Record Power PT107 afréttari og þykktarhefill með spíralhnífakefli | Vetrartilboð
Record Power PT107 afréttari og þykktarhefill með spíralhnífakefli | Vetrartilboð
Vetrartilboð – Record Power PT107 með spíralhnífakefli
Í takmarkaðan tíma býðst Record Power PT107 afréttari og þykktarhefill með spíralhnífakefli á sérstöku vetrartilboði.
Fyrra viðmiðunarverð var 416.000 kr. Sérstakt vetrartilboðsverð er 371.800 kr. Miðað við fyrra viðmiðunarverð sparar þú 44.200 kr.
PT107 er öflug og vönduð sambyggð vél fyrir þá sem vilja ná nákvæmari afréttingu og jafnari þykktarheflun með einni vél. Vélin er búin fjögurra raða spíralhnífakefli með 44 TCT-skurðarhnífum og hjólabúnaður fylgir.
Tilboðið gildir í takmarkaðan tíma og með fyrirvara um framboð. PT107 er pöntunarvara og áætlaður afhendingartími er staðfestur við pöntun.
Vörulýsing
PT107 – afréttari og þykktarhefill með spíralhnífakefli
Record Power PT107 hentar vandvirkum áhuga- og atvinnusmiðum sem gera kröfu um nákvæmni, áreiðanleika og vandaða yfirborðsáferð.
Í hjarta vélarinnar er spíralhnífakefli með 44 TCT-skurðarhnífum, sem raðað er í fjórar raðir. Hnífarnir skera viðinn á ská og skila hreinni og jafnari yfirborðsáferð en hefðbundið þriggja hnífa kefli.
Hver skurðarhnífur hefur fjórar skurðbrúnir. Þegar ein brún verður sljó er hnífnum einfaldlega snúið um 90° og ný skurðbrún tekin í notkun. Þetta einfaldar viðhald og TCT-hnífarnir endast mun lengur en hefðbundnir HSS-hnífar.
Spíralhnífakeflið myndar smærri og jafnari spón, sem auðveldar útsog og bætir loftflæði í vélinni. Skurðaraðferðin dregur jafnframt úr álagi á mótorinn og getur minnkað hávaða verulega samanborið við hefðbundið hnífakefli.
Stöðug og nákvæm vinnuborð
Þung vinnuborð úr steypujárni veita stöðugan vinnuflöt og stuðla að nákvæmri afréttingu. Inntaksborðið er stillt með traustu handfangi og skýrum dýptarmæli. Einnig er hægt að fínstilla úttaksborðið til að ná sem bestri nákvæmni.
Auðveld skipting í þykktarhefil
Vinnuborðið sveiflast til hliðar og auðveldar þannig skiptingu úr afréttara yfir í þykktarhefil. Þykktarhefilborðið hvílir á sterkri miðjusúlu sem veitir góðan stuðning við vinnslu þyngri viðarstykkja.
Gúmmíhúðað úttaksfærikefli dregur úr hættu á förum í viðnum og stuðlar að jafnri mötun í gegnum vélina.
Helstu eiginleikar
- Fjögurra raða spíralhnífakefli
- 44 TCT-skurðarhnífar með fjórum skurðbrúnum
- 265 mm hámarks vinnslubreidd
- 190 mm hámarks þykktarheflunarhæð
- Allt að 3 mm skurðardýpt við afréttingu
- Allt að 2 mm skurðardýpt við þykktarheflun
- 5 m/mín. mötunarhraði
- 2,2 kW mótor
- 1.110 mm löng afréttiborð
- Þung vinnuborð úr steypujárni
- Stillanleg inntaks- og úttaksborð
- Gúmmíhúðað úttaksfærikefli
- Hjólabúnaður fylgir
- Þyngd: 162 kg
- Stærð: H 950 × B 710 × D 1.110 mm
👉 Af hverju Record Power? Lestu söguna okkar hér
👉 Frekari upplýsingar og tæknigögn má finna á heimasíðu Record Power
Record Power á Íslandi – pöntunarferli
SG Handverk er viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Record Power á Íslandi. Með sameiginlegum innflutningi tryggjum við hagstæðara verð og öruggan flutning.
Athugið:
Verð á vefnum miðast við nýjasta verð frá Record Power, áætlaðan flutningskostnað og USD/ISK-miðgengi Seðlabanka Íslands við síðustu verðuppfærslu.
Pöntun er staðfest með 20% staðfestingargreiðslu samkvæmt proforma reikningi. Við greiðslu hennar festist USD/ISK-gengi pöntunar, sem gildir síðan fyrir lokareikning.
Staðfestingargreiðsla gengur upp í heildarverð pöntunar og eftirstöðvar greiðast samkvæmt reikningi áður en vara er afhent.
📦 Sjá nánari upplýsingar um pöntunar- og greiðslufyrirkomulag í fellilistanum „Pantanir og greiðslufyrirkomulag“ hér fyrir neðan.

Hagnýtar upplýsingar
🔧Tæknilegar upplýsingar
Tæknilegar upplýsingar og handbækur má finna á heimasíðu Record Power undir Woodworking Machines.
Veldu viðkomandi tæki og skráðu þig inn á síðuna til að nálgast skráarsafnið (Downloads) þar sem öll tæknileg gögn og notendahandbækur eru aðgengileg.
👉 Sjá heimasíðu Record Power
💬 Ábyrgð & þjónusta
Record Power leggur mikla áherslu á gæði og ánægju
viðskiptavina.
Þess vegna fylgir langflestum Record Power vélum ókeypis **5 ára ábyrgð**,
sem er einstök í greininni.
Ábyrgðin nær yfir:
– Framleiðslugalla
– Efnisgalla
– Þjónustu og varahluti í gegnum viðurkenndan aðila á Íslandi
SG Handverk er opinber umboðs- og þjónustuaðili Record
Power á Íslandi.
Við sjáum um varahluti, viðgerðir og ráðgjöf á ábyrgðartímanum.
👉 Ábyrgð & Þjónusta
🪵 Um Record Power
Record Power hefur í yfir 100 ár þróað og
framleitt vélar og verkfæri fyrir trésmíði og málmvinnslu. Fyrirtækið er þekkt
fyrir gæði, áreiðanleika og sterka þjónustu við viðskiptavini um allan heim.
🪵Afhverju Record Power?
Við sáum fljótt að Record Power tikkaði í flest boxin sem við höfðum sett okkur: gæði, öryggi, traust og langlíf hönnun.
📦 Pantanir & greiðslufyrirkomulag
SG Handverk ehf. er umboðsaðili fyrir Record Power á Íslandi.
Til að tryggja hagkvæm kjör fyrir íslenska viðskiptavini byggir pöntunarferlið
á sameiginlegum innflutningi og skýru fyrirkomulagi.