Record Power DP25B standborvél | SG Handverk
Record Power DP25B standborvél | SG Handverk
DP25B – Standborvél
Góð, sérhönnuð borvél er ómissandi tæki á hverju verkstæði. DP25B sameinar fjölhæfni, trausta Record Power gæðahönnun og áreiðanleika – á hagkvæmu verði sem gerir hana einstaklega hagstæða fyrir áhugasmiði og kröfuharða DIY-unnendur.
Helstu eiginleikar
Fjölbreytt notkun – tekur við fjölmörgum borum og býður upp á 5 hraðastillingar, sem gera mögulegt að bora í tré, málma, plast og fleira.
Steypujárnsborð – stillist í allt að 45° halla, tekur við flestum skrúfstykkjum fyrir örugga festingu og meiri nákvæmni. Hægt er að færa borðið til hliðar og nota grunn vélarinnar sem vinnuborð fyrir stærri verkefni – einnig með skrúfuböndum.
Stöðug og örugg – steypujárn er notað í bæði borð og haus, sem eykur styrk, þyngd og dregur úr titringi. Hjólið er einnig úr steypujárni fyrir betri stjórn og áreiðanleika.
Stoppari fyrir borunardýpt – auðvelt að stilla með læsibúnaði (locking collar depth stop).
Hækkun/lækkun á borði er stutt af tannhjólakerfi (rack & pinion), eiginleiki sem oft aðeins finnst í stærri og dýrari vélum.
🔹 Record Power á Íslandi – pöntunarferli
SG Handverk er viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Record Power á Íslandi.
Með sameiginlegum innflutningi tryggjum við hagstæðara verð og öruggan flutning.
Athugið:
Verð á vefnum miðast við nýjasta verð frá Record Power, áætlaðan flutningskostnað og USD/ISK miðgengi Seðlabanka Íslands við síðustu verðuppfærslu.
Pöntun er staðfest með 20% staðfestingargreiðslu samkvæmt proforma reikningi.
Við greiðslu hennar festist USD/ISK gengi pöntunar, sem gildir síðan fyrir lokareikning.
Staðfestingargreiðsla gengur upp í heildarverð pöntunar og eftirstöðvar greiðast samkvæmt reikningi áður en vara er afhent.
📦 Sjá nánari upplýsingar um pöntunar- og greiðslufyrirkomulag í fellilistanum „Pantanir og greiðslufyrirkomulag“ hér fyrir neðan.

Hagnýtar upplýsingar
🔧Tæknilegar upplýsingar
Tæknilegar upplýsingar og handbækur má finna á heimasíðu Record Power undir Woodworking Machines.
Veldu viðkomandi tæki og skráðu þig inn á síðuna til að nálgast skráarsafnið (Downloads) þar sem öll tæknileg gögn og notendahandbækur eru aðgengileg.
👉 Sjá heimasíðu Record Power
💬 Ábyrgð & þjónusta
Record Power leggur mikla áherslu á gæði og ánægju
viðskiptavina.
Þess vegna fylgir langflestum Record Power vélum ókeypis **5 ára ábyrgð**,
sem er einstök í greininni.
Ábyrgðin nær yfir:
– Framleiðslugalla
– Efnisgalla
– Þjónustu og varahluti í gegnum viðurkenndan aðila á Íslandi
SG Handverk er opinber umboðs- og þjónustuaðili Record
Power á Íslandi.
Við sjáum um varahluti, viðgerðir og ráðgjöf á ábyrgðartímanum.
👉 Ábyrgð & Þjónusta
🪵 Um Record Power
Record Power hefur í yfir 100 ár þróað og
framleitt vélar og verkfæri fyrir trésmíði og málmvinnslu. Fyrirtækið er þekkt
fyrir gæði, áreiðanleika og sterka þjónustu við viðskiptavini um allan heim.
🪵Afhverju Record Power?
Við sáum fljótt að Record Power tikkaði í flest boxin sem við höfðum sett okkur: gæði, öryggi, traust og langlíf hönnun.
📦 Pantanir & greiðslufyrirkomulag
SG Handverk ehf. er umboðsaðili fyrir Record Power á Íslandi.
Til að tryggja hagkvæm kjör fyrir íslenska viðskiptavini byggir pöntunarferlið
á sameiginlegum innflutningi og skýru fyrirkomulagi.