Silfrið | Rósalína
Silfrið | Rósalína
Silfrið er sparileg og falleg peysa fyrir hverskonar tilefni og er hekluð úr fallegu blæbrigða garni sem er svo dásamlegt. Hún er í mjúkum daufum litatónum og hentar vel þegar gefa á sterkum litasamsettningum pásu. Silfur er orðið sem kom mér fyrst í huga þegar gefa átti þessari fallegu peysu nafn, það hvernig grái liturinn deyfist rólega út í ljósari tóna drapplitans og hins bleika er svo fallegt og já Silfrið skal hún heita, þó ekki í höfuðið á sjónvarps þættinum! Hægt er að klæðast peysunni við hverskonar tilefni og fatnað eftir því sem hugurinn stendur til. Silfrið er falleg peysa.
Stærð: Silfrið er nett peysa og frekar stutt en síddin er 56 sm. frá öxl, ermalengd frá armkrika er 36 sm. og víddin á bolnum er 51 sm. Þetta er falleg og ljúf peysa, sérstök og einstök.
Efni: Garnið í Silfrinu er akryl og ullarblanda, bómullargarn og fleiri tegundir en peysan er lunga mjúk og gæðaleg sannkölluð gæðaflík þó nett sé.
Þvottur:
Mikilvægt er að meðhöndla hverja vöru frá Rósalínu með mildi þar sem efnisval er fjölbreytt í hverri flík. Mælt er með vægum handþvotti og einnig að flíkin sé látin liggja og þorna en um leið formuð til svo að hún haldi sem best sínu upprunalegu útliti.
Slow fashion - handverk sem tekur tíma
Flíkurnar frá Rósalínu eru handunnar og aðeins til í einu eintaki.
Vegna þess að hver flík er unnin í höndunum geta komið fram smávægilegir breytileikar sem er eðlilegur hluti af handverkinu og gerir hverja flík einstaka.
Gat ekki sótt upplýsingar um afhendingu í verslun
Ertu ekki viss? Það er allt í lagi að taka sér tíma. Hver flík er handgerð og fæst aðeins í einu eintaki.
Skoða nánar
