Hoppa í vörulýsingu
1 af 6

Stóra dúlla peysa | Rósalína

Stóra dúlla peysa | Rósalína

Verð 68.900 ISK
Verð Útsöluverð 68.900 ISK
Útsala Seld – þessi flík hefur eignast nýjan eiganda
Sendingarkostnaður reiknast við greiðslu.

Stóra dúlla er eins og nafnið segir til um stórar  heklaðar ömmu-dúllur en einnig er þessi flík í heild sinni stór og mikil sannkölluð stórkostleg gæðaflík. Peysan er einskonar peysu-kjóll og mikið yndi hlý og notaleg. Á Stóru dúllu eru  nauðsynlegir vasar sem gott er að verma kalda fingur í. Stóra dúlla er litrík og glaðleg og mikið fyrir augað að horfa á, sannarlega upplífgandi.

Stærð: Stóra dúlla er í stærðinni S-M en þó er töluverð vídd í flíkinni og síddin frá öxl er 120 sm. og ermalengd frá armkrika er 41 sm. Víddin yfir mjaðmir er 64 sm.

Efni: Í Stóru dúllu er mjög fjölbreytt og mikið gæðagarn og heildar útlitið er þessi litríka og mikla gæða flík sem er mjúk og hlý með sinn góða hálskraga. Hægt er að nefna ullar og akryl blöndur, alpakka, bómull svo eitthvað sé nefnt.

Þvottur:
Mikilvægt er að meðhöndla hverja vöru frá Rósalínu með mildi þar sem efnisval er fjölbreytt í hverri flík. Mælt er með vægum handþvotti og einnig að flíkin sé látin liggja og þorna en um leið formuð til svo að hún haldi sem best sínu upprunalegu útliti.

Slow fashion - handverk sem tekur tíma
Flíkurnar frá Rósalínu eru handunnar og aðeins til í einu eintaki.
Vegna þess að hver flík er unnin í höndunum geta komið fram smávægilegir breytileikar sem er
eðlilegur hluti af handverkinu og gerir hverja flík einstaka.

Ertu ekki viss? Það er allt í lagi að taka sér tíma. Hver flík er handgerð og fæst aðeins í einu eintaki.

Skoða nánar