Hoppa í vörulýsingu
1 af 6

Record Power Coronet Regent + WG250 | Summer Madness | SG Handverk

Record Power Coronet Regent + WG250 | Summer Madness | SG Handverk

Verð 470.956 ISK
Verð Útsöluverð 470.956 ISK
Útsala Seld – þessi flík hefur eignast nýjan eiganda
Sendingarkostnaður reiknast við greiðslu.

SUMMER MADNESS TILBOÐ

Í takmarkaðan tíma fylgir Record Power WG250 hverfissteinn með
Coronet Regent rennibekk á sérstöku pakkaverði.

Pakkinn hentar vel fyrir þá sem vilja öflugan og fjölhæfan rennibekk ásamt fullbúinni lausn til að halda rennismíðajárnum beittum og tilbúnum til notkunar.

Tilboðið gildir til 31. ágúst 2026 eða á meðan Summer Madness herferð stendur yfir.
Pantaðu núna – áætluð afhending í júlí - september 2026.

Lýsing á vöru:
Coronet Regent rennibekkurinn
er sá stærsti í Coronet línunni frá Record Power og hannaður fyrir þá sem þurfa afl, stöðugleika og vinnslugetu til mjög stórra verka. Hann stendur á massívum steypujárnsfótum sem draga úr titringi við vinnslu á ójafnvægum efnum, öflug smíði ásamt nákvæmum íhlutum gerir notkun hans örugga og ánægjulega.

Regent býður upp á einstakt verð–gæði hlutfall í sínum flokki. Hann sameinar rafeindastýrðan breytilegan hraða, snúanlegan og færanlegan haus, öfugagang og trausta steypujárnssmíði – eiginleika sem oft finnast aðeins í mun dýrari eða sérhæfðari vélum. Úrval aukahluta.

🔹 Record Power á Íslandi – pöntunarferli

SG Handverk er viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Record Power á Íslandi.
Með sameiginlegum innflutningi tryggjum við hagstæðara verð og öruggan flutning.

Athugið:
Verð á vefnum miðast við nýjasta verð frá Record Power, áætlaðan flutningskostnað og USD/ISK miðgengi Seðlabanka Íslands við síðustu verðuppfærslu.

Pöntun er staðfest með 20% staðfestingargreiðslu samkvæmt proforma reikningi.
Við greiðslu hennar festist USD/ISK gengi pöntunar, sem gildir síðan fyrir lokareikning.

Staðfestingargreiðsla gengur upp í heildarverð pöntunar og eftirstöðvar greiðast samkvæmt reikningi áður en vara er afhent.

📦 Sjá nánari upplýsingar um pöntunar- og greiðslufyrirkomulag í fellilistanum „Pantanir og greiðslufyrirkomulag“ hér fyrir neðan.

Ertu nýr í rennismíði?

Flestir sem kaupa sinn fyrsta rennibekk velta sömu hlutunum fyrir sér: Hvaða stærð þarf ég? Hvaða verkfæri þarf fyrst? Og er flókið að byrja? Við höfum sett saman einfaldan byrjendavegvísi sem útskýrir þetta skref fyrir skref áður en þú velur rennibekk. 

👉 Skoða byrjendavegvísi rennismíði
Skoða nánar

Hagnýtar upplýsingar

🔧Tæknilegar upplýsingar

Tæknilegar upplýsingar og handbækur má finna á heimasíðu Record Power undir Woodworking Machines.

Veldu viðkomandi tæki og skráðu þig inn á síðuna til að nálgast skráarsafnið (Downloads) þar sem öll tæknileg gögn og notendahandbækur eru aðgengileg.
👉 Sjá heimasíðu Record Power

💬 Ábyrgð & þjónusta

Record Power leggur mikla áherslu á gæði og ánægju
viðskiptavina.

Þess vegna fylgir langflestum Record Power vélum ókeypis **5 ára ábyrgð**,
sem er einstök í greininni.

Ábyrgðin nær yfir:
– Framleiðslugalla
– Efnisgalla
– Þjónustu og varahluti í gegnum viðurkenndan aðila á Íslandi

SG Handverk er opinber umboðs- og þjónustuaðili Record
Power á Íslandi
.

Við sjáum um varahluti, viðgerðir og ráðgjöf á ábyrgðartímanum. 

👉 Ábyrgð & Þjónusta

🪵 Um Record Power

Record Power hefur í yfir 100 ár þróað og
framleitt vélar og verkfæri fyrir trésmíði og málmvinnslu. Fyrirtækið er þekkt
fyrir gæði, áreiðanleika og sterka þjónustu við viðskiptavini um allan heim.

👉 Lestu meira um Record Power hér

🪵Afhverju Record Power?

Við sáum fljótt að Record Power tikkaði í flest boxin sem við höfðum sett okkur: gæði, öryggi, traust og langlíf hönnun.

👉 Lestu meira hér

📦 Pantanir & greiðslufyrirkomulag

SG Handverk ehf. er umboðsaðili fyrir Record Power á Íslandi.

Til að tryggja hagkvæm kjör fyrir íslenska viðskiptavini byggir pöntunarferlið
á sameiginlegum innflutningi og skýru fyrirkomulagi.

👉 Meira um pantanir og greiðslufyrirkomulag hér