Hoppa í vörulýsingu
1 af 1

Record Power 3 hluta mynsturútskurðarsett | Vetrartilboð

Record Power 3 hluta mynsturútskurðarsett | Vetrartilboð

Verð 4,800 ISK
Verð Útsöluverð 4,800 ISK
Tilboð Seld – þessi flík hefur eignast nýjan eiganda
Sendingarkostnaður reiknast við greiðslu.

Record Power 3 hluta mynsturútskurðarsettið er handhægt verkfærasett fyrir mynstur, línur og nákvæm smáatriði í viðarútskurði.

Viðmiðunarverð er 6.300 kr. Sérstakt vetrartilboðsverð er 4.800 kr. Miðað við viðmiðunarverð sparar þú 1.500 kr.

Mismunandi blaðsnið verkfæranna gefa möguleika á fjölbreyttri mótun og henta jafnt fyrir fyrstu skrefin í útskurði sem smærri verkefni hjá reyndari notendum.

Vörulýsing

Þetta netta mynsturútskurðarsett frá Record Power inniheldur þrjú verkfæri með mismunandi blaðsniðum. Þau henta vel til að skera línur, mynda mynstur og vinna nákvæm smáatriði í tré.

Viðarhandföngin eru löguð til að veita þægilegt og öruggt grip. Smæð verkfæranna auðveldar stjórn við nákvæmisvinnu og gerir settið hentugt fyrir bæði byrjendur og lengra komna.

Verkfærin eru afhent í gegnsæjum umbúðum sem halda þeim saman og verja þau við geymslu.

Helstu eiginleikar

  • Þrjú útskurðarverkfæri
  • Mismunandi blaðsnið
  • Hentar fyrir línur, mynstur og smáatriði
  • Góð stjórn við nákvæmnisvinnu
  • Þægileg viðarhandföng
  • Hentar bæði byrjendum og lengra komnum
  • Lítið og handhægt sett
  • Vandaður búnaður frá Record Power

Settið inniheldur

  • Þrjú útskurðarverkfæri með mismunandi blaðsniðum
  • Gegnsæjar hlífðarumbúðir


Carving by Numbers – útskurður skref fyrir skref

Carving by Numbers er einfalt kennslukerfi þróað af útskurðarmeistaranum Mike Davies. Hvert járn er merkt með númeri sem tengist leiðbeiningum, mynstrum og verkefnum. Þannig er auðveldara að velja rétt verkfæri og byggja upp færni skref fyrir skref – hvort sem þú ert byrjandi eða hefur áður unnið við útskurð.

👉 Sjá stutta kynningu á Carving by Numbers
👉 Sjá verkefni og útskurðarverkfærin í notkun

👉 Af hverju Record Power? Lestu söguna okkar hér
👉 Frekari upplýsingar og tæknigögn má finna á heimasíðu Record Power Europe

Record Power á Íslandi – pöntunarferli

SG Handverk er viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Record Power á Íslandi. Með sameiginlegum innflutningi tryggjum við hagstæðara verð og öruggan flutning.

Athugið:

Verð á vefnum miðast við nýjasta verð frá Record Power, áætlaðan flutningskostnað og USD/ISK-miðgengi Seðlabanka Íslands við síðustu verðuppfærslu.

Pöntun er staðfest með 20% staðfestingargreiðslu samkvæmt proforma reikningi. Við greiðslu hennar festist USD/ISK-gengi pöntunar, sem gildir síðan fyrir lokareikning.

Staðfestingargreiðsla gengur upp í heildarverð pöntunar og eftirstöðvar greiðast samkvæmt reikningi áður en vara er afhent.

📦 Sjá nánari upplýsingar um pöntunar- og greiðslufyrirkomulag í fellilistanum „Pantanir og greiðslufyrirkomulag“ hér fyrir neðan.

Skoða nánar

Hagnýtar upplýsingar

🔧Tæknilegar upplýsingar

Tæknilegar upplýsingar og handbækur má finna á heimasíðu Record Power undir Woodworking Machines.

Veldu viðkomandi tæki og skráðu þig inn á síðuna til að nálgast skráarsafnið (Downloads) þar sem öll tæknileg gögn og notendahandbækur eru aðgengileg.
👉 Sjá heimasíðu Record Power

💬 Ábyrgð & þjónusta

Record Power leggur mikla áherslu á gæði og ánægju
viðskiptavina.

Þess vegna fylgir langflestum Record Power vélum ókeypis **5 ára ábyrgð**,
sem er einstök í greininni.

Ábyrgðin nær yfir:
– Framleiðslugalla
– Efnisgalla
– Þjónustu og varahluti í gegnum viðurkenndan aðila á Íslandi

SG Handverk er opinber umboðs- og þjónustuaðili Record
Power á Íslandi
.

Við sjáum um varahluti, viðgerðir og ráðgjöf á ábyrgðartímanum. 

👉 Ábyrgð & Þjónusta

🪵 Um Record Power

Record Power hefur í yfir 100 ár þróað og
framleitt vélar og verkfæri fyrir trésmíði og málmvinnslu. Fyrirtækið er þekkt
fyrir gæði, áreiðanleika og sterka þjónustu við viðskiptavini um allan heim.

👉 Lestu meira um Record Power hér

🪵Afhverju Record Power?

Við sáum fljótt að Record Power tikkaði í flest boxin sem við höfðum sett okkur: gæði, öryggi, traust og langlíf hönnun.

👉 Lestu meira hér

📦 Pantanir & greiðslufyrirkomulag

SG Handverk ehf. er umboðsaðili fyrir Record Power á Íslandi.

Til að tryggja hagkvæm kjör fyrir íslenska viðskiptavini byggir pöntunarferlið
á sameiginlegum innflutningi og skýru fyrirkomulagi.

👉 Meira um pantanir og greiðslufyrirkomulag hér