Record Power – Borðsög

Góð borðsög er lykilbúnaður í flestum trésmíðaverkstæðum. Hún gerir bæði mögulegt að lang- og þversníða gegnheilan við með nákvæmni og afköstum, auk þess að saga plötuefni fljótt og örugglega. Borðsögin er oft upphafspunktur margra verkefna og ómissandi tól fyrir þá sem vilja faglegt vinnuflæði.
Borðsagir frá Record Power byggja á iðnaðarlegri hönnun og gæðum. Þær eru búnar steypujárns-sagareiningum á sterkum trunnions-festingum sem tryggja hámarks styrk, stöðugleika og nákvæmni. Engar aðrar vélar í þessum verðflokki bjóða upp á sambærileg gæði og byggingareiginleika.

Stærð viðarryks í míkrónum – það sem þú sérð ekki getur skaðað þig. Myndin sýnir mikilvægi öflugs ryksogskerfis.

Rykvarnir og heilsa 

Fínt viðarryk er ekki alltaf sýnilegt en getur borist djúpt niður í lungu. Rétt sogkerfi, góð síun og ryksöfnun við upptök skipta því miklu máli fyrir heilbrigðara og hreinna vinnuumhverfi.

Í CamVac-fræðslumiðstöð Record Power má finna ítarlegar upplýsingar um heilsufarsáhrif viðarryks, síun, loftflæði og val á réttu sogkerfi fyrir verkstæðið. Fræðsluefnið er á ensku.

Skoða CamVac-fræðslu

Hagnýtar upplýsingar

🔧Tæknilegar upplýsingar

Tæknilegar upplýsingar og handbækur má finna á heimasíðu Record Power undir Woodworking Machines.

Veldu viðkomandi tæki og skráðu þig inn á síðuna til að nálgast skráarsafnið (Downloads) þar sem öll tæknileg gögn og notendahandbækur eru aðgengileg.
👉 Sjá heimasíðu Record Power

💬Ábyrgð & þjónusta

Record Power leggur mikla áherslu á gæði og ánægju viðskiptavina.

Þess vegna fylgir langflestum Record Power vélum ókeypis **5 ára ábyrgð**,
sem er einstök í greininni.

Ábyrgðin nær yfir:
– Framleiðslugalla
– Efnisgalla
– Þjónustu og varahluti í gegnum viðurkenndan aðila á Íslandi

SG Handverk er opinber umboðs- og þjónustuaðili Record Power á Íslandi.

Við sjáum um varahluti, viðgerðir og ráðgjöf á ábyrgðartímanum. 

👉 Ábyrgð & Þjónusta

🪵Um Record Power

Record Power hefur í yfir 100 ár þróað og
framleitt vélar og verkfæri fyrir trésmíði og málmvinnslu. Fyrirtækið er þekkt fyrir gæði, áreiðanleika og sterka þjónustu við viðskiptavini um allan heim.

👉 Lestu meira um Record Power hér

🪵Afhverju Record Power?

Við sáum fljótt að Record Power tikkaði í flest boxin sem við höfðum sett okkur: gæði, öryggi, traust og langlíf hönnun.

👉 Lestu meira hér

📦Pantanir og greiðslufyrirkomulag

SG Handverk ehf. er umboðsaðili fyrir Record Power á Íslandi.

Til að tryggja hagkvæm kjör fyrir íslenska viðskiptavini byggir pöntunarferlið á sameiginlegum innflutningi og skýru fyrirkomulagi.

👉 Meira um pantanir og greiðslu-fyrirkomulag hér