Hoppa í vörulýsingu
1 af 4

Sólin | Rósalína

Sólin | Rósalína

Verð 44.900 ISK
Verð Útsöluverð 44.900 ISK
Útsala Seld – þessi flík hefur eignast nýjan eiganda
Sendingarkostnaður reiknast við greiðslu.

Sólargeislarnir og guli liturinn eru tvenna sem nærir hverja sál, með sinni upplífgandi nærveru hverju sinni. Þessi Sólarinnar flík er einföld, hekluð peysa sem hægt er að klæðast í vetrarsól og ekki síst í sumarsólinni og eins þegar þurfa þykir. Sólin samanstendur af hekluðum ömmu-dúllum, svo einfalt er það en einfaldleikinn gefur oft mesta karakterinn eins og þessi peysa sannar svo vel. Hún er ljómandi falleg, svo glaðleg og eftirtektar verð í alla staði. Sólin passar við hvað sem er, kjóla, pils eða buxur en einnig er hún falleg við hvítt, svart eða bláan lit gallaefnisins en það er um að gera að þora að blanda saman flíkunum sínum og finna réttu samsettninguna svo að hægt sé að fanga réttu stemmninguna.

Stærð: Sólin er í stærðinni S-M. Síddin frá öxl er 56 sm. ermalengd frá armkrika er 28 sm. og víddin á bol peysunnar er 55 sm. Sólin er annars frekar nett peysa með hálfum víðum ermum og er mjúk og þægilega létt og leikandi.

Efni: Sólin, eins og flestar flíkur Rósalínu, er búin til úr ýmsum garntegundum sem gefur flíkinni sinn sérstaka blæ og áferð. Í peysunni er að finna bómul, móher, léttar ullarblöndur og alpakka. Guli tónninn er allsráðandi í þessari fallegu peysu og hann skilar svo sannarlega sínu. Falleg peysa fyrir sumarið en virkar líka vel á öðrum árstíðum.

Þvottur:
Mikilvægt er að meðhöndla hverja vöru frá Rósalínu með mildi þar sem efnisval er fjölbreytt í hverri flík. Mælt er með vægum handþvotti og einnig að flíkin sé látin liggja og þorna en um leið formuð til svo að hún haldi sem best sínu upprunalegu útliti.

Slow fashion - handverk sem tekur tíma
Flíkurnar frá Rósalínu eru handunnar og aðeins til í einu eintaki.
Vegna þess að hver flík er unnin í höndunum geta komið fram smávægilegir breytileikar sem er
eðlilegur hluti af handverkinu og gerir hverja flík einstaka.

Ertu ekki viss? Það er allt í lagi að taka sér tíma. Hver flík er handgerð og fæst aðeins í einu eintaki.

Skoða nánar