Record Power fylgihlutir fyrir rennibekki | SG Handverk
Record Power fylgihlutir fyrir rennibekki | SG Handverk
Frábært úrval af fylgihlutum fyrir rennibekki tryggir að þegar þú fjárfestir í Record Power rennibekk færðu aðgang að fjölmörgum gagnlegum festingum og tólum sem gera þér kleift að láta hugmyndir og færni njóta sín til fulls.
Auk hágæða SC seríunni af patrónum býður Record Power upp á fjölda fylgihluta framleiddra í Bretlandi.
Vinnslutól úr bresku stáli eru framleidd samkvæmt ströngum gæðakröfum sem gera þau hentug fyrir bæði fagmenn og byrjendur. Þau eru hönnuð í samráði og prófuð af reyndum rennismiðum með það að markmiði að setja ný viðmið í gæðum og verðgildi.
Auk þess býður Record Power upp á Coronet Hawk og Coronet Falcon – sérframleiddan búnað fyrir höfuð- og halahluta rennibekksins. Þessi fylgihlutir eru einnig framleiddir í Bretlandi á eigin framleiðsluaðstöð Record Power, og eru unnir með hámarks nákvæmni til að tryggja frábæra frammistöðu og endingargæði.
Sjá nánar á heimasíðu Record Power
🔹 Record Power á Íslandi – pöntunarferli
SG Handverk er viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Record Power á Íslandi.
Með sameiginlegum innflutningi tryggjum við hagstæðara verð og öruggan flutning.
Athugið:
Verð á vefnum miðast við nýjasta verð frá Record Power, áætlaðan flutningskostnað og USD/ISK miðgengi Seðlabanka Íslands við síðustu verðuppfærslu.
Pöntun er staðfest með 20% staðfestingargreiðslu samkvæmt proforma reikningi.
Við greiðslu hennar festist USD/ISK gengi pöntunar, sem gildir síðan fyrir lokareikning.
Staðfestingargreiðsla gengur upp í heildarverð pöntunar og eftirstöðvar greiðast samkvæmt reikningi áður en vara er afhent.
📦 Sjá nánari upplýsingar um pöntunar- og greiðslufyrirkomulag í fellilistanum „Pantanir og greiðslufyrirkomulag“ hér fyrir neðan.
Margir byrja hér — en velja rangt í fyrstu. Við höfum sett saman einfaldan leiðarvísi sem útskýrir muninn á SC3 og SC4, hvaða klær gera hvað og hvað þú þarft í raun að byrja.
👉 Hvernig vel ég réttar patrónur og klær?

Hagnýtar upplýsingar
🔧Tæknilegar upplýsingar
Tæknilegar upplýsingar og handbækur má finna á heimasíðu Record Power undir Woodworking Machines.
Veldu viðkomandi tæki og skráðu þig inn á síðuna til að nálgast skráarsafnið (Downloads) þar sem öll tæknileg gögn og notendahandbækur eru aðgengileg.
👉 Sjá heimasíðu Record Power
💬 Ábyrgð & þjónusta
Record Power leggur mikla áherslu á gæði og ánægju
viðskiptavina.
Þess vegna fylgir langflestum Record Power vélum ókeypis **5 ára ábyrgð**,
sem er einstök í greininni.
Ábyrgðin nær yfir:
– Framleiðslugalla
– Efnisgalla
– Þjónustu og varahluti í gegnum viðurkenndan aðila á Íslandi
SG Handverk er opinber umboðs- og þjónustuaðili Record
Power á Íslandi.
Við sjáum um varahluti, viðgerðir og ráðgjöf á ábyrgðartímanum.
👉 Ábyrgð & Þjónusta
🪵 Um Record Power
Record Power hefur í yfir 100 ár þróað og
framleitt vélar og verkfæri fyrir trésmíði og málmvinnslu. Fyrirtækið er þekkt
fyrir gæði, áreiðanleika og sterka þjónustu við viðskiptavini um allan heim.
🪵Afhverju Record Power?
Við sáum fljótt að Record Power tikkaði í flest boxin sem við höfðum sett okkur: gæði, öryggi, traust og langlíf hönnun.
📦 Pantanir & greiðslufyrirkomulag
SG Handverk ehf. er umboðsaðili fyrir Record Power á Íslandi.
Til að tryggja hagkvæm kjör fyrir íslenska viðskiptavini byggir pöntunarferlið
á sameiginlegum innflutningi og skýru fyrirkomulagi.