Record Power - Afréttarar/þykktarheflar

Afréttarar/þykktarheflar gera trésmíðar bæði einfaldari og nákvæmari.
Þeir losa þig undan kostnaði og fyrirhöfn við að treysta á fyrirfram unnið efni og hjálpa þér þannig að lækka framleiðslukostnað og bæta gæði verksins.

Pantanir og greiðslufyrirkomulag

Athugið
Verð á Record Power vélum eru leiðbeinandi og miðast við núverandi
forsendur. Endanlegt verð getur tekið breytingum eftir pöntunarferli, framboði
og sendingarkostnaði. Við hvetjum viðskiptavini til að hafa samband áður en
pöntun er staðfest, svo hægt sé að tryggja rétta útfærslu, örugga afhendingu og
bestu mögulegu lausn hverju sinni.

Sjá nánar um pantanir og greiðslufyrirkomulag í fellilista hér fyrir neðan.

Hagnýtar upplýsingar

🔧Tæknilegar upplýsingar

Tæknilegar upplýsingar og handbækur má finna á heimasíðu Record Power undir Woodworking Machines.

Veldu viðkomandi tæki og skráðu þig inn á síðuna til að nálgast skráarsafnið (Downloads) þar sem öll tæknileg gögn og notendahandbækur eru aðgengileg.
👉 Sjá heimasíðu Record Power

💬Ábyrgð & þjónusta

Record Power leggur mikla áherslu á gæði og ánægju viðskiptavina.

Þess vegna fylgir langflestum Record Power vélum ókeypis **5 ára ábyrgð**,
sem er einstök í greininni.

Ábyrgðin nær yfir:
– Framleiðslugalla
– Efnisgalla
– Þjónustu og varahluti í gegnum viðurkenndan aðila á Íslandi

SG Handverk er opinber umboðs- og þjónustuaðili Record Power á Íslandi.

Við sjáum um varahluti, viðgerðir og ráðgjöf á ábyrgðartímanum. 

👉 Ábyrgð & Þjónusta

🪵Um Record Power

Record Power hefur í yfir 100 ár þróað og
framleitt vélar og verkfæri fyrir trésmíði og málmvinnslu. Fyrirtækið er þekkt fyrir gæði, áreiðanleika og sterka þjónustu við viðskiptavini um allan heim.

👉 Lestu meira um Record Power hér

🪵Afhverju Record Power?

Við sáum fljótt að Record Power tikkaði í flest boxin sem við höfðum sett okkur: gæði, öryggi, traust og langlíf hönnun.

👉 Lestu meira hér

📦Pantanir og greiðslufyrirkomulag

SG Handverk ehf. er umboðsaðili fyrir Record Power á Íslandi. Til að tryggja hagkvæm kjör fyrir íslenska viðskiptavini byggir pöntunarferlið á sameiginlegum innflutningi og skýru fyrirkomulagi.

👉Meira um pantanir og greiðslu-fyrirkomulag hér