Record Power CGV386-6 sogvél 90 ltr | SG Handverk
Record Power CGV386-6 sogvél 90 ltr | SG Handverk
90 lítra sogvél – nett og hljóðlát lausn fyrir smærri verkstæði
Þessi 90 lítra vél er með 3 x 1kw mótor, gríðarlega öflug með þrjá mótora og hentar sérstaklega vel í minni og meðal stór rými.
Hún nýtir cyclonic neutral vane tækni sem dregur sagið inn með miklum krafti og beinir honum út að hliðum tunnunnar. Þetta heldur síunum hreinni og lætur ryk og spón falla til botns.
Lokið er með sérhönnuðum útblæstri fyrir mótorinn sem dregur úr hávaða. Með því að tengja valfrjálsa 2 ½" slöngu/sogbarka er hægt að beina hljóðinu frá vélinni og minnka þannig hávaðann enn frekar í verkstæðinu.
Fylgir með:
- ZAMV 2 m af 100 mm útsogsslöngu/barka
- DX100X Easy-Fit tengi
🔹 Record Power á Íslandi – pöntunarferli
SG Handverk er viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Record Power á Íslandi.
Með sameiginlegum innflutningi tryggjum við hagstæðara verð og öruggan flutning.
Athugið:
Verð á vefnum miðast við nýjasta verð frá Record Power, áætlaðan flutningskostnað og USD/ISK miðgengi Seðlabanka Íslands við síðustu verðuppfærslu.
Pöntun er staðfest með 20% staðfestingargreiðslu samkvæmt proforma reikningi.
Við greiðslu hennar festist USD/ISK gengi pöntunar, sem gildir síðan fyrir lokareikning.
Staðfestingargreiðsla gengur upp í heildarverð pöntunar og eftirstöðvar greiðast samkvæmt reikningi áður en vara er afhent.
📦 Sjá nánari upplýsingar um pöntunar- og greiðslufyrirkomulag í fellilistanum „Pantanir og greiðslufyrirkomulag“ hér fyrir neðan.

Hagnýtar upplýsingar
🔧Tæknilegar upplýsingar
Tæknilegar upplýsingar og handbækur má finna á heimasíðu Record Power undir Woodworking Machines.
Veldu viðkomandi tæki og skráðu þig inn á síðuna til að nálgast skráarsafnið (Downloads) þar sem öll tæknileg gögn og notendahandbækur eru aðgengileg.
👉 Sjá heimasíðu Record Power
💬 Ábyrgð & þjónusta
Record Power leggur mikla áherslu á gæði og ánægju
viðskiptavina.
Þess vegna fylgir langflestum Record Power vélum ókeypis **5 ára ábyrgð**,
sem er einstök í greininni.
Ábyrgðin nær yfir:
– Framleiðslugalla
– Efnisgalla
– Þjónustu og varahluti í gegnum viðurkenndan aðila á Íslandi
SG Handverk er opinber umboðs- og þjónustuaðili Record
Power á Íslandi.
Við sjáum um varahluti, viðgerðir og ráðgjöf á ábyrgðartímanum.
👉 Ábyrgð & Þjónusta
🪵 Um Record Power
Record Power hefur í yfir 100 ár þróað og
framleitt vélar og verkfæri fyrir trésmíði og málmvinnslu. Fyrirtækið er þekkt
fyrir gæði, áreiðanleika og sterka þjónustu við viðskiptavini um allan heim.
🪵Afhverju Record Power?
Við sáum fljótt að Record Power tikkaði í flest boxin sem við höfðum sett okkur: gæði, öryggi, traust og langlíf hönnun.
📦 Pantanir & greiðslufyrirkomulag
SG Handverk ehf. er umboðsaðili fyrir Record Power á Íslandi.
Til að tryggja hagkvæm kjör fyrir íslenska viðskiptavini byggir pöntunarferlið
á sameiginlegum innflutningi og skýru fyrirkomulagi.