Hoppa í vörulýsingu
1 af 6

Record Power PT310-HB Spiral | Summer Madness | SG Handverk

Record Power PT310-HB Spiral | Summer Madness | SG Handverk

Verð 483.423 ISK
Verð Útsöluverð 483.423 ISK
Útsala Seld – þessi flík hefur eignast nýjan eiganda
Sendingarkostnaður reiknast við greiðslu.

SUMMER MADNESS TILBOÐ

Sérstakt Summer Madness verð á Record Power PT310-HB afréttara og þykktarhefli með Spiral hnífakefli.

PT310-HB sameinar nákvæmni, afköst og notendavæna hönnun í einni vél sem hentar bæði metnaðarfullum áhugamönnum og fagfólki.

Tilboðið gildir til 31. ágúst 2026 eða á meðan Summer Madness herferð stendur yfir.
Pantaðu núna – afhending í júlí - september 2026.

Lýsing á vöru:
Record Power PT310 – öflugur afréttari og þykktarhefill með 56 hnífa spíralkefli, hjólabúnaði og stafrænum mæli (ein fasa).

PT310-HB sameinar nákvæmni, kraft og einfaldleika í einni vél sem hönnuð er fyrir kröfuharða notendur sem vilja faglega lausn til nákvæmrar vinnslu á timbri.

Í hjarta tækisins er spíral hnífakefli með 56 TCT tönnum sem raðað er í fjórum röðum eftir keflinu. Hnífarnir eru kúptir í laginu og skera í skáhorni, sem tryggir einstaklega vandað yfirborð. Þessi aðferð er afar skilvirk, dregur úr aflnotkun og minnkar álag á vélina miðað við hefðbundinn 3-hnífa kefli. Spírallaga fyrirkomulagið bætir einnig loftflæði og tryggir betra útsog frá vélinni með hjálp Camvac sogkerfisins, og minnkar hávaða um allt að 50% miðað við hefðbundnar vélar.

Spírallaga hnífakeflið myndar lítinn, jafn stóran spón sem auðveldar ryk- og spónaútsog og eykur þar með afköst. TCT-hnífarnir endast 10–20 sinnum lengur en hefðbundnir HSS-hnífar, og hver skurðhaus hefur fjórar hliðar. Þegar hnífur slípast, er þeim einfaldlega snúið til að fá ferska egg. Miðað við hefðbundinn 3-hnífa hnífakefli er hnífaskipti og stilling einföld þar sem hver skurðatönn er föst í sínu sæti – engin flókin stilling nausynleg.

Eitt af lykileinkennum PT310-HB er samsíða lyftikerfi borðanna. Skiptingin úr afréttara yfir í þykktarhefil er hröð og einföld – losaðu einfaldlega cam-læsingarnar og lyftu öllu borðinu ásamt aðhaldinu í einni hreyfingu.

Til að tryggja sem sléttast og best yfirborð er útdráttarvalsinn gúmmíhúðaður, sem dregur úr förum í timbrinu við þyktarheflun. PT310-HB er því einfaldur í notkun, öflugur og nákvæmur og skilar faglegri vinnu.

🔹 Record Power á Íslandi – pöntunarferli

SG Handverk er viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Record Power á Íslandi.
Með sameiginlegum innflutningi tryggjum við hagstæðara verð og öruggan flutning.

Athugið:
Verð á vefnum miðast við nýjasta verð frá Record Power, áætlaðan flutningskostnað og USD/ISK miðgengi Seðlabanka Íslands við síðustu verðuppfærslu.

Pöntun er staðfest með 20% staðfestingargreiðslu samkvæmt proforma reikningi.
Við greiðslu hennar festist USD/ISK gengi pöntunar, sem gildir síðan fyrir lokareikning.

Staðfestingargreiðsla gengur upp í heildarverð pöntunar og eftirstöðvar greiðast samkvæmt reikningi áður en vara er afhent.

📦 Sjá nánari upplýsingar um pöntunar- og greiðslufyrirkomulag í fellilistanum „Pantanir og greiðslufyrirkomulag“ hér fyrir neðan.

Skoða nánar

Hagnýtar upplýsingar

🔧Tæknilegar upplýsingar

Tæknilegar upplýsingar og handbækur má finna á heimasíðu Record Power undir Woodworking Machines.

Veldu viðkomandi tæki og skráðu þig inn á síðuna til að nálgast skráarsafnið (Downloads) þar sem öll tæknileg gögn og notendahandbækur eru aðgengileg.
👉 Sjá heimasíðu Record Power

💬 Ábyrgð & þjónusta

Record Power leggur mikla áherslu á gæði og ánægju
viðskiptavina.

Þess vegna fylgir langflestum Record Power vélum ókeypis **5 ára ábyrgð**,
sem er einstök í greininni.

Ábyrgðin nær yfir:
– Framleiðslugalla
– Efnisgalla
– Þjónustu og varahluti í gegnum viðurkenndan aðila á Íslandi

SG Handverk er opinber umboðs- og þjónustuaðili Record
Power á Íslandi
.

Við sjáum um varahluti, viðgerðir og ráðgjöf á ábyrgðartímanum. 

👉 Ábyrgð & Þjónusta

🪵 Um Record Power

Record Power hefur í yfir 100 ár þróað og
framleitt vélar og verkfæri fyrir trésmíði og málmvinnslu. Fyrirtækið er þekkt
fyrir gæði, áreiðanleika og sterka þjónustu við viðskiptavini um allan heim.

👉 Lestu meira um Record Power hér

🪵Afhverju Record Power?

Við sáum fljótt að Record Power tikkaði í flest boxin sem við höfðum sett okkur: gæði, öryggi, traust og langlíf hönnun.

👉 Lestu meira hér

📦 Pantanir & greiðslufyrirkomulag

SG Handverk ehf. er umboðsaðili fyrir Record Power á Íslandi.

Til að tryggja hagkvæm kjör fyrir íslenska viðskiptavini byggir pöntunarferlið
á sameiginlegum innflutningi og skýru fyrirkomulagi.

👉 Meira um pantanir og greiðslufyrirkomulag hér