1 3

Lopasokkar 2

Lopasokkar 2

18.900 ISK
18.900 ISK

Gæðalegir Lopasokkar 2 eru hér á ferð þar sem útfærsla af fallegu ömmu-dúllunni er notuð með þessari skemtilegu útkomu. Þetta eru fallegir sokkar og sameinar því fegurð og notagildi og ekki er verra að Lopasokkar 2  eru einstakir í ofanálag. Það er mikilvægt að geta hlýjað sér í fallegum sokkum þegar kuldinn sækir að, hvort sem farið er í stígvélin og út eða bara upp í sófa.

Stærð: Lopasokkar 2 eru í stærðinni S-L og er lengd sokks frá hæl fram á tá 25 sm. en sokkarnir gefa vel eftir og henta því flestum.

Efni: Garnið er lopi, hlýr og góður og gæðalegur.

Þvottur:
Mikilkvægt er að meðhöndla hverja vöru frá Rósalínu með mildi þar sem efnisval er fjölbreytt í hverri flík. Mælt er með vægum handþvotti og einnig að flíkin sé látin liggja og þorna en um leið formuð til svo að hún haldi sem best sínu upprunalegu útliti.

Mikilvægt er að hafa í huga að handverk Rósalínu er einstakt og því er einungis um eitt stykki af vörunni að ræða en jafnframt að um handgerða flík er að ræða þar sem borið gæti á eðlilegum breytileika.