Record Power DML320 rennibekkur | SG Handverk
Record Power DML320 rennibekkur | SG Handverk
Öflugur rennibekkur með rafrænum hraðastilli
Record Power DML320-EP er öflugur rennibekkur með rausnarlegri vinnugetu fyrir miðstór verkstæði. Steypujárnsborð, haus og hali veita stöðugleika við rennslu, en rafrænn hraðastillir gerir kleift að breyta hraðanum mjúklega án þess að færa drifreim milli hraðastillinga.
Hraðinn birtist á stafrænum hraðamæli og þriggja trissu kerfi hjálpar til við að viðhalda góðu togi á mismunandi hraðabilum. DML320 býður einnig upp á öfugan snúning, sem getur nýst við slípun og frágang.
Vörulýsing
DML320 er með traustu steypujárnsborði, snúanlegum haus og rafrænum hraðastilli. Hraðanum er stjórnað með snúningshnappi og stafrænn hraðamælir sýnir snúningshraða spindilsins.
Þriggja trissu kerfi veitir sex beltarhlutföll til að laga tog að verkefninu. Rennibekkurinn getur snúist í báðar áttir og innbyggt 24 punkta skiptikerfi nýtist við nákvæma skiptingu og skrautvinnu.
Hægt er að festa bekkinn á traustan vinnubekk og lengja hann með beddarframlengingu. Verkfærahirsla er aftan á hausnum. Standur, beddarframlenging og aðrir aukahlutir eru seldir sérstaklega.
Helstu eiginleikar
- Rafrænn, breytilegur snúningshraði með stafrænum hraðamæli
- Hraðastilling frá 250 upp í 3.850 snúninga á mínútu
- Þriggja trissu kerfi með sex beltarhlutföllum
- Öfugur snúningur fyrir slípun og frágang
- Snúanlegur haus og möguleiki á útrennslu
- 24 punkta skiptikerfi
- Steypujárnsborð, haus og hali
- Verkfærahirsla aftan á hausnum
- Hægt að festa á vinnubekk og lengja með aukahlut
Tæknilýsing
- Vörunúmer: DML320-EP
- Gerð: DML320
- Mótorafl, inntak P1: 750 W
- Mótorafl, úttak P2: 550 W
- Hámarksþvermál yfir borði: 320 mm (12½″)
- Hámarksþvermál skálar: 320 mm (12½″)
- Hámarksfjarlægð milli miðja: 510 mm (20″)
- Snúningshraði: 250–3.850 sn./mín.
- Spindilgengja: M33 × 3,5 mm
- Keila í spindli og hala: MT2
- Stærð vélar: 914 × 320 × 435 mm
- Þyngd vélar: 52 kg
Með rennibekknum fylgir
- Record Power DML320 rennibekkur
- Planskífa
- Fjögurra tanna drifmiðja
- Snúningsmiðja
- Verkfærahirsla
Athugið: Standur, beddarframlenging, rennijárn og aðrir aukahlutir fylgja ekki með nema þeir séu sérstaklega tilgreindir.
Athugið – leiðrétting á verði: Verð á Record Power DML305-M33 hefur verið leiðrétt úr 133,439 kr. í 153,500 kr. vegna mistaka við uppfærslu verðskrár.
Við biðjumst velvirðingar á misræminu og þökkum fyrir skilninginn.
Fræðsla um rennibekki og rennsli
Á fræðslusíðunni okkar má lesa um val á rennibekk, uppsetningu, rennijárn, öryggi og fyrstu skrefin í rennismíði.
Skoða fræðslu um rennibekki og rennsli
Flestir sem kaupa sinn fyrsta rennibekk velta fyrir sér hvaða stærð henti, hvaða verkfæri þurfi fyrst og hvernig best sé að byrja. Við höfum tekið saman einfaldan byrjendavegvísi sem fer yfir þetta skref fyrir skref.
👉 Skoða byrjendavegvísi rennismíði
👉 Af hverju Record Power? Lestu söguna okkar hér
👉 Frekari upplýsingar og tæknigögn má finna á heimasíðu Record Power Europe
Record Power á Íslandi – pöntunarferli
SG Handverk er viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Record Power á Íslandi. Með sameiginlegum innflutningi tryggjum við hagstæðara verð og öruggan flutning.
Athugið:
Verð á vefnum miðast við nýjasta verð frá Record Power, áætlaðan flutningskostnað og USD/ISK-miðgengi Seðlabanka Íslands við síðustu verðuppfærslu.
Pöntun er staðfest með 20% staðfestingargreiðslu samkvæmt proforma-reikningi. Við greiðslu hennar festist USD/ISK-gengi pöntunar, sem gildir síðan fyrir lokareikning.
Staðfestingargreiðslan gengur upp í heildarverð pöntunar og eftirstöðvar greiðast samkvæmt reikningi áður en varan er afhent.
📦 Sjá nánari upplýsingar um pöntunar- og greiðslufyrirkomulag í fellilistanum „Pantanir og greiðslufyrirkomulag“ hér fyrir neðan.

Hagnýtar upplýsingar
🔧Tæknilegar upplýsingar
Tæknilegar upplýsingar og handbækur má finna á heimasíðu Record Power undir Woodworking Machines.
Veldu viðkomandi tæki og skráðu þig inn á síðuna til að nálgast skráarsafnið (Downloads) þar sem öll tæknileg gögn og notendahandbækur eru aðgengileg.
👉 Sjá heimasíðu Record Power
💬 Ábyrgð & þjónusta
Record Power leggur mikla áherslu á gæði og ánægju
viðskiptavina.
Þess vegna fylgir langflestum Record Power vélum ókeypis **5 ára ábyrgð**,
sem er einstök í greininni.
Ábyrgðin nær yfir:
– Framleiðslugalla
– Efnisgalla
– Þjónustu og varahluti í gegnum viðurkenndan aðila á Íslandi
SG Handverk er opinber umboðs- og þjónustuaðili Record
Power á Íslandi.
Við sjáum um varahluti, viðgerðir og ráðgjöf á ábyrgðartímanum.
👉 Ábyrgð & Þjónusta
🪵 Um Record Power
Record Power hefur í yfir 100 ár þróað og
framleitt vélar og verkfæri fyrir trésmíði og málmvinnslu. Fyrirtækið er þekkt
fyrir gæði, áreiðanleika og sterka þjónustu við viðskiptavini um allan heim.
🪵Afhverju Record Power?
Við sáum fljótt að Record Power tikkaði í flest boxin sem við höfðum sett okkur: gæði, öryggi, traust og langlíf hönnun.
📦 Pantanir & greiðslufyrirkomulag
SG Handverk ehf. er umboðsaðili fyrir Record Power á Íslandi.
Til að tryggja hagkvæm kjör fyrir íslenska viðskiptavini byggir pöntunarferlið
á sameiginlegum innflutningi og skýru fyrirkomulagi.