Stillingar, öryggi og viðhald afréttara og þykktarhefla

Réttar stillingar skila nákvæmari og öruggari vinnu

Afréttari og þykktarhefill þurfa að vera rétt upp sett, stillt og vel við haldið til að skila jafnri vinnslu. Skökk borð, rangt stilltir hnífar, óhreinir fletir eða lélegt ryksog geta haft áhrif á yfirborðsáferð, nákvæmni og öryggi.

Regluleg yfirferð þarf ekki að vera flókin. Með því að fylgja sömu rútínu áður en vinna hefst má greina vandamál snemma og draga úr óþarfa sliti á vélinni.

Grunnreglan

Aftengdu vélina frá rafmagni áður en stillingar, hreinsun eða viðhald hefst. Notaðu aldrei vélina nema hlífar, ryksogsbúnaður og öryggisrofar séu rétt upp sett og virki eins og framleiðandi gerir ráð fyrir.

Stillingar, öryggi og viðhald – yfirlit

1. Stöðug vél og vinnusvæði

Vélin þarf að standa stöðug og hafa nægt rými fyrir örugga inn- og útmötun.

2. Borð og stýring

Borð, stýring og dýptarstillingar þurfa að vera hrein, stöðug og rétt stillt.

3. Hnífar og hnífakefli

Beittir og rétt stilltir hnífar stuðla að jafnri vinnslu og minna álagi á vélina.

4. Hlífar og öryggisrofar

Hlífar og öryggisbúnaður verða að vera rétt staðsett og má aldrei aftengja eða fara fram hjá þeim.

5. Rétt mötun og skurðdýpt

Grunnir og jafnir skurðir draga úr álagi og stuðla að betri yfirborðsáferð.

6. Ryksog og hreinsun

Gott ryksog og hrein vél hjálpa til við að viðhalda afköstum og öruggu vinnuumhverfi.

7. Reglulegt viðhald

Fylgstu með sliti, festingum, reimum, rafbúnaði og hreyfanlegum hlutum.

8. Öryggi og lokatékk

Stutt yfirferð fyrir hverja notkun getur komið í veg fyrir mistök og bilanir.

Stillingar og viðhald – nánari leiðbeiningar

Smelltu á viðeigandi kafla til að lesa nánar.

1. Staðsetning vélar og öruggt vinnusvæði

Vélin þarf að standa á sléttu og traustu undirlagi. Ef hún er á hjólagrind verður grindin að vera stöðug og tryggilega læst áður en vinna hefst.

Gerðu ráð fyrir nægu rými fyrir framan og aftan vélina svo hægt sé að vinna langt efni án þess að rekast í veggi, hillur eða annan búnað. Inn- og útmötunarleiðin þarf að vera greið og laus við hindranir.

Gakktu úr skugga um að:

  • vélin ruggi ekki eða færist við notkun,
  • vinnusvæðið sé vel lýst,
  • gólfið sé hreint og ekki hált,
  • rafmagnssnúra og barkar liggi ekki í gönguleið,
  • neyðarrofi og aðalrofi séu auðveldlega aðgengileg,
  • og nægt rými sé til að skipta örugglega á milli afréttingar og þykktarheflunar.

Notaðu aðeins rafmagnstengingu sem uppfyllir kröfur vélarinnar. Láttu löggiltan rafverktaka yfirfara aðstöðuna ef vafi leikur á raflögn, öryggi eða fasafjölda.

2. Yfirferð og stilling borða og stýringar

Inn- og útmötunarborð afréttarans þurfa að vera hrein, stöðug og rétt stillt miðað við hnífakeflið. Skökk eða laus borð geta valdið ójafnri vinnslu og gert erfitt að mynda sléttan viðmiðunarflöt.

Stýring afréttarans þarf að vera traust og rétt stillt. Þegar vinna á hornréttan kant skal staðfesta 90° hornið með nákvæmum vinkli. Athugaðu stillinguna aftur ef stýringin hefur verið færð eða hallastilling notuð.

Fyrir notkun skaltu athuga að:

  • borðin séu laus við spæni, kvoðu og óhreinindi,
  • allar læsingar séu hertar,
  • dýptarstillingin hreyfist eðlilega,
  • stýringin sé stöðug og rétt læst,
  • og borðfletirnir séu lausir við ryð eða skemmdir sem geta hindrað mötun.

