Record Power Coronet Regent rennibekkjapakki | Vetrartilboð
Record Power Coronet Regent rennibekkjapakki | Vetrartilboð
Record Power Coronet Regent rennibekkjapakkinn er öflug heildarlausn fyrir þá sem þurfa mikinn stöðugleika, afl og vinnslugetu við bæði meðalstór og mjög stór renniverkefni.
Samanlagt viðmiðunarverð allra vara og fylgihluta í pakkanum er 483.800 kr., sé hver hluti keyptur sérstaklega. Sérstakt vetrarpakkaverð er 427.400 kr. Miðað við samanlagt viðmiðunarverð sparar þú 56.400 kr.
Með rennibekknum fylgir Record Power Victory Chuck Special Edition patrónupakki með M33 × 3,5 tengingu án aukagjalds.
Vörulýsing
Coronet Regent er stærsti rennibekkurinn í Coronet-línunni frá Record Power. Hann er hannaður fyrir þá sem þurfa mikið afl, stöðugleika og vinnslugetu fyrir fjölbreytt renniverkefni.
Rennibekkurinn stendur á traustum steypujárnsfótum sem draga úr titringi, meðal annars þegar unnið er með stór eða ójafnvæg vinnustykki. Sterk steypujárnssmíðin og nákvæmir íhlutir gera vinnuna örugga og þægilega.
Rafeindastýrður breytilegur hraði auðveldar aðlögun snúningshraðans að hverju verkefni. Höfuðstokkurinn er bæði snúanlegur og færanlegur, sem veitir aukið svigrúm við skálarennslu og vinnslu stærri hluta. Vélin býður einnig upp á öfugagang.
Með Regent-bekknum fylgir Victory Chuck Special Edition patrónupakki. Patrónan er með M33 × 3,5 tengingu sem passar beint á rennibekkinn og veitir fjölbreytta möguleika við festingu vinnustykkja.
Helstu eiginleikar
- Stærsti rennibekkurinn í Coronet-línunni
- Öflug og traust steypujárnssmíð
- Massívir steypujárnsfætur
- Rafeindastýrður breytilegur hraði
- Snúanlegur og færanlegur höfuðstokkur
- Öfugagangur
- Hentar fyrir meðalstór og mjög stór renniverkefni
- Góður stöðugleiki við vinnslu ójafnvægra efna
- Victory Chuck Special Edition patrónupakki fylgir
Pakkinn inniheldur
- Record Power Coronet Regent rennibekk
- Victory Chuck Special Edition patrónupakka
- M33 × 3,5 tengingu
- Fylgihluti samkvæmt staðalbúnaði beggja vara
- Leiðbeiningar
👉 Af hverju Record Power? Lestu söguna okkar hér
👉 Frekari upplýsingar og tæknigögn má finna á heimasíðu Record Power Europe
Record Power á Íslandi – pöntunarferli
SG Handverk er viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Record Power á Íslandi. Með sameiginlegum innflutningi tryggjum við hagstæðara verð og öruggan flutning.
Athugið:
Verð á vefnum miðast við nýjasta verð frá Record Power, áætlaðan flutningskostnað og USD/ISK-miðgengi Seðlabanka Íslands við síðustu verðuppfærslu.
Pöntun er staðfest með 20% staðfestingargreiðslu samkvæmt proforma reikningi. Við greiðslu hennar festist USD/ISK-gengi pöntunar, sem gildir síðan fyrir lokareikning.
Staðfestingargreiðslan gengur upp í heildarverð pöntunar og eftirstöðvar greiðast samkvæmt reikningi áður en vara er afhent.
📦 Sjá nánari upplýsingar um pöntunar- og greiðslufyrirkomulag í fellilistanum „Pantanir og greiðslufyrirkomulag“ hér fyrir neðan.
Flestir sem kaupa sinn fyrsta rennibekk velta sömu hlutunum fyrir sér: Hvaða stærð þarf ég? Hvaða verkfæri þarf fyrst? Og er flókið að byrja? Við höfum sett saman einfaldan byrjendavegvísi sem útskýrir þetta skref fyrir skref áður en þú velur rennibekk.
👉 Skoða byrjendavegvísi rennismíði

Hagnýtar upplýsingar
🔧Tæknilegar upplýsingar
Tæknilegar upplýsingar og handbækur má finna á heimasíðu Record Power undir Woodworking Machines.
Veldu viðkomandi tæki og skráðu þig inn á síðuna til að nálgast skráarsafnið (Downloads) þar sem öll tæknileg gögn og notendahandbækur eru aðgengileg.
👉 Sjá heimasíðu Record Power
💬 Ábyrgð & þjónusta
Record Power leggur mikla áherslu á gæði og ánægju
viðskiptavina.
Þess vegna fylgir langflestum Record Power vélum ókeypis **5 ára ábyrgð**,
sem er einstök í greininni.
Ábyrgðin nær yfir:
– Framleiðslugalla
– Efnisgalla
– Þjónustu og varahluti í gegnum viðurkenndan aðila á Íslandi
SG Handverk er opinber umboðs- og þjónustuaðili Record
Power á Íslandi.
Við sjáum um varahluti, viðgerðir og ráðgjöf á ábyrgðartímanum.
👉 Ábyrgð & Þjónusta
🪵 Um Record Power
Record Power hefur í yfir 100 ár þróað og
framleitt vélar og verkfæri fyrir trésmíði og málmvinnslu. Fyrirtækið er þekkt
fyrir gæði, áreiðanleika og sterka þjónustu við viðskiptavini um allan heim.
🪵Afhverju Record Power?
Við sáum fljótt að Record Power tikkaði í flest boxin sem við höfðum sett okkur: gæði, öryggi, traust og langlíf hönnun.
📦 Pantanir & greiðslufyrirkomulag
SG Handverk ehf. er umboðsaðili fyrir Record Power á Íslandi.
Til að tryggja hagkvæm kjör fyrir íslenska viðskiptavini byggir pöntunarferlið
á sameiginlegum innflutningi og skýru fyrirkomulagi.