Spari pilsið | Rósalína
Spari pilsið | Rósalína
Öðruvísi en fallegt og sparilegt enda fékk flíkin nafnið “Spari-pilsið”. Pilsið er heklað úr fjórum hefðbundnum gamaldags dúllum sem mikið eru notaðar í flíkur Rósalínu. Lagt var upp með að hafa pilsið þröngt og smart fyrir fallegan vöxt sem ekkert hefur að fela. Þykkar leggings innan undir og þá er dressið nánast komið! Spari-pilsið var hannað með dimma og dökka litatóna í huga en einnig með óhefðbundnar garntegundir sem veita því mikinn karakter. Sérstök og spennandi flík, falleg og sexý!
Stærð: Spari-pilsið er í stærðinni XS-S en vert er að geta þess að heklaðar og prjónaðar flíkur gefa eftir. Pilsið hefur teygju í faldi og er sídd þess 80 sm. og breyddin yfir mjaðmasvæði 39 sm.
Efni: Eins og í öllum flíkum Rósalínu er um fjölbreytt gæðagarn að ræða og það er einnig í efnisvali Spari-pilsisins. Í því má finna ullar og akryl blöndur, alpakka og bómullarblöndur en einnig fallegt skrautgarn sem veitir flíkinni mikinn og skemtilegan karakter.
Þvottur:
Mikilvægt er að meðhöndla hverja vöru frá Rósalínu með mildi þar sem efnisval er fjölbreytt í hverri flík. Mælt er með vægum handþvotti og einnig að flíkin sé látin liggja og þorna en um leið formuð til svo að hún haldi sem best sínu upprunalegu útliti.
Slow fashion - handverk sem tekur tíma
Flíkurnar frá Rósalínu eru handunnar og aðeins til í einu eintaki.
Vegna þess að hver flík er unnin í höndunum geta komið fram smávægilegir breytileikar sem er eðlilegur hluti af handverkinu og gerir hverja flík einstaka.
Gat ekki sótt upplýsingar um afhendingu í verslun
Ertu ekki viss? Það er allt í lagi að taka sér tíma. Hver flík er handgerð og fæst aðeins í einu eintaki.
Skoða nánar
