Hoppa í vörulýsingu
1 af 1

Record Power CGV286-3 - Wall sogvél 150 ltr | SG Handverk

Record Power CGV286-3 - Wall sogvél 150 ltr | SG Handverk

Verð 122.704 ISK
Verð Útsöluverð 122.704 ISK
Útsala Seld – þessi flík hefur eignast nýjan eiganda
Sendingarkostnaður reiknast við greiðslu.

150 lítra sogvél –  upphengjanlega með poka - nett og hljóðlát lausn fyrir smærri verkstæði

Þessi 150 lítra vél er með 2 x 1kw mótor og upphengjanleg, safnar spóni í poka sem auðvelt er að losa úr. Hentar vel minni verkstæðum.

Vegghengd sogvél – 150 lítra afkastageta

Innihald pakkans:

104730 Vegghengd sogvél (Compact Wall-Mounted Extractor)
105100 Bayonet-tengi fyrir CamVac vélar
DX100X 100 mm Easy-Fit slöngutengi
ZAMV 2 m af 100 mm útsogsslöngu

Þessi nettari, vegghengda sogvél býður upp á rausnarlega 150 lítra afkastagetu og er sérstaklega hentug til að þjónusta útsogskerfi í smærri verkstæðum.

Ryk og spónn safnast í endur­notanlegan poka sem festur er utan á sterkan stálgrindarkassa sem heldur forminu. Vélin nýtir cyclonic neutral vane tækni sem dregur spón og ryk inn með miklum krafti og beinir honum út að hliðum. Þetta heldur síunum hreinni og tryggir að spónar og ryk falli til botns í pokanum.

Lokið er með sérhönnuðum útblæstri fyrir mótorinn sem dregur úr hávaða. Með því að tengja valfrjálsa 2 ½" slöngu er hægt að beina hljóðinu frá vélinni og minnka þannig hávaðann í verkstæðinu.

🔹 Record Power á Íslandi – pöntunarferli

SG Handverk er viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Record Power á Íslandi.
Með sameiginlegum innflutningi tryggjum við hagstæðara verð og öruggan flutning.

Athugið:
Verð á vefnum miðast við nýjasta verð frá Record Power, áætlaðan flutningskostnað og USD/ISK miðgengi Seðlabanka Íslands við síðustu verðuppfærslu.

Pöntun er staðfest með 20% staðfestingargreiðslu samkvæmt proforma reikningi.
Við greiðslu hennar festist USD/ISK gengi pöntunar, sem gildir síðan fyrir lokareikning.

Staðfestingargreiðsla gengur upp í heildarverð pöntunar og eftirstöðvar greiðast samkvæmt reikningi áður en vara er afhent.

📦 Sjá nánari upplýsingar um pöntunar- og greiðslufyrirkomulag í fellilistanum „Pantanir og greiðslufyrirkomulag“ hér fyrir neðan.

Skoða nánar

Hagnýtar upplýsingar

🔧Tæknilegar upplýsingar

Tæknilegar upplýsingar og handbækur má finna á heimasíðu Record Power undir Woodworking Machines.

Veldu viðkomandi tæki og skráðu þig inn á síðuna til að nálgast skráarsafnið (Downloads) þar sem öll tæknileg gögn og notendahandbækur eru aðgengileg.
👉 Sjá heimasíðu Record Power

💬 Ábyrgð & þjónusta

Record Power leggur mikla áherslu á gæði og ánægju
viðskiptavina.

Þess vegna fylgir langflestum Record Power vélum ókeypis **5 ára ábyrgð**,
sem er einstök í greininni.

Ábyrgðin nær yfir:
– Framleiðslugalla
– Efnisgalla
– Þjónustu og varahluti í gegnum viðurkenndan aðila á Íslandi

SG Handverk er opinber umboðs- og þjónustuaðili Record
Power á Íslandi
.

Við sjáum um varahluti, viðgerðir og ráðgjöf á ábyrgðartímanum. 

👉 Ábyrgð & Þjónusta

🪵 Um Record Power

Record Power hefur í yfir 100 ár þróað og
framleitt vélar og verkfæri fyrir trésmíði og málmvinnslu. Fyrirtækið er þekkt
fyrir gæði, áreiðanleika og sterka þjónustu við viðskiptavini um allan heim.

👉 Lestu meira um Record Power hér

🪵Afhverju Record Power?

Við sáum fljótt að Record Power tikkaði í flest boxin sem við höfðum sett okkur: gæði, öryggi, traust og langlíf hönnun.

👉 Lestu meira hér

📦 Pantanir & greiðslufyrirkomulag

SG Handverk ehf. er umboðsaðili fyrir Record Power á Íslandi.

Til að tryggja hagkvæm kjör fyrir íslenska viðskiptavini byggir pöntunarferlið
á sameiginlegum innflutningi og skýru fyrirkomulagi.

👉 Meira um pantanir og greiðslufyrirkomulag hér