Hoppa í vörulýsingu
1 af 1

Record Power RSBG8 bekkjarslípirokkur 200 mm | Vetrartilboð

Record Power RSBG8 bekkjarslípirokkur 200 mm | Vetrartilboð

Verð 23,700 ISK
Verð Útsöluverð 23,700 ISK
Tilboð Seld – þessi flík hefur eignast nýjan eiganda
Sendingarkostnaður reiknast við greiðslu.

Vetrartilboð – Record Power RSBG8 bekkjarslípirokkur

Record Power RSBG8 er öflugur og stöðugur 200 mm bekkjarslípirokkur fyrir brýningu rennijárna og annarra eggverkfæra, ásamt almennri slípun og mótun á verkstæðinu.

Fyrra viðmiðunarverð var 26.600 kr. Sérstakt vetrartilboðsverð er 23.700 kr. Miðað við fyrra viðmiðunarverð sparar þú 2.900 kr.

Vörulýsing

Record Power RSBG8 hefur lengi verið þekktur fyrir trausta byggingu og áreiðanleika. Öflugur mótor, steypujárnsbotn og breitt vélarhús veita góðan stöðugleika og henta vélinni vel fyrir heimaverkstæði og krefjandi áhugafólk.

Vélin er búin tveimur 200 mm slípihjólum sem henta fyrir mismunandi verkefni.

Hvítt fínslípihjól fyrir HSS-rennijárn

Hvíta slípihjólið er 40 mm breitt og gefur fínni áferð. Það hentar sérstaklega vel til að skerpa HSS-rennijárn og önnur eggverkfæri þar sem góð stjórn og nákvæmur frágangur skipta máli.

Grátt hjól fyrir grófari slípun

Gráa slípihjólið er 25 mm breitt og hentar fyrir grófari slípun, mótun og almenn verkefni á verkstæðinu.

Stöðug og nákvæm vinnsla

Traustur steypujárnsbotn, breitt vélarhús og gúmmífætur draga úr titringi og stuðla að mjúkri og stöðugri vinnslu. Breitt vélarhúsið dregur jafnframt úr álagi á legurnar.

Stillanlegir verkfærastuðningar veita góðan stuðning við fjölbreytt slípi- og brýningarverkefni. Stillanlegar neistahlífar auka öryggi og neistahlífin við hvíta slípihjólið er með stækkunargleri sem auðveldar nákvæma brýningu.

Helstu eiginleikar

  • Tvö 200 mm slípihjól
  • 40 mm breitt hvítt fínslípihjól
  • Hvíta hjólið hentar sérstaklega fyrir HSS-rennijárn
  • 25 mm breitt grátt hjól fyrir grófari slípun og mótun
  • Stillanlegir verkfærastuðningar
  • Stillanlegar neistahlífar
  • Stækkunargler við hvíta slípihjólið
  • Traustur steypujárnsbotn
  • Breitt og stöðugt vélarhús
  • Gúmmífætur sem draga úr titringi
  • 230 V með evrópskri kló

Tæknilegar upplýsingar

  • Þvermál slípihjóla: 200 mm
  • Breidd hvíts fínslípihjóls: 40 mm
  • Breidd grás grófslípihjóls: 25 mm
  • Mótorafl inn: 0,55 kW
  • Mótorafl út: 0,39 kW
  • Snúningshraði: 2.850 sn./mín.
  • Hraði við jaðar slípihjóls: 30 m/sek.
  • Nettóþyngd: 17 kg

👉 Af hverju Record Power? Lestu söguna okkar hér

👉 Frekari upplýsingar og tæknigögn má finna á heimasíðu Record Power Europe

Record Power á Íslandi – pöntunarferli

SG Handverk er viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Record Power á Íslandi. Með sameiginlegum innflutningi tryggjum við hagstæðara verð og öruggan flutning.

Athugið:

Verð á vefnum miðast við nýjasta verð frá Record Power, áætlaðan flutningskostnað og USD/ISK-miðgengi Seðlabanka Íslands við síðustu verðuppfærslu.

Pöntun er staðfest með 20% staðfestingargreiðslu samkvæmt proforma reikningi. Við greiðslu hennar festist USD/ISK-gengi pöntunar, sem gildir síðan fyrir lokareikning.

Staðfestingargreiðsla gengur upp í heildarverð pöntunar og eftirstöðvar greiðast samkvæmt reikningi áður en vara er afhent.

📦 Sjá nánari upplýsingar um pöntunar- og greiðslufyrirkomulag í fellilistanum „Pantanir og greiðslufyrirkomulag“ hér fyrir neðan.

Skoða nánar

Hagnýtar upplýsingar

🔧Tæknilegar upplýsingar

Tæknilegar upplýsingar og handbækur má finna á heimasíðu Record Power undir Woodworking Machines.

Veldu viðkomandi tæki og skráðu þig inn á síðuna til að nálgast skráarsafnið (Downloads) þar sem öll tæknileg gögn og notendahandbækur eru aðgengileg.
👉 Sjá heimasíðu Record Power

💬 Ábyrgð & þjónusta

Record Power leggur mikla áherslu á gæði og ánægju
viðskiptavina.

Þess vegna fylgir langflestum Record Power vélum ókeypis **5 ára ábyrgð**,
sem er einstök í greininni.

Ábyrgðin nær yfir:
– Framleiðslugalla
– Efnisgalla
– Þjónustu og varahluti í gegnum viðurkenndan aðila á Íslandi

SG Handverk er opinber umboðs- og þjónustuaðili Record
Power á Íslandi
.

Við sjáum um varahluti, viðgerðir og ráðgjöf á ábyrgðartímanum. 

👉 Ábyrgð & Þjónusta

🪵 Um Record Power

Record Power hefur í yfir 100 ár þróað og
framleitt vélar og verkfæri fyrir trésmíði og málmvinnslu. Fyrirtækið er þekkt
fyrir gæði, áreiðanleika og sterka þjónustu við viðskiptavini um allan heim.

👉 Lestu meira um Record Power hér

🪵Afhverju Record Power?

Við sáum fljótt að Record Power tikkaði í flest boxin sem við höfðum sett okkur: gæði, öryggi, traust og langlíf hönnun.

👉 Lestu meira hér

📦 Pantanir & greiðslufyrirkomulag

SG Handverk ehf. er umboðsaðili fyrir Record Power á Íslandi.

Til að tryggja hagkvæm kjör fyrir íslenska viðskiptavini byggir pöntunarferlið
á sameiginlegum innflutningi og skýru fyrirkomulagi.

👉 Meira um pantanir og greiðslufyrirkomulag hér