Hoppa í vörulýsingu
1 af 7

Record Power Envoy rennibekkur | Vetrartilboð

Record Power Envoy rennibekkur | Vetrartilboð

Verð 323,700 ISK
Verð Útsöluverð 323,700 ISK
Tilboð Seld – þessi flík hefur eignast nýjan eiganda
Sendingarkostnaður reiknast við greiðslu.

Vetrartilboð – Coronet Envoy rennibekkur

Record Power Coronet Envoy er öflugur og vandaður rennibekkur með rafrænni hraðastýringu, sterkri steypujárnssmíð og miklum stöðugleika. Hann hentar vel fyrir þá sem vilja meiri vinnslugetu og nákvæmni við fjölbreytt og krefjandi rennismíðaverkefni.

Fyrra viðmiðunarverð var 367.800 kr.
Sérstakt vetrarverð er 323.700 kr. Miðað við fyrra viðmiðunarverð sparar þú 44.100 kr.

Vörulýsing

Coronet Envoy er hluti af hinni vönduðu Coronet-línu frá Record Power. Hann er þróaður sem stærra og öflugra framhald af Coronet Herald og hentar sérstaklega vel þeim sem vinna reglulega með stór eða þung vinnustykki.

Rennibekkurinn stendur á sterkum steypujárnsfótum sem draga verulega úr titringi, jafnvel þegar unnið er með ójafnvæg vinnustykki. Þung og endingargóð smíðin, ásamt nákvæmlega unnum íhlutum, stuðlar að öruggri, stöðugri og ánægjulegri vinnu.

Rafeindastýrður breytilegur hraði gerir auðvelt að stilla vélina að mismunandi verkefnum. Snúanlegur og færanlegur höfuðstokkur eykur sveigjanleikann og auðveldar vinnu við stærri stykki. Vélin býður einnig upp á fram- og afturábakssnúning, sem nýtist meðal annars við slípun og frágang.

Coronet Envoy sameinar mikla vinnslugetu, þægilega stjórnun og sterka byggingu — eiginleika sem gera hann að góðum valkosti fyrir metnaðarfulla rennismiði sem vilja áreiðanlegan rennibekk til framtíðar.

Helstu eiginleikar

  • Rafeindastýrður, breytilegur snúningshraði
  • Fram- og afturábakssnúningur
  • Snúanlegur og færanlegur höfuðstokkur
  • M33 × 3,5 snælda
  • Sterk og stöðug steypujárnssmíð
  • Massívir steypujárnsfætur draga úr titringi
  • Hentar stórum og krefjandi rennismíðaverkefnum
  • 230 V rafmagnstenging
  • Þung og endingargóð vél fyrir reglulega notkun


👉
Af hverju Record Power? Lestu söguna okkar hér
👉 Frekari upplýsingar og tæknigögn má finna á heimasíðu Record Power Europe

Record Power á Íslandi – pöntunarferli

SG Handverk er viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Record Power á Íslandi. Með sameiginlegum innflutningi tryggjum við hagstæðara verð og öruggan flutning.

Athugið:

Verð á vefnum miðast við nýjasta verð frá Record Power, áætlaðan flutningskostnað og USD/ISK-miðgengi Seðlabanka Íslands við síðustu verðuppfærslu.

Pöntun er staðfest með 20% staðfestingargreiðslu samkvæmt proforma reikningi. Við greiðslu hennar festist USD/ISK-gengi pöntunar, sem gildir síðan fyrir lokareikning.

Staðfestingargreiðsla gengur upp í heildarverð pöntunar og eftirstöðvar greiðast samkvæmt reikningi áður en vara er afhent.

📦 Sjá nánari upplýsingar um pöntunar- og greiðslufyrirkomulag í fellilistanum „Pantanir og greiðslufyrirkomulag“ hér fyrir neðan.

Ertu nýr í rennismíði?

Flestir sem kaupa sinn fyrsta rennibekk velta sömu hlutunum fyrir sér: Hvaða stærð þarf ég? Hvaða verkfæri þarf fyrst? Og er flókið að byrja? Við höfum sett saman einfaldan byrjendavegvísi sem útskýrir þetta skref fyrir skref áður en þú velur rennibekk. 

👉 Skoða byrjendavegvísi rennismíði
Skoða nánar

Hagnýtar upplýsingar

🔧Tæknilegar upplýsingar

Tæknilegar upplýsingar og handbækur má finna á heimasíðu Record Power undir Woodworking Machines.

Veldu viðkomandi tæki og skráðu þig inn á síðuna til að nálgast skráarsafnið (Downloads) þar sem öll tæknileg gögn og notendahandbækur eru aðgengileg.
👉 Sjá heimasíðu Record Power

💬 Ábyrgð & þjónusta

Record Power leggur mikla áherslu á gæði og ánægju
viðskiptavina.

Þess vegna fylgir langflestum Record Power vélum ókeypis **5 ára ábyrgð**,
sem er einstök í greininni.

Ábyrgðin nær yfir:
– Framleiðslugalla
– Efnisgalla
– Þjónustu og varahluti í gegnum viðurkenndan aðila á Íslandi

SG Handverk er opinber umboðs- og þjónustuaðili Record
Power á Íslandi
.

Við sjáum um varahluti, viðgerðir og ráðgjöf á ábyrgðartímanum. 

👉 Ábyrgð & Þjónusta

🪵 Um Record Power

Record Power hefur í yfir 100 ár þróað og
framleitt vélar og verkfæri fyrir trésmíði og málmvinnslu. Fyrirtækið er þekkt
fyrir gæði, áreiðanleika og sterka þjónustu við viðskiptavini um allan heim.

👉 Lestu meira um Record Power hér

🪵Afhverju Record Power?

Við sáum fljótt að Record Power tikkaði í flest boxin sem við höfðum sett okkur: gæði, öryggi, traust og langlíf hönnun.

👉 Lestu meira hér

📦 Pantanir & greiðslufyrirkomulag

SG Handverk ehf. er umboðsaðili fyrir Record Power á Íslandi.

Til að tryggja hagkvæm kjör fyrir íslenska viðskiptavini byggir pöntunarferlið
á sameiginlegum innflutningi og skýru fyrirkomulagi.

👉 Meira um pantanir og greiðslufyrirkomulag hér