Record Power SABRE-300 + AC400 | Summer Madness | SG Handverk
Record Power SABRE-300 + AC400 | Summer Madness | SG Handverk
SUMMER MADNESS TILBOÐ
Í takmarkaðan tíma fylgir Record Power AC400 loftsía
með SABRE-300 bandsög á sérstöku pakkaverði.
Öflug bandsög ásamt skilvirkum loftsíubúnaði sem hjálpar
til við að halda vinnurýminu hreinna og þægilegra.
Tilboðið gildir til 31. ágúst 2026 eða á meðan Summer Madness herferð stendur yfir.
Pantaðu núna – afhending í júlí - september 2026.
SABRE-300 er nýjasta viðbótin í SABRE-línunni frá Record Power og sameinar nýjustu tækni, öflugan mótor og fjölhæfa eiginleika í hentugri stærð fyrir flest hobby verkstæði sem og jafnvel stærri verkstæði. Hún er hönnuð fyrir þá sem vilja bæði nákvæmni og afl, hvort sem unnið er með smáar fíngerðar einingar eða stærri vinnustykki.
Sögin er búin aðhaldi "rip fence" með míkróstillingu sem gerir kleift að staðsetja aðhaldið með mikilli nákvæmni og hraða. Hágæða blaðaleiðarar úr O1 stáli auka stöðugleika, minnka titring og dreifa hita betur en keramik, sem lengir endingu blaða og tryggir betri árangur. Allar stillingar eru gerðar án verkfæra með handhægum læsingum.
Öflug rykvörn með tveimur sogtengjum (hlið og aftan) sem tengjast beint við CamVac og önnur sogkerfi Record Power. Innbyggt ryklok í neðri skáp bætir soggetu enn frekar og tryggir hreinna vinnuumhverfi.
Með SABRE-300 færðu öfluga, nákvæma og fjölhæfa bandsög sem stenst samanburð við mun stærri og dýrari vélar – hentug stærð sem hentar bæði áhugamönnum og fagmönnum.
🔹 Record Power á Íslandi – pöntunarferli
SG Handverk er viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Record Power á Íslandi.
Með sameiginlegum innflutningi tryggjum við hagstæðara verð og öruggan flutning.
Athugið:
Verð á vefnum miðast við nýjasta verð frá Record Power, áætlaðan flutningskostnað og USD/ISK miðgengi Seðlabanka Íslands við síðustu verðuppfærslu.
Pöntun er staðfest með 20% staðfestingargreiðslu samkvæmt proforma reikningi.
Við greiðslu hennar festist USD/ISK gengi pöntunar, sem gildir síðan fyrir lokareikning.
Staðfestingargreiðsla gengur upp í heildarverð pöntunar og eftirstöðvar greiðast samkvæmt reikningi áður en vara er afhent.
📦 Sjá nánari upplýsingar um pöntunar- og greiðslufyrirkomulag í fellilistanum „Pantanir og greiðslufyrirkomulag“ hér fyrir neðan.

Hagnýtar upplýsingar
🔧Tæknilegar upplýsingar
Tæknilegar upplýsingar og handbækur má finna á heimasíðu Record Power undir Woodworking Machines.
Veldu viðkomandi tæki og skráðu þig inn á síðuna til að nálgast skráarsafnið (Downloads) þar sem öll tæknileg gögn og notendahandbækur eru aðgengileg.
👉 Sjá heimasíðu Record Power
💬 Ábyrgð & þjónusta
Record Power leggur mikla áherslu á gæði og ánægju
viðskiptavina.
Þess vegna fylgir langflestum Record Power vélum ókeypis **5 ára ábyrgð**,
sem er einstök í greininni.
Ábyrgðin nær yfir:
– Framleiðslugalla
– Efnisgalla
– Þjónustu og varahluti í gegnum viðurkenndan aðila á Íslandi
SG Handverk er opinber umboðs- og þjónustuaðili Record
Power á Íslandi.
Við sjáum um varahluti, viðgerðir og ráðgjöf á ábyrgðartímanum.
👉 Ábyrgð & Þjónusta
🪵 Um Record Power
Record Power hefur í yfir 100 ár þróað og
framleitt vélar og verkfæri fyrir trésmíði og málmvinnslu. Fyrirtækið er þekkt
fyrir gæði, áreiðanleika og sterka þjónustu við viðskiptavini um allan heim.
🪵Afhverju Record Power?
Við sáum fljótt að Record Power tikkaði í flest boxin sem við höfðum sett okkur: gæði, öryggi, traust og langlíf hönnun.
📦 Pantanir & greiðslufyrirkomulag
SG Handverk ehf. er umboðsaðili fyrir Record Power á Íslandi.
Til að tryggja hagkvæm kjör fyrir íslenska viðskiptavini byggir pöntunarferlið
á sameiginlegum innflutningi og skýru fyrirkomulagi.