Ef viðurinn rennur illa yfir borðin má hreinsa þau og bera á viðeigandi vax eða renniefni sem framleiðandi samþykkir. Ekki nota olíukennd efni sem geta borist í viðinn og haft áhrif á límingu eða yfirborðsmeðferð.

3. Hnífar, skurðarhnífar og hnífakefli

Bitlausir, skemmdir eða rangt stilltir hnífar geta valdið rifnum viðaræðum, ójafnri áferð, auknum hávaða og meira álagi á mótor og mötunarbúnað.

Á hefðbundnu hnífakefli þurfa löngu hnífarnir að vera í sömu hæð og rétt stilltir miðað við útmötunarborðið. Notaðu stillimáta og aðferð sem framleiðandi tilgreinir. Rangt stilltir hnífar geta valdið því að efnið rekist í útmötunarborðið eða verði ekki unnið jafnt.

Á spíralhnífakefli skal skoða einstaka skurðarhnífa reglulega. Ef egg skemmist getur verið hægt að losa hnífinn, hreinsa sætið og snúa honum að ónotaðri egg. Skipta skal um hníf ef allar eggjar hans eru slitnar eða skemmdar.

Áður en unnið er við hnífakeflið:

  • slökktu á vélinni og aftengdu hana frá rafmagni,
  • bíddu þar til hnífakeflið hefur stöðvast að fullu,
  • tryggðu að keflið geti ekki snúist óvænt,
  • notaðu rétt verkfæri og viðeigandi vörn við meðhöndlun beittra hnífa,
  • hreinsaðu festifleti áður en hnífar eru settir aftur,
  • og hertu festingar samkvæmt leiðbeiningum framleiðanda.

Ef þú ert ekki viss um rétta stillingu eða uppsetningu skaltu leita aðstoðar hæfs þjónustuaðila.

4. Hlífar, ryksogshlíf og öryggisrofar

Hnífakeflið verður að vera varið með viðeigandi hlíf. Við afréttingu skal stilla hlífina þannig að aðeins sá hluti keflisins sem þarf fyrir vinnsluna sé opinn.

Á samsettum afréttara og þykktarhefli þarf yfirleitt að færa borð eða ryksogshlíf þegar skipt er á milli vinnsluaðferða. Fylgdu alltaf réttri röð samkvæmt handbók vélarinnar.

Margar vélar eru með öryggisrofa sem koma í veg fyrir gangsetningu nema borð, hlífar og ryksogsbúnaður séu í réttri stöðu. Ef vélin fer ekki í gang skaltu athuga uppsetninguna samkvæmt handbókinni.

Aldrei skal aftengja, festa inni eða fara fram hjá öryggisrofa. Ef rofi virkar ekki rétt skal taka vélina úr notkun þar til orsökin hefur verið fundin og viðgerð framkvæmd.

Áður en vélin er ræst skaltu staðfesta að:

  • allar hlífar séu á réttum stað,
  • borð og ryksogshlíf séu læst,
  • öryggisrofar séu óskemmdir,
  • og engin verkfæri eða lausir hlutir séu inni í vélinni.
5. Rétt skurðdýpt, mötun og stuðningur

Veldu skurðdýpt eftir breidd efnis, hörku viðarins og því hvort um grófvinnslu eða lokavinnslu er að ræða. Breitt eða hart efni krefst yfirleitt grynnri skurða en mjór og mjúkur viður.

Ekki fara yfir hámarksskurðdýpt framleiðanda. Hámarkstalan er ekki endilega heppileg stilling fyrir alla vinnu. Grunnir skurðir draga úr álagi og geta skilað jafnari yfirborðsáferð.

Við afréttingu skal halda vinnustykkinu stöðugu og færa stuðninginn yfir á útmötunarborðið þegar réttur hluti þess kemur yfir hnífakeflið. Ekki þrýsta bogið efni flötu, því það getur tekið aftur upp fyrra form þegar þrýstingnum er létt.

Við þykktarheflun þarf sléttur viðmiðunarflötur að snúa niður að borðinu. Ekki setja efni í vélina sem er styttra, þynnra eða mjórra en handbók framleiðanda heimilar.

Notaðu viðeigandi stuðning við langt efni, en gættu þess að stuðningurinn lyfti ekki vinnustykkinu eða þrýsti því niður. Stattu til hliðar við mögulega bakslagsleið og aldrei beint fyrir aftan vinnustykkið.

