Hoppa í vörulýsingu
1 af 5

Record Power CamVac CGV286-4 og Defender 150 l spónsogskerfi | Vetrartilboð

Record Power CamVac CGV286-4 og Defender 150 l spónsogskerfi | Vetrartilboð

Verð 135,300 ISK
Verð Útsöluverð 135,300 ISK
Tilboð Seld – þessi flík hefur eignast nýjan eiganda
Sendingarkostnaður reiknast við greiðslu.

Í þessum pakka færðu Record Power CamVac CGV286-4 spónsugu og Defender 150 l forskilju, sem saman mynda öflugt og sveigjanlegt spónsogkerfi fyrir trésmíðaverkstæði.

Samanlagt viðmiðunarverð allra vara og fylgihluta í pakkanum er 145.600 kr., sé hver hluti keyptur sérstaklega. Sérstakt vetrarpakkaverð er 135.300 kr. Miðað við samanlagt viðmiðunarverð sparar þú 10.300 kr.

Defender-forskiljan safnar megninu af ryki og spæni áður en það berst í spónsuguna. Þannig eykst söfnunarrýmið, minna álag verður á síurnar og auðveldara er að tæma kerfið.

Pakkinn inniheldur

  • Record Power CamVac CGV286-4 spónsugu, 36 l
  • Record Power Defender vegghengda forskilju, 150 l
  • 2 m langan 100 mm sogbarka
  • DX100X Easy-Fit barkatengi
  • Bayonet-tengi fyrir spónsuguna
  • Tvö bayonet-tengi fyrir Defender-forskiljuna

Vörulýsing

Record Power CamVac CGV286-4 er fyrirferðarlítil 36 lítra spónsuga með tveimur 1.000 W mótorum og allt að 108 l/s loftflæði. Hún hentar vel fyrir minni og meðalstór trésmíðaverkstæði þar sem þörf er á miklu sogafli, fínni síun og sveigjanlegri uppsetningu.

Spónsugan notar sérstakt hringstreymisinntak sem beinir ryki og spæni eftir hliðum söfnunarílátsins. Þannig helst úrgangurinn betur frá síum og mótorum, álag á síukerfið minnkar og rykið fellur niður í botn ílátsins.

Þriggja þrepa síukerfið notar þvottanlegar tausíur ásamt pappírssíu og síar mjög fínt ryk. Útblásturskerfi mótoranna er jafnframt hannað til að draga úr hávaða. Með útblástursbörkum, sem seldir eru sérstaklega, má beina mótorhljóði og útblásturslofti frá vinnusvæðinu.

Defender 150 l forskiljan er sett á milli trésmíðavélarinnar og CamVac-spónsugunnar. Hringstreymi skilur meginhluta ryks og spænis frá loftinu áður en það berst áfram í spónsuguna.

Forskiljan notar 150 lítra gegnsæjan söfnunarpoka sem auðvelt er að fylgjast með og tæma. Vegghengd uppsetning sparar gólfpláss og gerir kleift að staðsetja forskiljuna þar sem gott aðgengi er að henni.

Með því að sameina CGV286-4 og Defender 150 l fæst öflugt spónsogkerfi með miklu söfnunarrými, hreinni síum og færri stoppum vegna tæmingar og viðhalds.

Helstu eiginleikar

  • Tveir 1.000 W mótorar
  • Allt að 2.000 W samanlagt mótorafl
  • Loftflæði allt að 108 l/s
  • 36 lítra söfnunarílát í spónsugu
  • 150 lítra söfnunarpoki í Defender-forskilju
  • Þriggja þrepa síun fyrir fínt ryk
  • Hringstreymisinntak sem heldur ryki frá síum
  • Forskilur ryk og spæni áður en loftið fer í spónsuguna
  • Minna álag á síur og lengri endingartími
  • Færri stopp vegna tæmingar
  • Vegghengd og plásssparandi Defender-forskilja
  • 100 mm bayonet-hraðtengingar
  • Hljóðdempandi mótorútblástur
  • Sveigjanleg uppsetning fyrir minni og meðalstór verkstæði

Tæknilýsing

  • Mótorafl: 2 × 1.000 W
  • Samanlagt mótorafl: 2.000 W
  • Loftflæði: 108 l/s, eða um 389 m³/klst.
  • Rúmtak CamVac-söfnunaríláts: 36 lítrar
  • Rúmtak Defender-söfnunarpoka: 150 lítrar
  • Fjöldi síuþrepa: 3
  • Þvermál tenginga: 100 mm
  • Stærð CGV286-4: 37 × 41,2 × 39,7 cm
  • Þyngd CGV286-4: 11 kg
  • Uppsetning Defender: vegghengd
  • Rafmagnstenging: evrópskur tengill

