsjó | Rósalína

Verð 52,500 ISK
Verð Útsöluverð 52,500 ISK
Tilboð Seld – þessi flík hefur eignast nýjan eiganda
Sendingarkostnaður reiknast við greiðslu.

Falleg og létt-leikandi, ljós og birta, nýjasta tíska en með skýra skýrskotun í fortíðina. Hvaða litla stelpa átti ekki ponsjó hér á árum áður? Ég get svarað þessari spurningu játandi en ég átti heklað fjólublátt ponsjó með hvítum röndum sem móðir mín gerði fyrir mig og var ég svo sannarlega ánægð með mig þegar að ég klæddist þessari yndislegu flík. Lífið fer í hringi og nú er vinsælt að eiga slár og ponsjó af ýmsum tegundum og hér kemur dásamlegt heklað Rósalínu ponsjó, Pálínu-ponsjó, sem klæðist vel og passar við hvað sem er. Ponsjó er mjög þægilegur fatnaður, svo allt umvefjandi og notalegt, smart og vekur ávalt athygli. Pálínu-ponsjó hefur fallega litapallettu þar sem ljósi liturinn ræður för en fallegir lilla-bleikir litatónar í bland við mjúka brúna og drappaða setja fallegan svip á flíkina.  Pálínu-ponsjó er flík sem hægt er að nota hvenær sem er, haust-vetur-vor og sumar þar sem auðvelt er að klæðast undir ponsjóið til dæmis í kaldara loftslagi og mjög smart er að nota ponsjóið sem peysu. Pálínu-ponsjó er einstakt eintak rétt eins og allar aðrar vörur  Rósalínu.

Stærð: Pálínu-ponsjó er í stærðinni S-L þar sem að allir ættu að geta notað það en lengsta síddin frá kraga er 92 sm.( fyrir utan kögur) og víddin er ca. 102 sm. Segja má að Pálínu-ponsjóið njóti sín sem best því stærra sem það er á eiganda sínum.

Efni: Garnið í Pálínu-ponsjói er, eins og svo oft áður, margskonar en að mestu akrylblandað ullargarn og ullargarn og mjúkt og notalegt “fluffy”garn m.a.

Þvottur:
Mikilvægt er að meðhöndla hverja vöru frá Rósalínu með mildi þar sem efnisval er fjölbreytt í hverri flík. Mælt er með vægum handþvotti og einnig að flíkin sé látin liggja og þorna en um leið formuð til svo að hún haldi sem best sínu upprunalegu útliti.

Slow fashion - handverk sem tekur tíma
Flíkurnar frá Rósalínu eru handunnar og aðeins til í einu eintaki.
Vegna þess að hver flík er unnin í höndunum geta komið fram smávægilegir breytileikar sem er
eðlilegur hluti af handverkinu og gerir hverja flík einstaka.

Ertu ekki viss? Það er allt í lagi að taka sér tíma. Hver flík er handgerð og fæst aðeins í einu eintaki.

Skoða nánar