Hoppa í vörulýsingu
1 af 9

Record Power SC4 patróna M33 × 3.5 | SG Handverk

Record Power SC4 patróna M33 × 3.5 | SG Handverk

Verð 30.180 ISK
Verð Útsöluverð 30.180 ISK
Útsala Seld – þessi flík hefur eignast nýjan eiganda
Sendingarkostnaður reiknast við greiðslu.

SC4 patrónan er stærri og öflugri patróna en SC3 og hönnuð fyrir stærri vinnustykki og kröfuharðari verkefni í rennismíði. Hún getur haldið stórum vinnustykkjum en býður jafnframt upp á þá nákvæmni og stjórnun sem þarf fyrir smærri og viðkvæmari verkefni. 

Patrónan er með lokuðum bakflansi og indexplötu og er búin gírtönnum sem eru knúnar með sexkantslykli með kúluenda. Það auðveldar aðgang og stillingar, jafnvel þegar stór vinnustykki eru fest í patrónunni.

SC4 patrónan er með M33 × 3,5 beinu snitti, sem gerir hana samhæfa við alla rennibekki frá Record Power og marga aðra rennibekki sem nota sama snitt.

SC4 patrónan er afhent með:

  • Deep Wood Screw (djúp viðarskrúfa)
  • 50 mm staðalbökkum
  • 87 mm faceplate

Þessi pakkning býður upp á faglega frammistöðu á mjög hagstæðu verði.

Lokaður bakflans og 72 staða indexing

SC4 patrónan er með sterkum, lokuðum bakflansi sem ver gírbúnað patrónunnar fyrir ryki og viðarflísum.

Hún er einnig búin 72 staða indexingu allan hringinn, sem gerir kleift að staðsetja vinnustykkið nákvæmlega fyrir endurtekin verkefni, til dæmis við skreytingar eða til dæmis við skreytingar eða þegar skipta þarf hringnum í jafna hluta.

Helsti munur á SC3 og SC4 patrónum

SC3 og SC4 patrónurnar tilheyra sama kerfi og nota sama úrval bakka og aukahluta.

SC3 patróna:

  • Léttari og nettari
  • Sérstaklega hentug fyrir litla og meðalstóra rennibekki
  • Liprari við smærri verkefni

SC4 patróna:

  • Stærri og öflugri
  • Hentar betur fyrir stærri vinnustykki
  • Með lokuðum bakflansi og 72 staða indexingu
  • Meiri massi og styrkur

Þrátt fyrir þennan mun eru báðar patronurnar samhæfar við sama bakka- og aukahlutakerfi.

SC3 – létt og nett patróna fyrir minni rennibekki
SC4 – öflug patróna fyrir stærri verkefni


🔹 Record Power á Íslandi – pöntunarferli

SG Handverk er viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Record Power á Íslandi.
Með sameiginlegum innflutningi tryggjum við hagstæðara verð og öruggan flutning.

Athugið:
Verð á vefnum miðast við nýjasta verð frá Record Power, áætlaðan flutningskostnað og USD/ISK miðgengi Seðlabanka Íslands við síðustu verðuppfærslu.

Pöntun er staðfest með 20% staðfestingargreiðslu samkvæmt proforma reikningi.
Við greiðslu hennar festist USD/ISK gengi pöntunar, sem gildir síðan fyrir lokareikning.

Staðfestingargreiðsla gengur upp í heildarverð pöntunar og eftirstöðvar greiðast samkvæmt reikningi áður en vara er afhent.

📦 Sjá nánari upplýsingar um pöntunar- og greiðslufyrirkomulag í fellilistanum „Pantanir og greiðslufyrirkomulag“ hér fyrir neðan.

Ertu nýr í rennismíði?

Flestir sem kaupa sinn fyrsta rennibekk velta sömu hlutunum fyrir sér: Hvaða stærð þarf ég? Hvaða verkfæri þarf fyrst? Og er flókið að byrja? Við höfum sett saman einfaldan byrjendavegvísi sem útskýrir þetta skref fyrir skref áður en þú velur rennibekk. 

👉 Skoða byrjendavegvísi rennismíði
Skoða nánar

Hagnýtar upplýsingar

🔧Tæknilegar upplýsingar

Tæknilegar upplýsingar og handbækur má finna á heimasíðu Record Power undir Woodworking Machines.

Veldu viðkomandi tæki og skráðu þig inn á síðuna til að nálgast skráarsafnið (Downloads) þar sem öll tæknileg gögn og notendahandbækur eru aðgengileg.
👉 Sjá heimasíðu Record Power

💬 Ábyrgð & þjónusta

Record Power leggur mikla áherslu á gæði og ánægju
viðskiptavina.

Þess vegna fylgir langflestum Record Power vélum ókeypis **5 ára ábyrgð**,
sem er einstök í greininni.

Ábyrgðin nær yfir:
– Framleiðslugalla
– Efnisgalla
– Þjónustu og varahluti í gegnum viðurkenndan aðila á Íslandi

SG Handverk er opinber umboðs- og þjónustuaðili Record
Power á Íslandi
.

Við sjáum um varahluti, viðgerðir og ráðgjöf á ábyrgðartímanum. 

👉 Ábyrgð & Þjónusta

🪵 Um Record Power

Record Power hefur í yfir 100 ár þróað og
framleitt vélar og verkfæri fyrir trésmíði og málmvinnslu. Fyrirtækið er þekkt
fyrir gæði, áreiðanleika og sterka þjónustu við viðskiptavini um allan heim.

👉 Lestu meira um Record Power hér

🪵Afhverju Record Power?

Við sáum fljótt að Record Power tikkaði í flest boxin sem við höfðum sett okkur: gæði, öryggi, traust og langlíf hönnun.

👉 Lestu meira hér

📦 Pantanir & greiðslufyrirkomulag

SG Handverk ehf. er umboðsaðili fyrir Record Power á Íslandi.

Til að tryggja hagkvæm kjör fyrir íslenska viðskiptavini byggir pöntunarferlið
á sameiginlegum innflutningi og skýru fyrirkomulagi.

👉 Meira um pantanir og greiðslufyrirkomulag hér