Pakkningamál og sendingarþyngd

Pakkinn er afhentur í tveimur kössum:

  • CGV286-4: 41,5 × 41,5 × 58 cm, 13,8 kg
  • Defender 150 l: 41 × 41 × 105 cm, 9,56 kg
  • Samanlögð sendingarþyngd: 23,36 kg

Athugið að eftir uppsetningu getur þurft viðbótar 100 mm sogbarka milli Defender-forskiljunnar og trésmíðavélarinnar. Lengd og útfærsla fer eftir staðsetningu búnaðarins og uppsetningu verkstæðisins.

Gólfstandur fyrir Defender-forskiljuna og útblástursbarkar til frekari hljóðlækkunar eru fáanleg sérstaklega.

Tilboðið gildir í takmarkaðan tíma og með fyrirvara um framboð. Pakkinn er pöntunarvara og áætlaður afhendingartími er staðfestur við pöntun.

👉 Af hverju Record Power? Lestu söguna okkar hér
👉 Frekari upplýsingar og tæknigögn má finna á heimasíðu Record Power Europe

Record Power á Íslandi – pöntunarferli

SG Handverk er viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Record Power á Íslandi. Með sameiginlegum innflutningi tryggjum við hagstæðara verð og öruggan flutning.

Athugið:

Verð á vefnum miðast við nýjasta verð frá Record Power, áætlaðan flutningskostnað og USD/ISK-miðgengi Seðlabanka Íslands við síðustu verðuppfærslu.

Pöntun er staðfest með 20% staðfestingargreiðslu samkvæmt proforma reikningi. Við greiðslu hennar festist USD/ISK-gengi pöntunar, sem gildir síðan fyrir lokareikning.

Staðfestingargreiðsla gengur upp í heildarverð pöntunar og eftirstöðvar greiðast samkvæmt reikningi áður en vara er afhent.

📦 Sjá nánari upplýsingar um pöntunar- og greiðslufyrirkomulag í fellilistanum „Pantanir og greiðslufyrirkomulag“ hér fyrir neðan.

Skoða nánar

Hagnýtar upplýsingar

🔧Tæknilegar upplýsingar

Tæknilegar upplýsingar og handbækur má finna á heimasíðu Record Power undir Woodworking Machines.

Veldu viðkomandi tæki og skráðu þig inn á síðuna til að nálgast skráarsafnið (Downloads) þar sem öll tæknileg gögn og notendahandbækur eru aðgengileg.
👉 Sjá heimasíðu Record Power

💬 Ábyrgð & þjónusta

Record Power leggur mikla áherslu á gæði og ánægju
viðskiptavina.

Þess vegna fylgir langflestum Record Power vélum ókeypis **5 ára ábyrgð**,
sem er einstök í greininni.

Ábyrgðin nær yfir:
– Framleiðslugalla
– Efnisgalla
– Þjónustu og varahluti í gegnum viðurkenndan aðila á Íslandi

SG Handverk er opinber umboðs- og þjónustuaðili Record
Power á Íslandi
.

Við sjáum um varahluti, viðgerðir og ráðgjöf á ábyrgðartímanum. 

👉 Ábyrgð & Þjónusta

🪵 Um Record Power

Record Power hefur í yfir 100 ár þróað og
framleitt vélar og verkfæri fyrir trésmíði og málmvinnslu. Fyrirtækið er þekkt
fyrir gæði, áreiðanleika og sterka þjónustu við viðskiptavini um allan heim.

👉 Lestu meira um Record Power hér

🪵Afhverju Record Power?

Við sáum fljótt að Record Power tikkaði í flest boxin sem við höfðum sett okkur: gæði, öryggi, traust og langlíf hönnun.

👉 Lestu meira hér

📦 Pantanir & greiðslufyrirkomulag

SG Handverk ehf. er umboðsaðili fyrir Record Power á Íslandi.

Til að tryggja hagkvæm kjör fyrir íslenska viðskiptavini byggir pöntunarferlið
á sameiginlegum innflutningi og skýru fyrirkomulagi.

👉 Meira um pantanir og greiðslufyrirkomulag hér