Hoppa í vörulýsingu
1 af 5

Rauðublóm | Rósalína

Rauðublóm | Rósalína

Verð 47.500 ISK
Verð Útsöluverð 47.500 ISK
Útsala Seld – þessi flík hefur eignast nýjan eiganda
Sendingarkostnaður reiknast við greiðslu.

Rauðublóm er glaðleg, hekluð peysa sem vert er að veita athygli. Hennar aðalsmerki eru fallegu ermarnar sem fanga athyglina vegna fallegrar litapallettu en einnig fyrir að vera í víðari kanntinum og einnig er ermalengdin meiri en gengur og gerist vegna þess að þessi peysa er hönnuð til þess að brett sé uppá ermarnar. Þetta setur mikinn svip á þessa peysu og gefur henni einstakan karakter. Rauðublóm er peysa sem á alltaf við hvort sem um er að ræða sumar eða vetur, við pils, kjóla eða buxur eða þegar farið er í fínt eða hversdags. Hún einfaldlega getur alltaf gengið. Vert er að nefna að þar sem rauði liturinn er allsráðandi á bol peysunnar er samt um að ræða skemmtilegan blæbrigðarmun þar sem rauði liturinn samanstendur af margskonar rauðu garni en það er einmitt eitt af aðal einkennum Rósalínu að blanda saman mismunandi garntegundum til að fá meira líf og meiri hreyfingu í annars “einlitan” textíl.

Stærð: Rauðublóm er í stærðinni S-M, og sídd frá öxl er 49 sm. Ermalengdin frá armkrika er 44 sm. Og víddin á bol er 70 sm. en eins og sést er hún nokkuð víð og nær því vel yfir á ermasvæðið sem gefur peysunni mjög frjálslegt og léttleikandi útlit. Þetta er þægileg peysa, hlý en samt ekki of hlý.

Efni: Rauðublóm er hekluð úr margskonar gæðagarni sem gefur henni fallegan karakter en í henni er ma. að finna akryl, alpakka, móher og ullarblöndur. Þetta er notaleg peysa sem allir ættu að geta verið í.

Þvottur:
Mikilvægt er að meðhöndla hverja vöru frá Rósalínu með mildi þar sem efnisval er fjölbreytt í hverri flík. Mælt er með vægum handþvotti og einnig að flíkin sé látin liggja og þorna en um leið formuð til svo að hún haldi sem best sínu upprunalegu útliti.

Slow fashion - handverk sem tekur tíma
Flíkurnar frá Rósalínu eru handunnar og aðeins til í einu eintaki.
Vegna þess að hver flík er unnin í höndunum geta komið fram smávægilegir breytileikar sem er
eðlilegur hluti af handverkinu og gerir hverja flík einstaka.

Ertu ekki viss? Það er allt í lagi að taka sér tíma. Hver flík er handgerð og fæst aðeins í einu eintaki.

Skoða nánar