Rauði kjóllinn | Rósalína
Rauði kjóllinn | Rósalína
Dásamlega fallegur og fínlegur heklaður kjóll, Rauði kjóllinn! Hann fangar athyglina algjörlega vegna fegurðar sinnar, bæði í hönnun og litatónum. Þetta er sannkallaður spari kjóll sem myndi sóma sér vel fyrir hvaða veislu eða samkvæmi sem er. Hver vill ekki vera í fallegum einstökum sparikjól og vekja óskipta athygli nærstaddra fyrir innri og ytri fegurð. Rauði kjóllinn er viðeigandi hvenær sem er vetur, sumar, vor og haust. Sannarlega falleg flík fyrir fallega manneskju.
Stærð: Rauði kjóllinn er mjög nettur og fínlegur og er í stærðinni XS-S. Síddin frá öxl er 121 sm. og ermalengdin frá armkrika er 33 sm. Breydd á mjaðmasvæði er 45 sm.
Efni: Dásamlega falleg litapalletta sem er að mestu í mislitu garni sem er ullar og akryl blanda en að auki má finna bómullargarn, alpakka og fleiri tegundir. Kjóllinn er lunga mjúkur og gæðalegur og gullfallegur.
Þvottur:
Mikilvægt er að meðhöndla hverja vöru frá Rósalínu með mildi þar sem efnisval er fjölbreytt í hverri flík. Mælt er með vægum handþvotti og einnig að flíkin sé látin liggja og þorna en um leið formuð til svo að hún haldi sem best sínu upprunalegu útliti.
Mikilvægt er að hafa í huga að handverk Rósalínu er einstakt og því er einungis um eitt stykki af vörunni að ræða en jafnframt að um handgerða flík er að ræða þar sem borið gæti á eðlilegum breytileika..
Gat ekki sótt upplýsingar um afhendingu í verslun
Ertu ekki viss? Það er allt í lagi að taka sér tíma. Hver flík er handgerð og fæst aðeins í einu eintaki.
Skoða nánar
