Hoppa í vörulýsingu
1 af 4

Record Power TS250RS-PK/A borðsög 10" | SG Handverk

Record Power TS250RS-PK/A borðsög 10" | SG Handverk

Verð 415.534 ISK
Verð Útsöluverð 415.534 ISK
Útsala Seld – þessi flík hefur eignast nýjan eiganda
Sendingarkostnaður reiknast við greiðslu.

TS250RS Borðsög frá Record Power er öflug sög úr steypujárni sem fest er á öflugan  CNC fræstum leguramma úr steypujárni til að tryggja mikla nákvæmni og mjúka hreyfingu. Öll  einingin hvílir á styrktum stálgrunni sem dregur úr titringi og veitir framúrskarandi stöðugleika við vinnu.

Renniborðið hefur verið uppfært og býður, með valkvæðu hornstillanlegu rammaborði, upp á faglega lausn fyrir plötuskurð og krossskurð. Bæði borðin eru unnin með mikilli nákvæmni.

Blaðhalla og hæðarstilling eru stýrð af aðskildum kerfum sem knúin eru af sterkbyggðri stálskrúfu gengju (acme-þræði), sem tryggir mjúka og örugga notkun. Aðhaldið (rip fence) er fest á traustan stálstangarbúnað með þungri steypujárnsfestingu og fínstillingarmöguleikum.

Þessi vél gerir engar málamiðlanir – hún tryggir endurtekna nákvæmni bæði í plötuefni og massívum viði, og býður upp á einstök gæði fyrir verð. Ef þú ert að leita að fjölhæfri, vandaðri borðsög er vert að skoða TS250RS.

Vélin (á mynd) er sýnd með valkvæðu hægri hliðarlengingarborði.

🔹 Record Power á Íslandi – pöntunarferli

SG Handverk er viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Record Power á Íslandi.
Með sameiginlegum innflutningi tryggjum við hagstæðara verð og öruggan flutning.

Athugið:
Verð á vefnum miðast við nýjasta verð frá Record Power, áætlaðan flutningskostnað og USD/ISK miðgengi Seðlabanka Íslands við síðustu verðuppfærslu.

Pöntun er staðfest með 20% staðfestingargreiðslu samkvæmt proforma reikningi.
Við greiðslu hennar festist USD/ISK gengi pöntunar, sem gildir síðan fyrir lokareikning.

Staðfestingargreiðsla gengur upp í heildarverð pöntunar og eftirstöðvar greiðast samkvæmt reikningi áður en vara er afhent.

📦 Sjá nánari upplýsingar um pöntunar- og greiðslufyrirkomulag í fellilistanum „Pantanir og greiðslufyrirkomulag“ hér fyrir neðan.

Skoða nánar

Hagnýtar upplýsingar

🔧Tæknilegar upplýsingar

Tæknilegar upplýsingar og handbækur má finna á heimasíðu Record Power undir Woodworking Machines.

Veldu viðkomandi tæki og skráðu þig inn á síðuna til að nálgast skráarsafnið (Downloads) þar sem öll tæknileg gögn og notendahandbækur eru aðgengileg.
👉 Sjá heimasíðu Record Power

💬 Ábyrgð & þjónusta

Record Power leggur mikla áherslu á gæði og ánægju
viðskiptavina.

Þess vegna fylgir langflestum Record Power vélum ókeypis **5 ára ábyrgð**,
sem er einstök í greininni.

Ábyrgðin nær yfir:
– Framleiðslugalla
– Efnisgalla
– Þjónustu og varahluti í gegnum viðurkenndan aðila á Íslandi

SG Handverk er opinber umboðs- og þjónustuaðili Record
Power á Íslandi
.

Við sjáum um varahluti, viðgerðir og ráðgjöf á ábyrgðartímanum. 

👉 Ábyrgð & Þjónusta

🪵 Um Record Power

Record Power hefur í yfir 100 ár þróað og
framleitt vélar og verkfæri fyrir trésmíði og málmvinnslu. Fyrirtækið er þekkt
fyrir gæði, áreiðanleika og sterka þjónustu við viðskiptavini um allan heim.

👉 Lestu meira um Record Power hér

🪵Afhverju Record Power?

Við sáum fljótt að Record Power tikkaði í flest boxin sem við höfðum sett okkur: gæði, öryggi, traust og langlíf hönnun.

👉 Lestu meira hér

📦 Pantanir & greiðslufyrirkomulag

SG Handverk ehf. er umboðsaðili fyrir Record Power á Íslandi.

Til að tryggja hagkvæm kjör fyrir íslenska viðskiptavini byggir pöntunarferlið
á sameiginlegum innflutningi og skýru fyrirkomulagi.

👉 Meira um pantanir og greiðslufyrirkomulag hér