🔨 Record Power – Pússun, slípun og brýning 

Rétt slípun og vönduð brýning skila betri árangri, meiri nákvæmni og öruggari vinnu.
Hér finnur þú vélar og fylgihluti fyrir pússun, mótun og brýningu verkfæra. Úrvalið nær meðal annars yfir diskaslípivélar, belta- og diskislípivélar, hefðbundnar bekkjarslípirokkar og vatnsbrýningarkerfi fyrir nákvæma egg.

Stærð viðarryks í míkrónum – það sem þú sérð ekki getur skaðað þig. Myndin sýnir mikilvægi öflugs ryksogskerfis.

Rykvarnir og heilsa 

Fínt viðarryk er ekki alltaf sýnilegt en getur borist djúpt niður í lungu. Rétt sogkerfi, góð síun og ryksöfnun við upptök skipta því miklu máli fyrir heilbrigðara og hreinna vinnuumhverfi.

Í CamVac-fræðslumiðstöð Record Power má finna ítarlegar upplýsingar um heilsufarsáhrif viðarryks, síun, loftflæði og val á réttu sogkerfi fyrir verkstæðið. Fræðsluefnið er á ensku.

Skoða CamVac-fræðslu

Hagnýtar upplýsingar

🔧 Tæknilegar upplýsingar

Tæknilegar upplýsingar og handbækur má finna á heimasíðu Record Power undir Woodworking Machines.

Veldu viðkomandi tæki og skráðu þig inn á síðuna til að nálgast skrársafnið (Downloads) þar sem öll tæknileg gögn og notendahandbækur eru aðgengileg.

👉 Sjá heimasíðu Record Power

🛡️ Ábyrgð og þjónusta

Record Power leggur mikla áherslu á gæði og ánægju viðskiptavina. Þess vegna fylgir langflestum Record Power-vélum ókeypis 5 ára ábyrgð, sem er einstök í greininni.

Ábyrgðin nær yfir:
– Framleiðslugalla
– Efnisgalla
– Þjónustu og varahluti í gegnum viðurkenndan aðila á Íslandi

SG Handverk er opinber umboðs- og þjónustuaðili Record Power á Íslandi. Við sjáum um varahluti, viðgerðir og ráðgjöf á ábyrgðartímanum.

👉 Ábyrgð og þjónusta

🏭 Um Record Power

Record Power hefur í yfir 100 ár þróað og framleitt vélar og verkfæri fyrir trésmíði og málmvinnslu. Fyrirtækið er þekkt fyrir gæði, áreiðanleika og öfluga þjónustu við viðskiptavini um allan heim.

👉 Lestu meira um Record Power

⭐ Af hverju Record Power?

Við sáum fljótt að Record Power uppfyllti flest þau skilyrði sem við höfðum sett okkur: gæði, öryggi, traust og endingargóða hönnun.

👉 Lestu meira hér

📦 Pantanir og greiðslufyrirkomulag

SG Handverk ehf. er umboðsaðili Record Power á Íslandi.

Til að tryggja hagkvæm kjör fyrir íslenska viðskiptavini byggir pöntunarferlið á sameiginlegum innflutningi og skýru fyrirkomulagi.

👉 Meira um pantanir og greiðslufyrirkomulag