Rósa peysa | Rósalína
Rósa peysa | Rósalína
Dásamleg peysa í alla staði, hún er sérstök og hekluð úr litlum margskonar ömmu-dúllum. Litirnir í henni eru dásamlegir og er peysan nokkuð sumarleg en þó ekki þar sem að margir kjósa ljósa fallega liti í flíkunum sínum umfram aðra. Hún er bundin saman að framan verðu en auðvelt að sleppa því og hafa hana bara opna. Rósa passar við hvaða fatnað sem er en hún er mjög nett og passandi og alls ekki mikil vídd í henni. Mjög falleg peysa.
Stærð: Rósa er í stærðinni XS-S. hún er mjög nett en virkilega klæðileg. Sídd frá öxl er 54 sm. og ermalengd frá armkrika er 48 sm.
Efni: Garnið í þessari peysu er að mestu leiti bómull en einnig ullar blandað akryl garn.
Þvottur:
Mikilvægt er að meðhöndla hverja vöru frá Rósalínu með mildi þar sem efnisval er fjölbreytt í hverri flík. Mælt er með vægum handþvotti og einnig að flíkin sé látin liggja og þorna en um leið formuð til svo að hún haldi sem best sínu upprunalegu útliti.
Slow fashion - handverk sem tekur tíma
Flíkurnar frá Rósalínu eru handunnar og aðeins til í einu eintaki.
Vegna þess að hver flík er unnin í höndunum geta komið fram smávægilegir breytileikar sem er eðlilegur hluti af handverkinu og gerir hverja flík einstaka.
Gat ekki sótt upplýsingar um afhendingu í verslun
Ertu ekki viss? Það er allt í lagi að taka sér tíma. Hver flík er handgerð og fæst aðeins í einu eintaki.
Skoða nánar