6. Ryksog, spænir og hreinsun

Afrétting og þykktarheflun mynda mikið magn af spæni. Tengdu öflugt sogkerfi með barka af réttri stærð og tryggðu að allar tengingar séu þéttar.

Stíflaður barki eða fullur safnpoki getur dregið úr loftflæði og valdið því að spænir safnist í vélinni. Það getur haft áhrif á mötun, yfirborðsáferð og kælingu vélarinnar.

Skoðaðu reglulega:

  • hvort barkar séu stíflaðir, klemmdir eða skemmdir,
  • hvort tengingar séu þéttar,
  • hvort safnílát eða poki þurfi tæmingu,
  • hvort síur séu hreinar,
  • og hvort spænir hafi safnast við mötunarbúnað eða hnífakefli.

Slökktu á vélinni og aftengdu hana frá rafmagni áður en stífla er fjarlægð eða vélin hreinsuð. Notaðu bursta eða sogbúnað til að fjarlægja spæni – ekki fingurna.

Forðastu að blása ryki með þrýstilofti inn í legur, mótor, rofa eða annan rafbúnað. Þrýstiloft getur þrýst ryki dýpra inn í vélina og dreift fínu ryki um verkstæðið.

7. Reglulegt eftirlit og viðhald

Viðhaldsþörf er mismunandi eftir vélum. Notendahandbókin á alltaf að vera aðalheimild um smurningu, stillingar, varahluti og tíðni viðhalds.

Athugaðu reglulega:

  • skerpu og ástand hnífa eða skurðarhnífa,
  • festingar hnífakeflis og hlífa,
  • ástand reima, keðja og drifbúnaðar,
  • mötunarrúllur og hvort spænir hafi safnast við þær,
  • borð, stýringar og læsingar,
  • festibolta og skrúfur,
  • öryggisrofa og neyðarrofa,
  • rafmagnssnúru, kló og tengingar,
  • og hvort óvenjulegur hávaði, titringur eða hiti hafi komið fram.

Notaðu aðeins þá smurningu og viðhaldsefni sem framleiðandi mælir með. Settu ekki olíu eða feiti á reimar, reimskífur, mötunarrúllur eða aðra fleti þar sem hún getur valdið skriði eða borist í smíðefnið.

Viðgerðir á rafbúnaði, legum, öryggisrofum eða flóknari drifbúnaði skulu vera í höndum hæfs aðila.

8. Öryggisrútína og lokatékk fyrir notkun

Áður en vélin er ræst er gott að fara alltaf yfir sömu atriðin:

  1. Stendur vélin stöðug og er hjólagrind læst?
  2. Eru borð, stýring og allar læsingar rétt stillt?
  3. Eru hnífar eða skurðarhnífar heilir og rétt festir?
  4. Eru hlífar og ryksogsbúnaður á réttum stað?
  5. Virka öryggisrofar og neyðarrofi rétt?
  6. Er rétt skurðdýpt stillt fyrir efnið?
  7. Er vinnustykkið laust við nagla, skrúfur, steina og aðskotahluti?
  8. Er sogkerfið tengt og tilbúið?
  9. Er inn- og útmötunarleiðin greið?
  10. Eru augn- og heyrnarhlífar tilbúnar og laus fatnaður fjarlægður?

Notaðu ekki hanska, lausan fatnað, skartgripi eða annað sem getur flækst í hreyfanlegum hlutum meðan vélin er í gangi. Sítt hár skal bundið upp.

Notaðu ýtikubba eða önnur viðeigandi hjálpartæki samkvæmt leiðbeiningum framleiðanda og haltu höndum frá hnífakeflinu.

Ef óvenjulegur hávaði, titringur, lykt eða hegðun kemur fram skaltu stöðva vélina strax. Aftengdu hana frá rafmagni og finndu orsökina áður en vinna heldur áfram.

Fleiri leiðbeiningar og fræðsla

Skoðaðu einnig rétta vinnuröð, val á vél og samanburð á hnífakeflum.

Rétt vinnuröð Val á vél Samanburður á hnífakeflum Aftur á fræðslusvæðið

Rykvarnir og heilsa á verkstæðinu

Fínt viðarryk getur haft áhrif á bæði heilsu og vinnuumhverfi. Í CamVac fræðslumiðstöð Record Power má finna upplýsingar um ryksöfnun, síun og val á réttu kerfi fyrir verkstæðið. Efnið er á ensku.

Skoða CamVac-fræðslu